SKÝRSLAN: Rok og ról hjá Njarðvíkingum
Hvað réði úrslitum?
Veðrið hafði töluverð áhrif í dag, þar sem það var svakalegt rok og mikil rigning. Njarðvíkingar virtust hins vegar bara njóta þess og eiginlega frá fyrstu mínútu voru þeir með fulla stjórn á þessum leik. Völsungur gat eiginlega bara ekki neitt í þessum leik, sem lýsir sér töluvert í því að þeir áttu sitt fyrsta skot á 44. mínútu. Njarðvíkingar nýttu sín færi vel og unnu því öruggan 4-0 sigur.
Bestu leikmenn
1. Bragi Karl Bjarkason (Njarðvík)
Tvö mörk hjá Braga í dag, og það seinna var algjör negla. Frábær leikur hjá honum
2. Oumar Diouck (Njarðvík)
Oumar var einnig með tvö mörk og var nálægt því að fullkomna þrennuna en það bara gekk ekki alveg upp.
Atvikið
Seinna mark Braga var rosalega gott skot. Langt fyrir utan teig og hann neglir boltanum upp í vinkilinn.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvík er áfram í 5. sæti en eru núna jafnir HK á 35 stigum og aðeins fjórum stigum á eftir toppsætinu. Það er því ennþá stærðfræðilega mögulegt fyrir Njarðvíkinga að komast á toppinn. Völsungur er sem betur fer fyrir þá ennþá bara einu stigi frá öruggu sæti í deildinni þar sem Grindavík tapaði í dag.
Vondur dagur
Völsungs liðið sem heild voru bara gjörsamlega glataðir í dag. Það gekk ekkert upp fram á við og svo voru þeir galopnir til baka.
Dómarinn - 7
Mér fannst að Njarðvík hefði átt að fá víti snemma í leiknum, rétt fyrir fyrsta markið, en eftir það dæmir Arnar þennan leik bara mjög vel.



