SKÝRSLAN: VÖK-nuðu tveimur mörkum undir
Hvað réði úrslitum?
Eitt nafn, Viðar Örn Kjartansson. Fimm mörk og stoðsending. Þrennan kláruð í fyrri hálfleik. Hann réði úrslitum í dag.
Bestu leikmenn
1. Viðar Örn Kjartansson
Ætli hann fái ekki þetta í dag
2. Ívan Breki Sigurðsson
Hann var mjög góður og líflegur frá upphafi leiks og jafnvel þegar þeir voru 2-0 undir var hann búin að vera góður. Fær síðan mark sem hann var alveg búin að vinna fyrir.
Atvikið
Setjum þetta á aukaspyrnuna, það var ekkert smá snyrtileg spyrna. Það var samt furðuleg tilfinning því maður sá háan vegg FJölnis en vissi að ef boltinn kæmist yfir hann væri þetta mark. Kannski útaf illa staðsettum markmanni en þú verð hann samt líka ekkert þegar hann fer sláinn og inn.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss heldur í 2.sætið og stefnir upp um deild, þeir eru með þriggja stiga forskot á Kára í 3.sæti en næsti leikur er einmitt gegn þeim. ÞAÐ VERÐUR LEIKUR!! Fjölnismenn klúðra góðu tækifæri að gera sig líklega í að keppast um að stela 2.sætinu af Selfoss en þeir eru núna sjö stigum frá "promotion" sæti.
Vondur dagur
Fjölnisliðið eftir að komast í 2-0. Þetta fór eins mikið úrskeiðis og ég held að hlutir geta farið. Eftir fyrsta mark Selfoss þá bara týnist Fjölnisliðið á vellinum. Eflaust mikil svekkelsi að vaska þessu svona harkalega frá sér.
Dómarinn - 8
Bara faglegur í dag og stóð sig vel.


