Besta karla
Þór
LL 0
2
Keflavík
2. deild karla
Þróttur V.
LL 2
0
Dalvík/Reynir
Besta kvenna
FH
LL 0
3
Breiðablik
FH
0
3
Breiðablik
0-1 Edith Kristín Kristjánsdóttir '9
0-2 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '42
0-3 Agla María Albertsdóttir '72
15.08.2026  -  17:00
Kaplakrikavöllur
Besta kvenna
Dómari: Guðmundur Páll Friðbertsson
Maður leiksins: Agla María Albertsdóttir
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
3. Anna Heiða Óskarsdóttir
8. Helena Maree Errington
10. Ída Marín Hermannsdóttir
13. Deja Jaylyn Sandoval
15. Hrönn Haraldsdóttir
19. Hildur Katrín Snorradóttir ('60)
20. Ásdís Karen Halldórsdóttir ('73)
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (f) ('81)
37. Jónína Linnet ('60)
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('60)
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
24. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir ('60)
5. Mackenzie Elyze Smith ('81)
7. Nia Raisa Christopher ('73)
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('60)
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir
33. Ragnheiður Th. Skúladóttir
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir ('60)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Guðni Eiríksson (Þ)
Harpa Finnsdóttir (Sjúkraþj.)
Valur Elli Valsson (Liðsstj.)
Arnar Sigþórsson (Leikgr.)
Dagur Óli Davíðsson (MÞ)
Brynjar Sigþórsson (AÞ)
Hjörtur Hinriksson (Styrktarþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Snæbjört Pálsdóttir
Skýrslan: Blikarnir slökktu á FH-vélinni í Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var að Breiðablik mætti einfaldlega betur til leiks. Blikar settu FH undir pressu frá fyrstu mínútum, voru grimmari í einvígunum, sterkari að ná á öðrum bolta og náðu að gera það sem fáum liðum hefur tekist í sumar að taka sóknarleik FH nánast alveg úr sambandi. Ætli reynslan hjá Blikum að spila svona stórleiki hafi ekki líka eitthvað að segja, spennustigið var allavega hárrétt hjá þeim annað en hjá FH.
Bestu leikmenn
1. Agla María Albertsdóttir
Átti frábæra fyrirgjöf í fyrsta markinu og skoraði sjálf þriðja markið. Hún fór fyrir sínum konum í dag, setti tóninn í föstum leikatriðum, mikil barátta í henni og á alltaf stórhættulegar sendingar.
2. Karitas Tómasdóttir
Kannski ekki alltaf sú sem stelur fyrirsögnunum, en frammistaðan hennar lýsti Blikaliðinu fullkomlega. Hún barðist fyrir öllu, henti sér fyrir alla bolta og átti stóran þátt í því að loka á sóknarleik FH kvenna í dag.
Atvikið
Annað mark Breiðabliks rétt fyrir hálfleik. FH var enn inni í leiknum í stöðunni 0-1 en Hrafnhildur Ása slapp í gegn á 42. mínútu og kláraði snyrtilega framhjá Aldísi. Að fara 0-2 inn í hálfleik breytti verkefninu algjörlega fyrir FH og gaf Blikum fullkomna stöðu til að stjórna leiknum eftir hlé.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik tekur risastór þrjú stig í toppbaráttunni og fer upp fyrir FH og á toppinn! Í fyrsta sinn í sumar náði FH ekki að skora mark. FH er þó enn í bullandi baráttu við Blika og þetta var ekki leikur sem kláraði neitt, en liðið fékk harða lexíu í því hvernig svona toppleikir geta spilast.
Vondur dagur
Vondur dagur hjá FH liðinu sérstaklega í fyrri hálfleik. Heimakonur voru ólíkar sjálfum sér, lentu í vandræðum með pressu Blika og náðu ekki að spila sinn leik. Einfaldar sendingar klikkuðu, Blikar unnu of marga bolta og FH fór í fyrsta sinn í sumar af velli án þess að skora.
Dómarinn - 7
Guðmundur Páll Friðbertsson komst vel frá leiknum. Það var mikil barátta og toppslagstempó í Kaplakrika, en engin stór úrslitaákvörðun skyggði á leikinn. Blikar voru einfaldlega betra liðið og dómarinn var ekki aðalpersónan.
Byrjunarlið:
12. Taylor Kane (m)
3. Elísa Viðarsdóttir
4. Elín Helena Karlsdóttir
7. Agla María Albertsdóttir (f) ('88)
8. Katelyn Duong
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('88)
15. Edith Kristín Kristjánsdóttir ('65)
16. Þórdís Elva Ágústsdóttir ('57)
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
19. Líf Joostdóttir van Bemmel ('88)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Herdís Halla Guðbjartsdóttir (m)
5. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
10. Bryndís Arna Níelsdóttir ('88)
11. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('65)
20. Dórothea Ósk Haraldsdóttir
24. Hildur Þóra Hákonardóttir ('88)
28. Alma Rós Magnúsdóttir
29. Sunna Rún Sigurðardóttir ('57)
51. Kristín Vala Stefánsdóttir ('88)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Jóhanna Björk Gylfadóttir (Sjúkraþj.)
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (AÞ)
Stefán Logi Magnússon (AÞ)
Hjörtur Fjeldsted (Styrktarþj.)
Sæmundur Arnór Sigurðsson (Liðsstj.)
Gunnar Birgisson (AÞ)

Gul spjöld:
Þórdís Elva Ágústsdóttir ('21)

Rauð spjöld: