Fotbolti.net
20.08.26 - 14:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spámaður

Valgerður Ósk spáir í 16. umferð Bestu kvenna

Valgerður í leik með Haukum í sumar.

Valgerður í leik með Haukum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það styttist í skiptingu í Bestu deild kvenna en í kvöld hefst 16. umferð deildarinnar með tveimur leikjum. Umferðin klárast svo á morgun.

Valgerður Ósk Valsdóttir, leikmaður Hauka, spáir í leikina sem eru framundan.
Grindavík/Njarðvík 4 - 2 Fram (18:00 í kvöld)
Þetta verður fjörugur leikur og mikið af mörkum. Grindavík/Njarðvík eru sterkar á heimavelli og taka þetta 4-2. Fram munu hins vegar ekki gefa neitt eftir og verður staðan 3-2 þangað til Grindavík/Njarðvík skorar fjórða markið á 88 mínútu leiksins. Alda mun skora sitt níunda mark í deildinni, Harpa Helgadóttir skorar eftir að hafa setið hjá í seinustu umferð, og við hljótum að fá allavegana eitt mark frá Emma Nicole Philips.

Stjarnan 1 - 2 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Breiðablik með bullandi sjálfstraust eftir sigurinn á FH um helgina og kemst í 2-0 í fyrri hálfleik. Þórdís Elva skorar með þrumufleyg og Líf setur hitt. Vigdís Edda nýkomin á láni frá FH til Stjörnunar minnkar muninn með alvöru skallamarki úr föstu leikatriði í seinni hálfleik. Spennandi lokamínútur og mikill hiti eftir gluggalokin, jafnvel rautt spjald á loft, en leikur endar 1-2 fyrir Breiðablik.

ÍBV 1 - 1 Þróttur R. (17:15 á morgun)
Alvöru baráttuleikur sem verður mjög jafn allan tímann. ÍBV í 3ja sæti í deildinni mætir Þrótturum sem unnu sinn fyrsta sigur í seinustu umferð síðan í maí. Báðum liðum langar að taka öll stigin en leikurinn endar jafnt 1-1.

Þór/KA 1 - 2 Valur (18:00 á morgun)
Valskonur mæta með alvöru orku inn í leikinn og Ragnheiður kemur þeim yfir eftir 15 mínútna leik. Þór/KA hins vegar verið sterkar á heimavelli (töpuðu seinast heimaleik í maí) og jafna leikinn rétt fyrir hálfleiks flautið. Engin önnur en MB (Margrét Brynja) smáhrifavaldur skorar síðan sigurmarkið og 1-2 lokaniðurstaðan.

FH 1 - 0 Víkingur R. (18:00 á morgun)
Lokaður leikur allan tímann og FH konur sakna strax Ídu í sóknarleik sínum. Mögulega nokkrir leikmenn hvíldir hjá FH fyrir evrópuleikinn í næstu viku en Elín Björg full af orku ræður úrslitum og skorar sigurmark FH seint í leiknum og lokaniðurstaðan 1-0.

Fyrri spámenn:
Arnar Páll (5 réttir)
Aldís Kara (4 réttir)
Ásta Eir (4 réttir)
Fanndís Friðriks (3 réttir)
Mist Rúnars (3 réttir)
Katrín Ásbjörns (3 réttir)
Alma Mathiesen (2 réttir)
Arna Eiríks (2 réttir)
Magnús Haukur (2 réttir)
María Gros (1 réttur)
Sædís Rún (1 réttur)
Thelma Karen (1 réttur)
Jóhann Fjalar (1 réttur)
Grindavík/Njarðvík mætir Fram í kvöld.

Grindavík/Njarðvík mætir Fram í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Margrét Brynja Kristinsdóttir.

Margrét Brynja Kristinsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valgerður spáir því að Elín Björg ráði úrslitum.

Valgerður spáir því að Elín Björg ráði úrslitum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Breiðablik15+2836
2FH15+2433
3ÍBV15-224
4Stjarnan15+423
5Grindavík/Njarðvík15-619
6Þór/KA15-218
7Þróttur R.15-418
8Fram15-1316
9Valur15-1313
10Víkingur R.15-1611
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.