SKÝRSLAN: Blikar á fljúgandi siglingu
Hvað réði úrslitum?
Gæðamunur liðanna réði úrslitum í kvöld. Blika-konur voru beittari í sínum aðgerðum og unnu verðskuldað.
Bestu leikmenn
1. Katelyn Duong
Katelyn skorar auðvitað eina mark leiksins. Hún var frábær á miðjunni í kvöld, sóknarlega sem varnarlega.
2. Taylor Fox
Varði eins og berserkur allan leikinn og kom í veg fyrir stærri sigur heimakvenna.
Atvikið
Annars vegar markið sem skóp sigurinn. Hins vegar þegar Blika-konur vildu meina að Emma Nicole hafi rifið í hárið á Elísu Viðarsdóttur. Samkvæmt reglubókinni, ef svo var, er það beint rautt spjald.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik er áfram í 2. sæti deildarinnar, jafnar FH að stigum eftir sigur Fimleikafélagsins á Salatinu. Tveggja liða einvígi í vændum um titilinn. Grindavík/Njarðvík sigla lygnan sjó í 5. sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Það var enginn sem átti vondan dag.
Dómarinn - 5
Ásbjörn Þór hefur átt betri daga. Hann var helst til spar á spjöldin. Get ekki dæmt um hvort rifið hafi verið í hár Elísu.



