Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
3 - 2
Valur
Valur
Unnur Dóra Bergsdóttir 4'1 - 0Kayla Marie Rollins 16'2 - 0Björg Gunnlaugsdóttir 26'3 - 03 - 150' Kayla Marie Rollins (sjm)3 - 256' Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir
Dómari: Atli Björn E Levy

SKÝRSLAN: Allir ganga ósáttir frá borði

Hvað réði úrslitum?

Þróttur átti góðan fyrri hálfleik og lélegan seinni. Valur átti lélegan fyrri og góðan seinni hálfleik. Það sem réði úrslitum er liðið sem nýtti sér sinn góða hálfleik betur vann sem var Þróttur. Ætli það segi þá ekki að það sé betra að vera með góðan fyrri hálfleik en seinni, það er hægt að deila um það.

Bestu leikmenn

1. Unnur Dóra Bergsdóttir (Þróttur)

Var besti leikmaður Þróttar í dag, hætti aldrei og var með mikla orku. Skoraði eitt mark og var nálægt því að skora annað stórkostlegt mark.

2. Glódís María Gunnarsdóttir (Valur)

Valur þurfti að gera breytingar í hálfleik og þjálfarinn setti fjóra nýja leikmenn inn á. Glódís kom inn á og lagði upp bæði mörk Vals, var með mikla orku og vilja. Allir fjórir leikmenn Vals sem komu inn á breyttu leiknum. Stórt hrós líka á Sonju Björg Sigurðardóttur, hún skoraði ekki en var að koma sér í stöður til þess að skora, hún var hættuleg.

Atvikið

Matthías, þjálfari Vals gerir fjórar breytingar í hálfleik sem breytti leiknum alveg. Allt í einu var Valur líklegri að jafna og taka stig, gerðist ekki en þær viru nálægt því.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur er enn í 6. sæti með 18 stig, Þróttur byrjaði leikinn í 8. sæti en hoppar um tvö sæti. Valur er enn í 9. sæti með 13 stig sem er fallsæti.

Vondur dagur

Báðir markmenn liðanna, Swift og Varis áttu ekki sína bestu daga. Annað mark Þróttar, þá á Varis að gera betur. Swift á að gera betur í seinna marki Vals, það var erfitt að lýsa markinu. Annars voru allir leikmenn sem voru í kringum Björg Gunnlaugsdóttur í markinu hennar, þær áttu mjög vondan dag. Að leyfa henni að hlaupa í áttina að teignum með enga pressu og skora, þetta var ekki gott.

Dómarinn - 6

Smá skrýtin lína, annars var þetta ágætt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.