Leik lokið!
Ekkert kemur úr horninu og niðurstaðan jafntefli. Frábær leikur hér í Vesturbænum! Skýrsla og viðtöl væntanleg seinna í kvöld.
94. mín
Síðasti séns
Tíminn að renna út og KR fær horn.
93. mín
Hann hittir ekki boltann!
KR í sókn og þeir lyfta boltanum inn í teig. Boltinn dettur þá fyrir Ástbjörn í dauðafæri en hann bara hittir ekki boltann þegar hann reynir skotið, boltinn dettur þá aftur fyrir hann en þá eru Blikar tilbúnir að koma sér fyrir.
92. mín
Gult spjald
Jason Daði Svanþórsson
Rígheldur í treyjuna á Antoni Loga.91. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma
90. mín
Gult spjald
Davíð Ingvarsson
Kastar sér á eftir lausum bolta og er alltof seinn.88. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtÞorleifur Úlfarsson
86. mín
Gult spjald
Finnur Tómas Pálmason
82. mín
Blikar í færi
Frábær stungusending hjá Óla Val inn fyrir á Ágúst Orra sem tekur eins snertingu inn á teig, og tekur svo skotið en beint á Halldór, vissulega úr þröngu færi.
81. mín
InnHjalti Sigurðsson
ÚtGabríel Hrannar Eyjólfsson
81. mín
InnStefán Árni Geirsson
ÚtArnór Ingvi Traustason
78. mín
Blikar í dauðafæri
Anton Logi fer eitthvað svakalega auðveldlega framhjá sínum manni og er þá kominn í frábæra stöðu inn í teig. Hann leggur boltann út í teig, og mér sýnist Þorleifur ná smá snertingu á boltann í átt að marki en Akoto er mættur á línuna að hreinsa frá.
76. mín
InnAnton Logi Lúðvíksson
ÚtHöskuldur Gunnlaugsson
76. mín
InnAron Bjarnason
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
76. mín
InnMichael Osei Akoto
ÚtHrafn Tómasson
76. mín
Ágúst Orri með skotið fyrir utan teiginn, en þessi fer yfir markið.
74. mín
Aftur Jónatan
Blikar með hornið beint á pönnuna á Jónatan sem tekur skallan í varnarmann og afturfyrir.
73. mín
Blikar koma hratt upp hinumegin og þá er það Jónatan sem keyrir inn á teiginn og reynir skotið en í varnarmann og horn.
73. mín
Jason DAði með skotið fyrir utan teig en Anton ver vel frá honum
72. mín
Áhorfendatölur
Það er bongó og geggjaður leikur í gangi. Þá mæta líka bara 2887 manns á leikinn. Takk fyrir!
68. mín
Ótrúleg innkoma hjá Jónatan!
Fyrst kemur hann með frábæra snertingu til að skylja Gabríel eftir í rykinu. Þá keyrir hann upp hægri kantinn, og kemur svo með fullkomna sendingu á fjær á Þorleif. Þorleifur svo með skotið af stuttu færi en Halldór ver vel frá honum!
67. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtHlynur Freyr Karlsson
66. mín
InnJason Daði Svanþórsson
ÚtLuke Morgan Conrad Rae
65. mín
KR í dauðafæri!
Hornspyrna hhá KR sem fer á nær. Ástbjörn nær skotinu á nær en í varnarmann og boltinn dettur beint fyrir Luke Rae sem reynir þrumuskot en ótrúleg fórnun hjá Ívar Erni sem kastar sér fyrir boltann og liggur svo eftir, fastur bolti beint í pönnuna á honum.
62. mín
Varið svo stöngin!!
Galdur kemur upp vinstri kantinn, fer framhjá sínum manni og leggur boltann fastan fyrir á nær. Eiður er þar í dauðafæri, nær skotinu en Anton ver frábærlega. Boltinn fellur þá fyrir Luke Rae á fjær þar sem hann nær skallanum með opið markið fyrir framan sig en í stöngina!
Þetta er rosalegur leikur!
Þetta er rosalegur leikur!
59. mín
Nálægt hjá Blikum
Blikar með aukaspyrnu og Davíð lyftir boltanum á fjær. Þar mætir Hlynur sem nær að renna sér í boltann til að gefa boltann aftur fyrir og Kristófer Ingi er hársbreidd frá því að ná að pota í boltann en KR-ingar ná að hreinsa.
55. mín
Þvílíkur leikur!!
KR JAFNAR!!!!!
Aron Sigurðarson (stoðsending: Galdur Guðmundsson)
Það voru svona 40 sekúndur milli marka! KR-ingar vinna boltann eftir miðjuna og sækja hratt upp vinstri kantinn. Galdur er þá kominn í hættulega stöðu vinstra megin og hann leggur boltann fast fyrir á Aron sem er í frábærri stöðu og hann leggur hann þægilega framhjá Antoni!Þvílíkur leikur!!
54. mín
KR-ingar minnka muninn
Ástbjörn Þórðarson (stoðsending: Arnór Ingvi Traustason)
Arnór Ingvi með hornspyrnuna og Ásbjörn með gott hlaup og hann skallar boltann í netið!50. mín
BJARGAÐ Á LÍNU!!
Hrafn rennur í öftustu línu og gefur Kristófer bara boltann við D-bogann. Kristófer er þá einn gegn markmanni og vippar yfir Halldór en Gabríel nær að hlaupa til baka og bombar boltanum frá tveim metrum frá marki.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikur
Því miður er þessum hálfleik lokið. Þvílík skemmtun þessi leikur, færi á báða bóga en Blikar verið aðeins betri og nýtt færin sín betur. Maður vonast bara eftir því sama í seinni.
45. mín
Óli Valur með skotið fyrir utan teig en þetta fer beint á Halldór
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
43. mín
ÓTRÚLEGT SPIL Í ÞESSU MARKI!!
Ágúst Orri Þorsteinsson (stoðsending: Höskuldur Gunnlaugsson)
Þorleifur í fullt af plássi úti vinstra megin þar sem hann fær boltann. Hann leggur þá boltann inn í teig á fjær þar sem Höskuldur skallar boltann aftur fyrir. Þar er Ágúst mættur í miðjum teignum og hann þarf ekki annað en að pota boltanum í átt að marki og hann fer inn!41. mín
2-1!!
KR-ingar minnka muninn!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Luke Morgan Conrad Rae)
KR með hornspyrnu sem Blikar ná að hreinsa en ekki nógu langt. Því Luke Rae nær til hans úti vinstra megin og kemur með fyrirgjöfina inn á teiginn. Þar er auðvitað Eiður Gauti mættur á fjær og stangar boltann í netið!2-1!!
38. mín
Þvílíkt mark! Hafið þið séð annað eins!
Kristófer Ingi Kristinsson
Kristófer með skotið beint úr aukaspyrnunni. Hann nær að snúa boltanum framhjá veggnum og inn að stönginni. Þetta virkaði hins vegar alveg vera skot sem hefði verið hægt að verja.38. mín
Blikar fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað!
36. mín
Arnór Ingvi reynir skotið fyrir utan teig, en þessi hátt yfir. Arnór ekki búinn að vera skjóta vel.
35. mín
Dauðafæri!
Löng sending fram hjá KR og það virtist eins og allir hafi haldið að Arnór væri rangur en hann var það ekki. Hann er þá bara sloppinn í gegn og kemst í skotið, en aftur er það slappt og frekar auðvelt fyrir Anton að verja.
32. mín
KR sækir hratt
Luke Rae geysist upp hægri kantinn, leggur svo boltann til baka á Arnór Ingva sem er í góðri skotstöðu en skotið hans ekki nógu gott. Beint á Anton.
31. mín
Blikarnir í banastuði!
Óli Valur með geggjaða snertingu framhjá Gabríel og með henni er hann bara sloppinn í gegn. Hann reynir fyrst afleira sendingu sem fer í varnarmann en hann fær hann aftur. Þá leggur hann boltann á Ágúst sem kemur strax með hælsendingu á Þorleif inn í teig. Þorleifur með skotið en rétt framhjá!
28. mín
Gult spjald
Ívar Örn Árnason
Búinn að brjóta ítrekað af sér.27. mín
Halldór ver!!!
Höskuldur Gunnlaugsson
Höskuldur með lélega vítaspyrnu ekkert sérlega fast og ekki nógu nálægt stönginni en Halldór ver vel.27. mín
BLIKAR FÁ VÍTI!!
Ágúst Orri með boltann úti vinstra meginn, leggur boltann inn í teig á Þorleif sem nær snertingunni rétt á undan Halldóri. Halldór getur þá ekki annað en tekið hann niður, hárrétt dómgæsla.
26. mín
Galdur að galdra!
Galdur tekur eina snögga hreyfingu og býr sér til pláss, tekur skotið en yfir.
24. mín
Ætti náttúrulega að vera svona 3-3 en loksins kom markið!
Það hlaut að koma að marki!!
Kristófer Ingi Kristinsson (stoðsending: Óli Valur Ómarsson)
Ágúst Orri með boltann úti vinstra megin, hann tekur svo stefnubreytinu í átt að endalínu og leggur boltann fastan fyrir. Finnur Tómas er fyrir sendingunni en rennur þegar hann ætlar að hreinsa og boltinn fer ekki langt. Óli Valur er fljótur á boltann, leggur hann út á Kristófer sem er aleinn inn í teig og hann klárar vel!Ætti náttúrulega að vera svona 3-3 en loksins kom markið!
22. mín
Frábær varsla!
KR með aukaspyrnu og Aron tekur spyrnuna hratt. Vippar boltanum inn í teig áður en Blikar geta hugsað, og Eiður nær skalla á frábærum stað en Anton ver rosalega vel!
19. mín
Gult spjald
Arnór Ingvi Traustason
Þetta var líkast til uppsafnað15. mín
Rétt framhjá!
KR-ingar í góðri sókn, spila vel á milli sín og boltinn berst til Arons fyrir utan teig sem á skotið en hann rennur rétt framhjá markinu!
Þetta eru ótrúleg byrjun á leiknum það er endalaust af færum!
Þetta eru ótrúleg byrjun á leiknum það er endalaust af færum!
14. mín
Blikar í góðri sókn
Óli Valur með boltann fyrir utan teig og nær skotinu. Skotið fer í varnarmann en dettur svo laus inn í teig en Halldór er fljótur út að handsama boltann.
12. mín
Sláin!!
Breiðablik með aukaspyrnu vinstra megin á miðjum vallarhelmingi KR. Höskuldur tekur spyrnuna og lyftir boltanum á fjær. Þar rís Hlynur hæst nær skallanum aftur fyrir og Kristófer í dauðafæri nær skotinu en hann smellur af slánni!!
10. mín
Hættuleg hornspyrna!
Arnór Ingvi með spyrnuna inn á teiginn og Finnur nær skallanum á nær. Boltinn fer inn í þvöguna en enginn sóknarmaður nær til hans og Blikar hreinsa.
7. mín
Þetta fer endana á milli
Fyrirgjöfin inn í teig hjá KR beint á Arnór Ingva sem er í mjög góðri stöðu. Hann tekur skotið en þessi fer framhjá.
7. mín
Þvílíkt hlaup!
Kristófer Ingi fer auðveldlega framhjá hverjum varnarmanni eftir öðrum, valsar inn á teig og ætlar að leggja boltann fyrir samherja en hittir ekki á neinn!
5. mín
Skalli á mark!
KR-ingar með seinni spyrnuna núna lyftir Arnór boltanum inn í miðjan teiginn og Eiður nær skallanum en beint á Anton í markinu.
5. mín
Arnór Ingvi með hornspyrnu á nær og Aron nær skotinu eftir spyrnuna en í varnarmann og KR fær aðra hornspyrnu.
2. mín
Blikar með fyrsta færið!
Höskuldur vinnur boltann ofarlega á vellinum. Kemur upp hægri kantinn og sendir svo eitraða sendingu inn í teiginn. Þar er Þorleifur mættur og tekur fastan skalla en framhjá markinu.
Sterk byrjun hjá gestunum.
Sterk byrjun hjá gestunum.
1. mín
Uppstilling liðanna
Mér sýnist liðin vera í einhverju þessu líku.
Uppstilling KR 3-3-3-1
Halldór
Ástbjörn - Finnur - Gabríel
Arnór Ingvi - Orri - Hrafn
Luke Rae - Aron - Galdur
Eiður
Uppstilling Breiðablik 4-4-2
Anton
Hlynur - Viktor - Ívar - Davíð
Óli - Höskuldur - Gabríel - Ágúst
Kristófer - Þorleifur
Uppstilling KR 3-3-3-1
Halldór
Ástbjörn - Finnur - Gabríel
Arnór Ingvi - Orri - Hrafn
Luke Rae - Aron - Galdur
Eiður
Uppstilling Breiðablik 4-4-2
Anton
Hlynur - Viktor - Ívar - Davíð
Óli - Höskuldur - Gabríel - Ágúst
Kristófer - Þorleifur
1. mín
Leikur hafinn
Þórður flautar og við erum farin af stað!
Fyrir leik
Þetta fer að hefjast!
Liðin og dómarar labba inn á völl. Það eru tvær mínútur í að við hefjum þessa veislu!
Fyrir leik
Besta lið sem Blikar hafa stillt upp lengi, Ég persónulega ætla þó á KR -1 á 1,8 og verja mig á Breiðablik yfir 1,5 mark á 1.8 á Epic þar sem ég sé þetta alveg enda 4-3 eða 5-3 fyrir KR.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 16, 2026
Fyrir leik
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR gerir eina breytingu á sínu liði frá 5-2 sigrinum gegn Fram í síðustu umferð. Ástbjörn Þórðarson kemur inn í liðið á meðan Hjalti Sigurðsson færir sig yfir á bekkinn.
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir tvær breytingar á sínu liði frá 3-1 tapinu gegn Val í síðustu umferð. Ásgeir Helgi Orrason er ekki með liðinu í dag, en Dagur Örn Fjeldsted sem byrjaði síðasta leik er með, en færist yfir á bekkinn. Fyrir þá koma Viktor Örn Margeirsson og nýji maðurinn Þorleifur Úlfarsson.
Þorleifur byrjar

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR gerir eina breytingu á sínu liði frá 5-2 sigrinum gegn Fram í síðustu umferð. Ástbjörn Þórðarson kemur inn í liðið á meðan Hjalti Sigurðsson færir sig yfir á bekkinn.
Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks gerir tvær breytingar á sínu liði frá 3-1 tapinu gegn Val í síðustu umferð. Ásgeir Helgi Orrason er ekki með liðinu í dag, en Dagur Örn Fjeldsted sem byrjaði síðasta leik er með, en færist yfir á bekkinn. Fyrir þá koma Viktor Örn Margeirsson og nýji maðurinn Þorleifur Úlfarsson.
Fyrir leik
Spáin
Karl Ágúst Karlsson, skoraði fyrra mark HK í 2-1 sigri á Leikni í vikunni. Hann er spámaður umferðarinnar að þessu sinni.
KR 3-1 Breiðablik
KR-ingar eru of sterkir fyrir Blikana og keyra yfir þá í leiknum. Aron Sig með tvö mörk og Eiður með eitt mark. Dagur Örn minnkar muninn en það dugar þeim ekki. KR taka stigin þrjú og færa sig nær Vikingum.
KR 3-1 Breiðablik
KR-ingar eru of sterkir fyrir Blikana og keyra yfir þá í leiknum. Aron Sig með tvö mörk og Eiður með eitt mark. Dagur Örn minnkar muninn en það dugar þeim ekki. KR taka stigin þrjú og færa sig nær Vikingum.
Fyrir leik
Dómarinn
Þórður Þorsteinsson Þórðarson verður með flautuna í kvöld en honum til aðstoðar verða Egill Guðvarður Guðlaugsson og
Guðmundur Ingi Bjarnason. Stefán Ragnar Guðlaugsson verður fjórði dómari og Jón Magnús Guðjónsson dómaraeftirlitsmaður.
Guðmundur Ingi Bjarnason. Stefán Ragnar Guðlaugsson verður fjórði dómari og Jón Magnús Guðjónsson dómaraeftirlitsmaður.

Fyrir leik
Blikar í einskismannslandi
Það hefur verið töluverð ólga meðal stuðningsmanna Breiðabliks sem hafa verið óánægðir með spilamennsku liðsins. Þeir sitja í 4. sæti deildarinnar en eru ekki nálægt því að berjast við þau þrjú lið sem eru ofar í deildinni. Ólafur Ingi þjálfari liðsins hefur hins vegar verið að blóðga töluvert af ungum leikmönnum og um síðustu helgi staðfestu þeir að framherjinn Þorleifur Úlfarsson sé kominn aftur til félagsins. Spurning hvort hann geti gefið þeim kraftinn sem liðinu hefur vantað.

Fyrir leik
Geta KR barist um titilinn?
KR-ingar eru í 2. sæti deildarinnar og nú aðeins sex stigum á eftir Víkingum. Þeir hafa verið á svakalegri siglingu undanfarið á meðan Íslandsmeistararnir hafa verið að tapa stigum á meðan þeir eru í sinni Evróputörn. Það er því mikil bjartsýni í Vesturbænum núna þegar níu leikir eru eftir af deildinni að þeir geti náð þeim og það verði alvöru spenna um efsta sætið í lokin.

Fyrir leik
Besta deildin heilsar!
Komið þið sæl og verið velkomin í beina tetalýsingu frá leik KR og Breiðablik í 19. umferð Bestu deildar karla.
Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður spilaður á Mestaravöllum.
sunnudagur 16. ágúst
Besta karla
18:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
mánudagur 17. ágúst
Besta karla
18:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður spilaður á Mestaravöllum.

sunnudagur 16. ágúst
Besta karla
18:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)
mánudagur 17. ágúst
Besta karla
18:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)





