Leik lokið!
Gríðarlega mikilvægur sigur Þróttara í fallbaráttunni. Vandræði D/R halda áfram.
89. mín
Hátíð í bæ!!!
Algjörlega frábært mark!!!
Haukur Darri Pálsson
Haukur Darri smyr boltann með geggjuðu skoti og innsiglar sigur Þróttara!Hátíð í bæ!!!
87. mín
Eiður Jack með skot framhjá.
85. mín
Lokaspretturinn.
75. mín
Gult spjald
Eyþór Orri Ómarsson
67. mín
Haukur kom í sumarglugganum
Haukur er 24 ára gamall varnarmaður sem er uppalinn hjá FH en hefur leikið með HK undanfarin tvö tímabil.
Þar áður var hann í fjögur ár hjá Þrótti í Vogum og var meðal annars lykilmaður þegar liðið vann 2. deildina árið 2021. Alls hefur Haukur spilað yfir hundrað leiki fyrir Vogamenn.
Hann er mættur aftur í Vogana á láni frá HK út tímabilið.

66. mín
Eftir aukaspyrnu!
Haukur Leifur Eiríksson (stoðsending: Jón Kristinn Ingason)
Haukur ræðst á boltann eftir flotta aukaspyrnu og kemur boltanum í netið! Við fengum mark í þennan leik og vá hvað þessi leikur þurfti mark!65. mín
Gult spjald
Bjarmi Fannar Óskarsson
55. mín
Atli Þór Sindrason með skemmtilega skottilraun. Klippir boltann yfir markið.
51. mín
Aires Sousa með skot yfir úr aukaspyrnu.
50. mín
Gult spjald
Eiður Jack Erlingsson
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn í gang
45. mín
Hálfleikur
Vonandi fáum við eitthvað fjör í seinni hálfleik því ekki var þessi fyrri hálfleikur til útflutnings.
44. mín
Birgir Halldórsson tekur boltann á lofti og skýtur yfir.
40. mín
Þetta hefur verið hægur og hundleiðinlegur leikur hingað til... En sólin skín!
34. mín
Rjómablíða

33. mín
Brot
Rúnar Helgi Björnsson
23. mín
Tuðaði sig í gult
Aires Rodrigo Da Encarnacao Sousa
21. mín
Dalvík/Reynir með marktilraun
Aires Sousa skýtur yfir markið. Það er bongó blíða í Vogunum, bæjarhátíð og góður andi.
1. mín
Leikur hafinn
Óli Njáll hefur flautað til leiks
Fyrir leik
Leiknum verður textalýst gegnum síma svo lýsingin verður kannski ekki mjög ítarleg fyrir vikið en við reynum okkar besta með hressleikann að vopni!
Fyrir leik
Margeir Sigurðsson og Heimir Erlendsson eru með flöggin
Dómari: Óli Njáll Ingólfsson

Margeir Sigurðsson og Heimir Erlendsson eru með flöggin
Fyrir leik
Þróttarar eru í harðri fallbaráttu, markatölunni frá fallsæti. Dalvík/Reynir er fimm stigum fyrir ofan í sjöunda sæti.
Mikilvægur leikur

Þróttarar eru í harðri fallbaráttu, markatölunni frá fallsæti. Dalvík/Reynir er fimm stigum fyrir ofan í sjöunda sæti.
Fyrir leik
Hér fylgjumst við með leik Þróttar Vogum og Dalvíkur/Reynis í 2. deildinni sem hefst klukkan 16:00 á hinum skemmtilega Vogaídýfuvellinum.
Hörkuleikur í Vogunum

Hér fylgjumst við með leik Þróttar Vogum og Dalvíkur/Reynis í 2. deildinni sem hefst klukkan 16:00 á hinum skemmtilega Vogaídýfuvellinum.