Leik lokið!
Sanngjarn sigur ÍR niðurstaðan
92. mín
Enginn uppbótartími gefinn upp, en ég giska á um 2-3 mínútur.
88. mín
InnHrafn Hallgrímsson
ÚtOrri Bjarkason
88. mín
InnAndré Musa Solórzano Abed
ÚtEmil Nói Sigurhjartarson
85. mín
Ná Grótta að ganga á lagið og bæta við?
Sárarbótamark eða hvað?
Einar Tómas Sveinbjarnarson (stoðsending: Halldór Atli Kristjánsson)
Grótta taka hornspyrnu sem ÍR hreinsa beint á Halldór sem færir boltann yfir á Einar sem skýtur boltanum snyrtilega í fjærhornið stöngin inn.Ná Grótta að ganga á lagið og bæta við?
82. mín
Orri Bjarkason kemst upp völlinn og inn á teig, hann á svo skot sem Guðmundur ver.
80. mín
InnÞorri Heiðar Bergmann
ÚtGuðjón Máni Magnússon
Guðjón Máni frábær í dag.
76. mín


Eyjólfur Garðarsson er vopnaður myndvél á Seltjarnarnesi



75. mín
InnTareq Shihab
ÚtHalldór Atli Kristjánsson
75. mín
InnVíðir Freyr Ívarsson
ÚtBergvin Fannar Helgason
75. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtCaden Robert McLagan
75. mín
InnAxel Sigurðarson
ÚtDagur Bjarkason
74. mín
Grótta komast loksins í færi en það er dæmd rangstæða á Patrik Orra.
71. mín
ÍR hafa öll tök á þessum leik og það virðist vera mun líklegra að þeir bæti við mörkum en að Grótta skori eins og þessi leikur hefur spilast. Það hefur mjög lítið gengið upp hjá Gróttu í dag sérstaklega sóknarlega.
66. mín
InnEinar Tómas Sveinbjarnarson
ÚtAndri Freyr Jónasson
66. mín
InnPatrik Orri Pétursson
ÚtHrannar Ingi Magnússon
66. mín
InnJónatan Ari Bragason
ÚtTristan Freyr Ingólfsson
64. mín
Guðjón Máni kemst í þokkalega skotstöðu en skýtur framhjá. Hann er búinn að skora tvö mörk í dag og vill líklega bæta við því þriðja.
58. mín
Frábær varsla
ÍR komast auðveldlega upp völlinn og boltinn endar á Emil Nóa sem á gott skot upp í hægra hornið sem Guðmundur ver vel.
57. mín
Rúnar Páll virðist hafað breytt skipulaginu á sínu liði í hálfleik. Tristan Freyr fór af hægri kantinum í vinstri bakvörðinn. Dagur Bjarkason fór úr hægri bakverði inn á miðjuna og Mattías Kjeld fór út ,,tíunni" upp á hægri kant.
Hingað til hafa þessar breytingar haft lítil áhrif og Grótta á ekki séns.
Hingað til hafa þessar breytingar haft lítil áhrif og Grótta á ekki séns.
53. mín
ÍR að pakka Gróttu saman!
Guðjón Máni Magnússon
Hornspyrna fyrir sem Grótta skalla út og beint á Guðjón sem stendur óáreittur fyrir utan teig og smellir boltanum í vinstra hornið Frábært skot og annað mark Guðjóns í dag.52. mín
Rétt fyrir brotið var mikill darraðardans í teig Gróttu sem endaði á því að Grótta kom boltanum frá.
ÍR hafa sótt mikið fyrstu mínútur seinni hálfleiks.
ÍR hafa sótt mikið fyrstu mínútur seinni hálfleiks.
50. mín
HÖRÐ TÆKLING!
Andri Freyr Jónasson
Andri Freyr neglir Kristján Atla niður á miðjum vellinum og fær eitt gulasta spjald sem ég hef séð.49. mín
Gult spjald
Bergvin Fannar Helgason
Bergvin fer of hátt með fótinn í baráttunni í teig Gróttu.46. mín
Seinni hálfleikurinn komin af stað
Grótta þurfa heldur betur að stíga upp ef þeir ætla að sækja stig í þessum leik.
45. mín
Hálfleikur
ÍR-ingar fara með verðskuldaða forystu inn í hálfleikinn
Hálfleikstölur eru 2-0 fyrir ÍR. Grótta hefur verið mun meira með boltann, en hafa að engu leiti ógnað marki ÍR sem líður virkilega vel með hvernig leikurinn er að spilast.
42. mín
Gult spjald
Halldór Hilmir Thorsteinson
Halldór fékk gult spjald fyrir kjaftbrúk í kjölfar marksins. Mér sýndist hann vera ósáttur við línuvörðinn.42. mín
Það var smá rangstæðu lykt af sendinguni sem Óliver Andri fékk í gegn og Gróttu menn voru ekki sáttir. En ég er enginn dómari og ætla ekki að dæma í þessu máli.
MAAAARK!
Guðjón Máni Magnússon
Hröð skyndisókn ÍR endar á því að Óliver Andri kemst inn á teiginn, Grótta pota boltanum frá honum, beint á Guðjón Mána sem á fallegt skot í hægra hornið sem syngur í netinu.Það var smá rangstæðu lykt af sendinguni sem Óliver Andri fékk í gegn og Gróttu menn voru ekki sáttir. En ég er enginn dómari og ætla ekki að dæma í þessu máli.
34. mín
Grótta fá horn.
Fyrsta hornspyrnan er hreinsuð í horn og sú seinni er hreinsuð frá af Vilhelm í marki ÍR.
Fyrsta hornspyrnan er hreinsuð í horn og sú seinni er hreinsuð frá af Vilhelm í marki ÍR.
32. mín
Grótta hefur haldið mikið í boltann eftir mark ÍR, en eiga erfitt með að komast í gegnum góðan varnarleik ÍR.
28. mín
Gult spjald
Orri Bjarkason
Illa tímasett tækling sem verðskuldar gult spjald.25. mín
Gott spil hjá ÍR!
Óliver Andri Einarsson (stoðsending: Bergvin Fannar Helgason)
Kristján Atli á frábærar sendingu upp á Bergvin sem gerir vel að snúa og á síðan sendingu í gegn á Óliver sem klárar vel framhjá Guðmundi og í netið.22. mín
Fyrri hálfleikur rúmlega hálfnaður, það er mikið jafnræði með liðinum en ÍR hafa komið sér í betri stöður en Grótta.
Það væri gott fyrir leikinn að fá eitt mark.
Það væri gott fyrir leikinn að fá eitt mark.
16. mín
ÍR í færi!
Góð skyndisókn hjá ÍR endar á skoti frá Orra Bjarkasyni sem er beint á Guðmundi sem handsamar boltann.16
12. mín
Gróttumenn stál heppnir!
Algjör misskilningur í vörn Gróttu þar sem Guðmundur Rafn kemur langt út úr markinu að sækja boltann en Halldór Hilmir sá það ekki og potaði boltanum til hliðar beint á ÍR-ing sem á skot rétt framhjá á opið markið.
10. mín
ÍR-ingar hafa ekki verið sáttir með dómgælsuna fyrstu 10 mínúturnar. Það heyrist vel í Jóhanni Birni og Ágúst Unnar fór á lítin fund með Hreini dómara til að ræða málin.
10. mín
Grótta fær aukaspyrnu á miðjum velli sem þeir taka hratt, boltinn ratar á Mattías Kjeld sem er sloppin í gegn en er rangstæður.
7. mín
Rólegt yfir þessu fyrstu mínúturnar, liðin tvö skiptast á halda boltanum og leita af lausnum.
4. mín
Orri Bjarkason á fyrstu marktilraun dagsins. Orri átti góðan sprett sem endaði á skoti framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka okkur í gang
Góða skemmtun!
Fyrir leik
Allt að verða klárt!
Liðin ganga til vallar hér á Seltjarnarnesi og gera sig klár í að byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Rúnar gerir eina breytingu - Óbreytt hjá ÍR
Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu gerir eina breytingu á sínu liði, Björgvin Brimi Andrésson kemur inn í liðið og Viktor Orri Guðmundsson fær sér sæti á bekknum.
Jóhann Birnir Guðmundsson þjálfari ÍR gerir engar breytingar á sigur liðinu gegn Njarðvík í síðustu umferð.

Jóhann Birnir Guðmundsson þjálfari ÍR gerir engar breytingar á sigur liðinu gegn Njarðvík í síðustu umferð.

Fyrir leik
Róbert Hauks spáir í spilin
Róbert Hauksson, sóknarmaður Fram, tók að sér það verkefni að spá í leikina sem eru framundan.
Grótta 2 - 2 ÍR (19:15 í kvöld)
,,Kjartan Leifur, blaðamaður og ÍR-ingur mikill, þarf því miður að sætta sig við eitt stig úr þessum leik sem reynist þó gulls ígildi í baráttu þeirra um áframhaldandi veru í deildinni. Þessi leikur verður mikil skemmtun í logninu á Seltjarnarnesi þar sem dramatískar lokamínútur verða til þess að liðin skipta á milli sín stigunum. Bæði lið ganga ósátt af velli með úrslitin."

Grótta 2 - 2 ÍR (19:15 í kvöld)
,,Kjartan Leifur, blaðamaður og ÍR-ingur mikill, þarf því miður að sætta sig við eitt stig úr þessum leik sem reynist þó gulls ígildi í baráttu þeirra um áframhaldandi veru í deildinni. Þessi leikur verður mikil skemmtun í logninu á Seltjarnarnesi þar sem dramatískar lokamínútur verða til þess að liðin skipta á milli sín stigunum. Bæði lið ganga ósátt af velli með úrslitin."

Fyrir leik
ÍR vann fyrr á tímabilinu
Liðin tvö mættust í 9. umferð Lengjudeildarinnar í Breiðholtinu og þar vann ÍR 2-1, með mörkum frá Víði Frey Ívarssyni og Ívan Óla Santos. Mark Gróttu skoraði Einar Tómas Sveinbjarnarson.
Fyrir leik
ÍR í fallbaráttu
ÍR sótti virkilega sterkan sigur gegn Njarðvík í síðustu umferð sem voru lífsnauðsynleg í fallbaráttunni sem þeir eru í. ÍR er í 9. sæti með 22 stig og er tveimur stigum frá fallsæti.
Gengi ÍR í síðustu 5 leikjum hefur verið flott, liðið hefur sótt 10 stig af 15 mögulegum sem hefur verið mjög mikilvægt. Sérstaklega vegna þess að liðin í kringum þá hafa verið að safna stigum.

Gengi ÍR í síðustu 5 leikjum hefur verið flott, liðið hefur sótt 10 stig af 15 mögulegum sem hefur verið mjög mikilvægt. Sérstaklega vegna þess að liðin í kringum þá hafa verið að safna stigum.

Fyrir leik
Grótta í umspilsbaráttu
Grótta hefur komið mikið á óvart á tímabilinu og eru í mikilli umspilsbaráttu. Liðið situr í 6. sæti Lengjudeildarinnar með 27 stig og leik til góða á öll liðin fyrir ofan sig nema Aftureldingu, en liðin tvö mætast á þriðjudaginn næsta.
Í síðustu umferð gerði Grótta tíðindalítið 0-0 jafntefli við Grindavík.

Í síðustu umferð gerði Grótta tíðindalítið 0-0 jafntefli við Grindavík.

Fyrir leik
Dómarateymið góða
Dómari leiksins í dag er Hreinn Magnússon og honum til halds og trausts eru þeir Tryggvi Elías Hermannsson og Bergur Daði Ágústsson. Eftirlitsmaður KSÍ er Skúli Freyr Brynjólfsson.


Fyrir leik
Velkomin á Seltjarnarnes!
Góða kvöldið kæra fólk og verið velkomin í þessa þráð beinu textalýsingu á leik Gróttu og ÍR í 20. umferð Lengjudeildar karla. Leikurinn byrjar á slaginu 19:15. Góða skemmtun.

föstudagur 21. ágúst
18:00 Ægir-Afturelding (GeoSalmo völlurinn)
19:15 Grótta-ÍR (Vivaldivöllurinn)
laugardagur 22. ágúst
14:00 HK-Þróttur R. (Kórinn)
14:00 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
15:00 Vestri-Leiknir R. (Kerecisvöllurinn)
16:00 Njarðvík-Völsungur (JBÓ völlurinn)

föstudagur 21. ágúst
18:00 Ægir-Afturelding (GeoSalmo völlurinn)
19:15 Grótta-ÍR (Vivaldivöllurinn)
laugardagur 22. ágúst
14:00 HK-Þróttur R. (Kórinn)
14:00 Fylkir-Grindavík (tekk VÖLLURINN)
15:00 Vestri-Leiknir R. (Kerecisvöllurinn)
16:00 Njarðvík-Völsungur (JBÓ völlurinn)




Ég þakka fyrir samfylgdina, skýrsla væntanleg seinna í kvöld.