Fotbolti.net
Besta deildin
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta karla
Kaplakrikavöllur
FH
FH
2 - 4
Víkingur R.
Víkingur R.
Ísak Óli Ólafsson 31'1 - 01 - 136' Helgi Guðjónsson1 - 245' Gylfi Þór Sigurðsson1 - 354' Gunnar VatnhamarAdolf Daði Birgisson 59'2 - 32 - 489' Valdimar Þór Ingimundarson
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Víkingur batt enda á taplausa hrinu FH-inga

Hvað réði úrslitum?

Víkingar voru heilt yfir betri í leiknum og vinna þennan leik sanngjarnt og nokkuð sannfærandi þegar uppi er staðið. FH voru þó hættulegir þegar þeir sóttu og létu Víkinga alveg hafa fyrir þessu, kannski óþægilega mikið fyrir þessu að einhverju leyti.

Bestu leikmenn

1. Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)

Það var alltaf eitthvað um að vera þegar hann komst á boltann. Hann skorar fjórða markið og byrjaði líka skyndisóknina sem kom Víkingum yfir fyrir hálfleik.

2. Nikolaj Hansen (Víkingur R.)

Lagði upp tvö mörk í kvöld. Skallaði niður boltann fyrir jöfnunarmarkið og átti svo að sögn Gunnars Vatnhamar frábæra stoðsendingu í þriðja markinu. Munar um minna að hafa hann frammi.

Atvikið

Annað mark Víkinga. Frábær sókn sem Gylfi Þór Sigurðsson klárar frábærlega fyrir hálfleik. Má einnig nefna þriðja mark Víkinga þegar Helgi Guðjónsson þrumar í magan á Niko Hansen og hann dettur fyrir Gunnar Vatnhamar sem skorar. Meistaraheppni væri vel hægt að kalla þetta.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar styrkja stöðu sína á toppi deildarinnar. FH eru enn fyrir ofan fallsvæði en gætu sogast nær fallsvæðinu með óhagstæðum úrslitum á morgun.

Vondur dagur

Guðmundur Andri Tryggvason átti ekki sinn besta dag í kvöld. Fékk gult fór svo skilst mér meiddur af velli í hálfleik. Grétar Snær Gunnarsson var líka kippt af velli í hálfleik en hann var heppinn að láta ekki reka sig útaf fyrir að vera brjálaður út í dómara leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Fékk gult spjald og svo bendingu um að passa sig eftir að hafa fengið að líta gula.

Dómarinn - 7

Mér fannst þetta var fínasta frammistaða hjá dómarateyminu í dag. Leyfðu leiknum að fljóta og lítið um óþarfa flautuleika. Eitt og annað sem hefði verið hægt að pikka út en ekkert sem skipti neinu máli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.