Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
6 - 1
Grindavík
Grindavík
Hjörvar Daði Arnarsson (sjm) 14'1 - 0Guðmundur Tyrfingsson 32'2 - 0Eyþór Aron Wöhler 42'3 - 0Kári Sigfússon 44'4 - 0Tumi Fannar Gunnarsson 59'5 - 05 - 175' Arnar Breki GunnarssonMagnús Daði Ottesen 88'6 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
Já já þetta er búið. Fylkismenn miklu betri en Grindavíkurmenn voru í miklu gjafastuði. Þetta var smá andleysi hjá gestunum. Takk fyrir mig.
Fylkir
88. mín
MAAAARK!

Magnús Daði Ottesen (stoðsending: Guðmundur Tyrfingsson)

Gummi Fær rétt fyrir utan teig. Falleg sending í gegnum vörn Gridnavíkur á Magnús sem er alveg einn. Magnús skýtur í markmannin en skotið fer undir hann.
86. mín
Aron Skúli kemst í gott færi en skýtur beint í Arnór Breka.
85. mín
Aukaspyrna
Kári fær hættulega aukaspyrnu. Kári tekur hana, skýtur lágt, fast skot í fjær neðra hornið. Hjörvar ver en missir boltann frá sér.
Grindavík
83. mín
Gult spjald

Viktor Guðberg Hauksson

82. mín
Stefán Jón rígheldur í Aron og fær dæmt brot á sig.
Fylkir
79. mín
InnJóel Baldursson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
Fylkir
79. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtBirkir Eyþórsson
Grindavík
77. mín
InnMikael Máni Þorfinnsson
ÚtIbrahima Kalil Camara Diakite
Grindavík
75. mín
MAAAARK!

Arnar Breki Gunnarsson (stoðsending: Ibrahima Kalil Camara Diakite)

Camara með háan bolta framhjá vörn Fylkis beint á Arnar sem skýtur framhjá Ólafi í markinu. Fylkismenn ekki að fylgjast með.
75. mín
Hár bolti á Magnús en hann missir boltann frá sér.
73. mín
Nálæææægtttt
Grindavík er í veseni með að koma boltanum burt. Boltinn dettur á Gumma Tyrfings sem er rétt fyrir utan teiginn og hann curlar boltanum rétt framhjá markinu.
Fylkir
71. mín
InnÞórður Ingi Ingimundarson
ÚtTheodór Ingi Óskarsson
Fylkir
71. mín
InnMagnús Daði Ottesen
ÚtEyþór Aron Wöhler
Fylkir
71. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtBjarki Steinsen Arnarsson
Grindavík
71. mín
InnFriðrik Franz Guðmundsson
ÚtEysteinn Rúnarsson
67. mín
Grindvíkingar eru í skyndisókn, Arnór stoppar sóknina en boltinn dettur á Aron Skúla sem lætur vaða en skotið var æfingabolti fyrir Ólaf.
62. mín
Ég er í sjokki
Grindvíkingar eru að senda beint á Fylkismenn aftur og aftur. Þetta er andleysi, þetta er sjokkerandi frammistaða. Öll mörkin eru gjafir, jólasveinninn er kominn snemma í Árbæinn.
Grindavík
60. mín
InnViktor Guðberg Hauksson
ÚtIngi Þór Sigurðsson
Grindavík
60. mín
InnLárus Orri Ólafsson
ÚtDamir Muminovic
Fylkir
59. mín
MAAAARK!

Tumi Fannar Gunnarsson

Gummi Tyrfings rænir boltanum af Grindvíkingum á vinstri kantinum. Gummi kemur með háan bolta inn í teig, Eysteinn skallar burt en beint á Tuma sem er alveg einn. Tumi neglir beint í netið.
58. mín
Stöng
Birkir nær boltanum af Grindvíkingum, sendir Theodór í gegn á kantinum. Theodór lætur vaða beint í stöngina.
57. mín
Bjarki reynir að senda Birki í gegn, frábær sending. Sendingin var of föst samt.
55. mín
Ingi og Heiðar spila vel inni í teig. Heiðar ætlar að senda fram fyrir markið en rennur og sendingin er léleg.
54. mín
Arnór með hættulega aukaspyrnu, sending inn í teig en það er enginn á fjærsvæðinu.
54. mín
Haraldur með bakhrindingu á Bjarka Steinsen.
Fylkir
51. mín
Gult spjald

Arnór Breki Ásþórsson

Rífur Camara niður í skyndisókn Grindvíkinga.
50. mín
Hvað eru Grindvíkingar að gera
Damir inn í teig með slaka sendingu beint á Tuma sem sendir á Eyþór Wöhler sem er galopin. Eyþór er rangur en þetta gjafastuð???
48. mín
Gummi Tyrfings er við D bogann, fær boltann og neglir yfir markið. Gummi var galopin, gjafastuðið heldur áfram?
47. mín
Áhorfendatölur
312
Grindavík
46. mín
InnRúnar Ingi Eysteinsson
ÚtGunnleifur Orri Gunnleifsson
46. mín
Seinni hálfleikur
Heimamenn byrja.
45. mín
Hálfleikur
Úfffff. Fylkismenn eru búnir að vera betri, en Grindavíkurmenn eru búnir að vera í gjafastuði.

Ef þetta heldur áfram svona inn í seinni getur leikurinn farið 10-0.
Fylkir
44. mín
MAAAARK!

Kári Sigfússon

Kári situr Bjarka Steinsen í gegn inn í teignum. Bjarki sendir fram fyrir markið, varnarmenn Grindavíkur stoppa sendinguna. Boltinn skoppar svo inn í teignum og Kári fær boltann og neglir beint í þaknetið.

Gestirnir vilja bara fara heim held ég.
Fylkir
42. mín
MAAAARK!

Eyþór Aron Wöhler (stoðsending: Arnór Breki Ásþórsson)

Stutt horn fyrir Fylkismenn, Theodór fær boltann og keyrir inn í teig. Sendir fram fyrir markið. Varnarmenn Grindavíkur koma boltanum burt.

Boltinn dettur á Arnór sem volleyar boltann beint í áttina að markinu en boltinn fer í Eyþór Wöhler og inn í markið.
41. mín
Grindavík er að róa leikinn niður, þeir eru að senda á milli sín og eru að reyna að komast upp völlinn en það gengur illa.
36. mín
Grindavík missir boltann, boltinn fer á Kára inn í teig. Kári skýtur beint á Hjörvar.
35. mín
Dauðafæri
Hár bolti inn í teig Fylkis, Eysteinn skallar rétt framhjá markinu.
Fylkir
32. mín
MAAAARK!

Guðmundur Tyrfingsson (stoðsending: Arnór Breki Ásþórsson)

Aukaspyrna ekki langt frá teignum. Frábær fyrirgjöf inn í teiginn, beint á hausinn hans Gumma. Gummi skallar beint á markið. Hjörvar kemst í boltann en skotið var of fast.

Ótrúlegar 2 mínútur fyrir Gumma Tyrfings.
31. mín
Gummi Tyrfings er komin inn á aftur.
Fylkir
30. mín
Gult spjald

Guðmundur Tyrfingsson

Gummi kemur inn á en fékk ekki leyfi til þess að koma inn á. Gummi er farinn út af aftur. Gummi fer í leikbann í næsta leik, þetta er hans fjórða gula.
29. mín
Camara í algjöru veseni, of lengi að senda og Wöhler kemst í sendinguna en Grindavík stoppar hann áður en hann kemst áfram.
28. mín
Pétur dómari skipar Gumma Tyrfings að fara út af, Gummi fékk boltann í hausinn. Gummi ætlaði að halda áfram en Pétur tekur í hann og bendir honum að fara út af.
25. mín
Hár bolti inn í teig Fylkis, Eysteinn skallar rétt framhjá.
25. mín
Horn fyrir gestina. Hár bolti á Damir en hann nær ekki skallanum.
24. mín
Kári ætlar að setja Arnór í gegn en Arnór nær ekki boltanum og Damir sparkar burt.
21. mín
Lúmskt
Lág sending frá horninu, beint á Inga þór sem hælar boltann yfir markið.
21. mín
Arnar Breki gerir virkilega vel á vinstri kantinum, cuttar inn og lætur vaða en skotið er í varnarmann.
19. mín
Arnór Breki með gott skot, skotið ætlaði að fljúga í skeytin en Hjörvar grípur boltann.
17. mín
Dauðafæri
Grindavík í gjafastuði. Boltinn dettur á Wöhler sem er á vítapunktinum en hann skýtur langt yfir markið.
Fylkir
14. mín
Ótrúlegt

Hjörvar Daði Arnarsson (sjm)

Hár bolti á Theodór sem keyrir upp kantinn, kemst inn í teig og cuttar inn. Skýtur í nær hornið og Hjörvar ver vel.

Hjörvar er tilbúin til þess að byrja nýja sókn. Hjörvar sendir á Damir sem sendir á Camara sem sendir til baka á Hjörvar sem missir boltann inn í markið.

Það er vont að horfa á þetta.
11. mín
Skrýtið
Fylkir með stutt horn, sem gengur ekki vel. Grindavík var ekki langt frá því að ná boltanum af þeim og komast í skyndisókn.
9. mín
Þessi leikur byrjar vel, það er mikill hraði.
8. mín
Skyndisókn fyrir Fylki, Tumi Fannar setur Wöhler í gegn. Wöhler skýtur en beint á markmannin.
6. mín
Kári fær boltann rétt fyrir utan teig Grindavík, skýtur rétt framhjá markinu.
5. mín
Grindavík með slaka sendingu og Gummi nær í boltann. Sendir á Wöhler sem er alveg einn inn í teignum en Damir stoppar hann.
4. mín
Gummi með háan bolta frá vinstri kantinum, en Damir nær að komast fyrir sendinguna.
3. mín
Hætta
Aron Skúli kemst inn í teig og Ólafur rétt nær að verja en boltinn dettur inn í teiginn og Bjarki Steinsen kemst í boltann og kemur honum burt. Nálægt því.
2. mín
Rangstaða
Kári kemur með háan bolta inn í teig og boltinn fer á Gumma og hann skorar framhjá Hjörvari Daða. En Gummi er rangstæður.

Dómarinn tók sinn tíma að flagga þessu, dágóðar 10 sek.
1. mín
Wöhler reynir að setja Kára í gegn en sendingin er of föst.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja þessa veislu.
Fyrir leik
0-0 lestin og Youtube
Grindavík hefur gert níu jafntefli á tímabilinu, þar af hafa sex leikir endað 0-0. Liðið hefur unnið fjóra leiki og tapað sex. Eitt þeirra tapa kom gegn Fylki þegar Fylkismenn komu í heimsókn til Grindavíkur. Sá leikur endaði 0-1 fyrir gestina og Kári Sigfússon skoraði sigurmarkið.

Síðasti leikur Grindavíkur endaði 0-0, gegn Gróttu á heimavelli. Þar áður hafði Grindavík tekið á móti Þrótti og unnið 2-1 sigur. Fylkir tapaði í síðasta leik gegn Þrótti 3-1 á úti velli.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson


Grindavík fékk skemmtilegan gest í heimsókn þegar Grótta kom í heimsókn, en upp í stúku var Ellis Platten, maðurinn á bak við vinsælu YouTube-rásina Away Days. Platten ferðast um heiminn í leit að áhugaverðum fótboltaleikjum og sýnir frá stemningunni í kringum leikina.

Fyrir leik
4 stig í síðustu fimm leikjum
Það hefur ekki gengið sérstaklega vel hjá Fylki í síðustu leikjum. Fylkismenn töpuðu síðasta leik sínum gegn Þrótti, 3-1. Í síðustu fimm leikjum fóru þeir tvisvar sinnum í heimsókn í Breiðholtið og töpuðu tvisvar, gegn Leikni og ÍR. Í síðasta heimaleik sínum fengu þeir Aftureldingu í heimsókn, hann endaði 3-3.

Eini sigur Fylkis í síðustu fimm leikjum kom gegn Völsungi, sem er í fallbaráttu. Fylkir þurfti þó að hafa fyrir sigrinum og skoraði þrjú mörk á síðustu 17 mínútum leiksins eftir að Völsungur hafði komist yfir snemma í síðari hálfleik.

Fylkir situr engu að síður í 3. sæti deildarinnar með 34 stig. Það er því ljóst að Fylkismenn þurfa á sigri að halda í dag ef þeir vilja vera í baráttunni um fyrsta sætið.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
Spáin
Fylkir 0 - 0 Grindavík

,,Ráðfærði mig við dáðasta son Grindavíkur, Sigurjón Rúnarsson sem handviss var um það að bróðir sinn fengi ekki mark á sig í þessum leik. Grindavík gert sex markalaus jafntefli í sumar og verður þetta það sjöunda sem hlýtur að vera met, hvað segir Víðir Sig?"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Dómaratríóið
Pétur Guðmundsson er með flautuna. Þráinn Jón Elmarsson og Sveinn Ingi Sigurjónsson Waage verða með flöggin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á Tekk völlinn!
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Fylkis og Grindavíkur í 20. umferð Lengjudeildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.