Fyrir leik
Spámaður 17. umferðarinnar
Fyrir leik
Fyrri viðureign
Liðin mættust 13. júní sl. þar sem FH fór með 2-5 sigur af hólmi.
Freyja Stefánsdóttir skoraði þá fyrsta mark leiksins fyrir Víkinga en Nia og Ingibjörg sáu til þess að FH færi með 1-2 forystu inn í hálfleik.
Í seinni hálfleik juku Deja og Thelma Lóa við forystu FH áður en Jóhanna Elín minkaði muninn í 2-4. Andrea Rán hins vegar rak smiðshöggið með fimmta marki FH þegar tíu mínútur voru til leiks loka.

Víkingur R.
Víkingskonur róa lífróður þessa dagana en þær sitja á botni deildarinnar með 11 stig. Tveimur stigum á eftir Val í 9. sætinu og fimm stigum á eftir Fram í 8. sætinu.
Liðið hefur unnið þrjá leiki og var það í byrjun sumars, gegn Stjörnunni, Fram og kom síðasti sigurleikurinn gegn Þór/KA þann 30. maí sl. frá þeim tíma hafa þær náð í tvö jafntefli, 1-1 gegn Grindavík/njarðvík í júní og svo gegn Þrótti í lok júlí.
Þær mættu Þór/KA í síðustu umferð þar sem þær steinlágu 0-3 á eigin heimavelli. Nú mæta þær FH liðinu sem tapaði illa í síðasta leik og það er spurning hvort Víkingskonur geti notfært sér það.
Það er stutt á milli í fallbaráttunni og hvert stig og/eða mark skorað og fengið á sig getur skipt sköpum þegar búið er að telja öll stigin upp úr pokanum!

FH
FH konur sitja fyrir þennan leik í 2. sætinu með 33 stig, þremur stigum minna en Breiðablik sem tapaði stigum í gær. FH á því aftur séns á því að komast á toppinn ef þær vinna í dag.
FH konur lutu heldur betur í lægra haldi fyrir einmitt Breiðablik 0-3 í síðasta leik sem þó var frestaður leikur úr 15. umferðinni. Þar sá FH liðið lítið til sólar og var ólíkt sjálfu sér en þetta var fyrsti leikur þeirra í sumar þar sem þær náðu ekki að skora.
Eftir leikinn kom svo í ljós að besti leikmaður liðsins, Ída Marín Hermannsdóttir er farin til Hammarby og skilur eftir sig stórt skarð. Það er því spurning hvernig FH liðið mætir til leiks í dag? örlítið brotnar eftir síðasta leik og nýjustu tíðindi eða mæta þær dýrvitlausar? Guð hjálpi Víkingum ef sá háttur er á þeim!

Dómarateymi kvöldsins!
Á flautunni í kvöld verður Ásmundur Þór Sveinsson og honum til halds og trausts verða Óliver Thanh Tung Vú og Pálmi Víðir Bjarnason aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Elmar Svavarsson og eftirlitsmaður í kvöld er Sigursteinn Árni Brynjólfsson.

Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í þessa textalýsingu þráðbeint frá Kaplakrikavellinum þar sem FH tekur á móti Víking R. í 17. umferð Bestu deildarinnar.
Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

Leikurinn hefst á slaginu 18:00!

FH 1 - 0 Víkingur R.
Lokaður leikur allan tímann og FH konur sakna strax Ídu í sóknarleik sínum. Mögulega nokkrir leikmenn hvíldir hjá FH fyrir evrópuleikinn í næstu viku en Elín Björg full af orku ræður úrslitum og skorar sigurmark FH seint í leiknum og lokaniðurstaðan 1-0.