Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta kvenna
Nettóhöllin - gervigras
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík
4 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 18' Allison Patricia ClarkEmma Nicole Phillips 16'1 - 1Emma Nicole Phillips 21'2 - 1Emma Nicole Phillips 29'3 - 1Emma Nicole Phillips 37'4 - 1
Dómari: Bríet Bragadóttir
ÍBV
41. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtRagna Sara Magnúsdóttir
ÍBV
41. mín
InnJessica Jean Hinton
ÚtAllison Grace Lowrey
ÍBV
41. mín
InnEydís María Waagfjörð
ÚtSandra Voitane
ÍBV
41. mín
InnÞóra Björg Stefánsdóttir
ÚtHelena Hekla Hlynsdóttir
40. mín
Grindavík/Njarðvík nálægt því að bæta við fimmta markinu en Guðný ver vel í markinu.
39. mín
ÍBV þarf að breyta einhverju, það er gjörsamlega verið að kaffæra þeim inn á vellinum.
38. mín
ÍBV ER AÐ HENDA Í FJÓRFALDA SKIPTINGU. Þetta hef ég aldrei séð gerast áður í fyrri hálfleik. Það er enn nóg eftir af hálfleiknum. Vægast sagt athyglisvert.
Grindavík/Njarðvík
37. mín
FERNA!!!!

Emma Nicole Phillips

Hvað er að gerast hérna???

Ellie Cofield gerir vel í pressunni, kemur boltanum áfram á Sophia Faith Romine sem setur boltann inn á teiginn og þar stangar Emma Nicole Phillips boltann inn. Hver önnur?

Hún er komin með fjögur mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
34. mín
Þess má geta að Emma er upprunalega varnarmaður en hún hefur tekið upp á því við og við að spila framar á vellinum. Hún skoraði til að mynda sjö mörk í Lengjudeildinni í fyrra og þar á meðal þrennu í leik gegn KR.
Grindavík/Njarðvík
29. mín
ÞRENNA!

Emma Nicole Phillips

Vel spilað hjá heimakonum upp vinstra megin, finna svæðið á bak við og þar á Hildur Katrín flotta sendingu fyrir markið sem Emma Nicole Phillips skilar í netið.

Hún fullkomnar hér þrennu sína en Guðný í marki ÍBV er væntanlega grautfúl að hafa ekki gert betur, missti þarna af boltanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
28. mín
Birta Birgis með skot að marki sem Guðný Geirs grípur. ÍBV kemst ekki mikið áleiðis.
26. mín
Það er gríðarlegur kraftur í heimakonum. Sækja hér hornspyrnu. Eru bara búnar að taka yfir leikinn.
24. mín
Við sitjum í gámi á milli varamannabekkjanna. Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavík/Njarðvík, gríðarlega líflegur og lætur vel í sér heyra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík/Njarðvík
21. mín
ÞETTA ER FLJÓTT AÐ GERAST!

Emma Nicole Phillips (stoðsending: Ellie Coffield)

Grindavík/Njarðvík tekur hér forystuna.

Ellie Coffield með boltann úti hægra megin og á frábæra fyrirgjöf á Emmu Nicole Phillips sem skorar sitt annað mark í leiknum.

Grindavík/Njarðvík hefur stjórnað ferðinni eftir að ÍBV komst yfir og núna eru þær búnar að snúa þessu við.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
17. mín
DAUÐAFÆRI!
Allison Grace Lowrey sloppin í gegn Eva Ýr gerir vel að verja frá henni.
Grindavík/Njarðvík
16. mín
ÞÆR JAFNA!!!

Emma Nicole Phillips

Heimakonur eru búnar að jafna metin.

ÍBV á innkast en Grindavík/Njarðvík kemst fyrst í boltann, vinna seinni boltann og þaðan berst hann svo að lokum til Emmu Nicole Phillips sem skorar með góðu skoti og jafnar metin.

Pendúllinn var aðeins farinn að fara yfir til heimakvenna og hér jafna þær.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
15. mín
Grindavík/Njarðvík aðeins að ná að koma sér framar á völlinn.
12. mín
Ása Björg fær boltann úti hægra megin og á sendingu fyrir markið en Eyjakonur skalla frá marki sínu.
ÍBV
8. mín
MARK!!!

Allison Patricia Clark (stoðsending: Guðný Geirsdóttir )

Þetta var nú aðeins of auðvelt fyrir Eyjakonur.

Guðný Geirsdóttir, markvörður ÍBV, sparkar boltanum langt fram. Boltinn fær að skoppa nokkrum sinnum áður en Allison setur hann yfir Evu Ýr í markinu.

Varnarleikurinn hjá Grindavík/Njarðvík ekki til útflutnings þarna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
6. mín
Eyjakonur stjórna ferðinni. Hafa fengið nokkur föst leikatriði en ekki gert mikið við þau enn sem komið er.
3. mín
Bríet Bragadóttir dæmir leikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
2. mín
Avery setur boltann inn á teiginn en Eva Ýr kemur út og grípur þetta.
2. mín
ÍBV fær aukaspyrnu á ágætis stað. Skotfæri fyrir utan teig.
1. mín
Leikur hafinn
Farið af stað!
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl.
Fyrir leik
Það eru fimm mínútur í leik. Aðstæður fyrir fjölmiðlamenn eru ekki alveg þær bestu þannig að maður mun örugglega ekki sjá alveg allt sem gerist í leiknum. En það verður bara að hafa það.
Fyrir leik
Það eru þrír leikir í Bestu kvenna í kvöld
18:00 Þór/KA-Fram (VÍS völlurinn)
18:00 Grindavík/Njarðvík-ÍBV (Nettóhöllin - gervigras)
19:15 Valur-Víkingur R. (N1-völlurinn Hlíðarenda)
Fyrir leik
María Gros spáir
Landsliðskonan María Catharina Gros Ólafsdóttir spáir í leikina sem framundan eru í Bestu deild kvenna.

Grindavík/Njarðvík 0 - 0 ÍBV
Markalaus leikur, 0-0.

Vonum að þessi spá rætist ekki... við viljum mörk.

Mynd: Djurgården
Fyrir leik
Byrjunarliðið hjá gestunum í ÍBV
30. Guðný Geirsdóttir (m)
2. Ragna Sara Magnúsdóttir
5. Avery Mae Vanderven (f)
7. Edda Dögg Sindradóttir
10. Kristín Klara Óskarsdóttir
11. Helena Hekla Hlynsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
20. Allison Patricia Clark
27. Fridrikka Marie Clementsen
35. Allison Grace Lowrey
Fyrir leik
Byrjunarlið heimakvenna í Grindavík/Njarðvík
14. Eva Ýr Helgadóttir (m)
2. Ellie Coffield
5. Natasha Anasi
6. Birta Birgisdóttir
12. Hannah McLaughlin
17. Sophia Faith Romine
18. Ása Björg Einarsdóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
27. Hildur Katrín Snorradóttir
28. Emma Nicole Phillips
29. Hayden Colson
Fyrir leik
Nýliðaslagur
Hérna eru liðin sem komu upp úr Lengjudeildinni í fyrra að mætast. Bæði þessi lið hafa átt ágætis sumar til þessa en ÍBV situr í fjórða sæti með 21 stig á meðan Grindavík/Njarðvík er með fimm stigum minna í fimmta sætinu.

Fyrri leikur þessara liða í sumar fór fram 25. maí og endaði með 1-1 jafntefli. Natasha Moraa Anasi kom Grindavík/Njarðvík yfir en Allison Patricia Clark jafnaði fyrir Eyjakonur í lokin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Leikurinn færður
Það er úrhellisrigning í Njarðvík og JBÓ völlurinn, heimavöllur kvennaliðs Grindavíkur/Njarðvíkur og karlaliðs Njarðvíkur sem er grasvöllur, er á floti og því óleikfær.

Rignt hefur frá því í gærkvöldi og var tekin ákvörðun um að leikur Grindavíkur/Njarðvíkur og ÍBV yrði færður á gervigrasvöllinn fyrir utan Nettóhöllina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Verið velkomin!
Komiði sælir kæru lesendur og velkomnir í beina textalýsingu frá viðureign Grindavík/Njarðvík og ÍBV í Bestu deild kvenna. Hér munum við fylgjast með öllu því sem gerist í leiknum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.