Fotbolti.net
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Lengjudeild karla
tekk VÖLLURINN
Fylkir
Fylkir
3 - 1
Grótta
Grótta
Kári Sigfússon 25'1 - 01 - 182' Björgvin Brimi AndréssonHlynur Sævar Jónsson 86'2 - 1Magnús Daði Ottesen 90'3 - 1
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Leik lokið!
Þá er þetta búið, rólegur leikur en samt stemmara leikur. Takk fyrir mig, viðtöl og skýrsla á leiðinni.
94. mín
Sláinnn
Theodór fær boltann og kemst framhjá manninum sínum, neglir bient í slána, þetta var mjög vel gert.
93. mín
Björgvin fær boltann inn í teiginn, sendir fram fyrir markið en það er enginn þarna til þess að pota boltanum inn í markið.
92. mín
Áhorfendatölur
398
Fylkir
90. mín
Þá er þetta búið

Magnús Daði Ottesen (stoðsending: Benedikt Daríus Garðarsson )

Benedikt Daríus kemst inn í teiginn eftir hlaup á vinstri kantinum, sendir boltann á Magnús Daða sem er við vítapunktinn. Magnús Daði skorar framhjá markmanninum, líkt markinu hjá Gróttu í dag.
89. mín
Grímur með flotta sendingu inn í teig, Viktor skallar yfir markið.
88. mín
Góður bolti inn í teig Fylkis, en Gróttumenn ná að stoppa sendinguna.
Fylkir
86. mín
Fylkismenn afturrr

Hlynur Sævar Jónsson (stoðsending: Theodór Ingi Óskarsson)

Theodór er á hægri kantinum, kemur með flotta sendingu inn í teig. Beint á Hlyn sem skallar í markið, Alexander kemst í boltann en nær ekki að stoppa skallann.
85. mín
Hlynur er ekki sterkur og lætur Björgvin Brima taka boltann af sér.
Grótta
82. mín
Úffff

Björgvin Brimi Andrésson (stoðsending: Mattías Kjeld)

Kjeld er á hægri kantinum, rennir boltanum inn í teiginn á Björgvin sem er við vítapunkt. Björgvin skýtur beint í nær hornið. Þetta var slakur varnarleikur hjá heimamönnum.
81. mín
Of lengi
Ólafur var of lengi að taka markspyrnu og fær horn á sig, skemmtilegt!
81. mín
Tæpttt
Stutt og tæp sending til baka frá Hlyn, Ólafur sparkar í boltann en beint í Kristófer Dan sem slædar, boltinn fer framhjá markinu. Þetta var tæpt. Fylkismenn í brasi.
80. mín
Viktor Orri rífur Bjarka Steinsen niður og fær dæmt brot á sig.
78. mín
Kjeldarinn kominn inn á, skorar hann?
Grótta
77. mín
InnJónatan Ari Bragason
ÚtEmil Skúli Einarsson
Grótta
77. mín
InnKristján Tómas Björnsson
ÚtAxel Sigurðarson
Grótta
77. mín
InnMattías Kjeld
ÚtDagur Bjarkason
76. mín
Arnór Breki tekur horn fyrir Fylki, boltinn dettur á Birki en hann nær ekki að skjóta, hann var alveg einn.
75. mín
Magnús Ottesen með skemmtilega sendingu til þess að setja Nikulás í gegn en hún var ekki nægilega góð.
74. mín
Fylkismenn gefa boltann til baka beint á Kristófer Dan, boltinn endar á Tristan á fjær sem reynir að senda fram fyrir markið en Hlynur stoppar sendinguna.
Fylkir
72. mín
InnBenedikt Daríus Garðarsson
ÚtKári Sigfússon
Fylkir
72. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
Fylkir
72. mín
InnMagnús Daði Ottesen
ÚtEyþór Aron Wöhler
69. mín
Hættulegt færi
Björgvin fær boltann og kemst í færi inn í teig, en skotið fer beint í Hlyn sem dettur við það. Tristan fær annað færi til þess að senda inn í teig en sendingin er blokkuð.
Grótta
68. mín
InnViktor Orri Guðmundsson
ÚtEinar Tómas Sveinbjarnarson
Grótta
68. mín
InnBjörgvin Brimi Andrésson
ÚtAndri Freyr Jónasson
67. mín
Hættulegt
Theodór kemst framhjá Hrannari og hleypur inn í teiginn, Theodór sendir fram fyrir markið en Emil stoppar sendinguna, hættulegt hlaup hjá Theodóri.
65. mín
Tristan tekur aukaspyrnuna á hægri kantinum, tekur skotið sem fer rétt framhjá fjærstönginni.
Fylkir
64. mín
Gult spjald

Aron Snær Guðbjörnsson

Aron tæklar Kristófer, Kristófer liggur niðri sárþjáður. Aron er alls ekki sáttur með þennan dóm.
63. mín
Rétt framhjá
Theodór með flotta fyrirgjöf fram fyrir markið, beint á Wöhler sem er á fjærsvæðinu. Eyþór Wöhler nær ekki að skalla á markið og skallinn er framhjá. Þetta var besta færið í dag fyrir utan markið.
60. mín
Skot
Fylkir er í skyndisókn. Theodór með lúmskt skot, besta færi í seinni hálfleik. Alexander ver í horn.
58. mín
Fylkismenn taka stutt horn, Arnór Breki kemur með fyrirgjöf sem Tristan nær að skalla burt en hann fær höfuðhögg og dómarinn dæmir brot.
57. mín
Guðfinnur er kominn aftur inn á.
55. mín
Kristófer Dan brýtur á Guðfinni sem þarf aðhlynningu, Arnar dómari var mjög óviss hvort að hann ætti að dæma og var lengi að taka ákvörðun. Guðfinnur fær kælispreyið og þarf að fara út af, Fylkismenn eru 10 núna.
53. mín
Grótta fær aukaspyrnu eftir brot á Dag, Tristan tekur skotið sem er lágt en fer í vegginn.
52. mín
Færi
Dagur með góða sendingu í gegn á Andra sem nær skotinu, en skotið er ekki erfitt fyrir Ólaf í markmanni.
49. mín
Færi
Bjarki Steinsen keyrir upp völlinn og setur Eyþór Wöhler í gegn, 1v1 á móti markmanni en skotið er beint á Alexander.
48. mín
Leikurinn byrjar rólega, Fylkismenn miklu meira með boltann. Nokkrar fyrirgjafir frá þeim sem Gróttumenn koma burt frekar þægilega.
46. mín
Seinni hálfleikur
Heimamenn byrja þessa veislu.
45. mín
Hálfleikur
Áhugaverður fyrri hálfleikur, bæði lið mjög róleg. Gróttumenn búnir að eiga fleiri skot en engin almennileg færi.
43. mín
Skemmtileg tilraun
Boltinn dettur á Tristan sem er fyrir utan teiginn á vinstri kantinum. Tristan lætur vaða og neglir, skotið fer í varnamann og yfir markið. Þetta hefði verið drauma mark ef hann hefði farið inn.
40. mín
Axel fær boltann inn í teig og sendir fram fyrir markið en varnarmenn Fylkis ná að stoppa sendinguna.
Fylkir
38. mín
Gult spjald

Guðfinnur Þór Leósson

Fylkir
38. mín
Gult spjald

Heimir Guðjónsson

Vond tækling hjá Guðfinni, dómarinn stoppar leikinn og Heimir er ekki sáttur og lætur dómarann heyra það og setur hendurnar út. Heimir fær að sjá það gula.
37. mín
Kári fær boltann inn í teig, sendir fram fyrir markið en Eyþór er of seinn og kemst ekki í sendinguna.
Grótta
35. mín
Gult spjald

Andri Freyr Jónasson

34. mín
Grótta fær horn, Fylkismenn ná að skalla burt en boltinn dettur á Kristófer Dan sem skýtur framhjá markinu.
33. mín
Theodór er kominn á vinstri kantinn, hleypur upp kantinn og sendir inn í teiginn. Sendingin fer á Tuma sem skýtur beint í varnarmann.
28. mín
Flott sókn
Virkilega flott sókn hjá Fylki, vel útfærð. Fylkismenn ná að tengja saman sendingar og komast í sókn. Arnór kemur með háan bolta beint á Wöhler sem skallar framhjá.
Fylkir
25. mín
Búið að vera rólegt en við fáum mark

Kári Sigfússon

Fylkismenn ná að breika hratt á hægri kantinum. Bjarki Steinsen kemur með langa sendingu á kantinum á Theodór sem hleypur framhjá Tristani. Theodór kemst inn í teiginn og skýtur beint á Alexander, boltinn dettur á Kára sem skorar í autt markið.
21. mín
Kári tekur aukaspyrnuna, kemur með fyrirgjöf en það nær enginn að pota boltanum inn í markið.
20. mín
Tristan tæklar Theodór sem dettur á boltann, þetta var ekki þægilegt. Hættuleg aukaspyrna fyrir Fylki.
19. mín
Andri skallar boltann niður og Axel er að fara sleppa í gegn en Aron Snær nær að stoppa Axel.
18. mín
Þetta er rólegur leikur hingað til. Gróttumenn með fleiri skot.
14. mín
Hár bolti í átt að teig Fylkis, Ólafur hleypur út úr markinu og nær að skalla boltann burt en fer líka í Guðfinn sem liggur niðri, hann stendur upp aftur og virðist vera í lagi með hann.
10. mín
Axel fær boltann inn í teig, gott færi en hann neglir boltanum yfir markið.
8. mín
Bæði lið eru að reyna að komast upp völlinn, en bæði eiga erfitt með það.
3. mín
Hrannar rennir boltanum inn í teig á Grím sem skýtur yfir markið.
1. mín
Theodór með háa sendingu inn í teig sem gestirnir skalla boltann í horn.
1. mín
Leikur hafinn
Gestirnir byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Stjarnan að horfa á báða þjálfarana?
Það hefur verið stormasamt hjá Stjörnunni á þessu tímabili. Félagið er búið að reka tvo þjálfara og gengi liðsins hefur verið langt undir væntingum. Þá hafa ýmsar sögusagnir verið á kreiki og leikmenn sagðir ósáttir. Töluvert hefur verið rætt um erfiðan klefa og því vaknar spurningin: Hvern á Stjarnan að fá til þess að laga andrúmsloftið í Garðabæ?

Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu og fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar, hefur verið nefndur til sögunnar. Sterkar raddir innan Stjörnunnar eiga þann draum að fá Rúnar Pál aftur í þjálfarastólinn, enda þekkir hann félagið vel eftir árin í Garðabæ. Rúnar Páll stýrði Stjörnunni frá 2014 til 2021.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, á einnig sína stuðningsmenn í Garðabæ. Talað hefur verið um að Heimir gæti verið maðurinn sem lægir öldurnar, bæði í kringum liðið og inni í klefanum. Hann kemur með gríðarlega reynslu og gæti verið þjálfarinn sem Stjarnan þarf til þess að koma stöðugleika á liðið á ný.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Eitt lið staðfest í umsspil, hitt ekki
Það er staðfest að Fylkir er að minnsta kosti búinn að tryggja sér sæti í umspilinu um sæti í Bestu deildinni. Fylkismenn eiga enn möguleika á að vinna deildina, en það ræðst að miklu leyti af því hvort Afturelding misstígi sig í lokaumferðunum.

Grótta er einu sæti frá umspilssæti, en liðið á ekki lengur möguleika á að komast þangað. Aðeins sex stig eru eftir í pottinum hjá Gróttu og átta stig skilja liðið frá Njarðvík.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Fyrir leik
Dómaratríóið
Arnar Ingi Ingvarsson verður með flautuna í kvöld en þeir Ronnarong Wongmahadthai og Bryngeir Valdimarsson verða á hliðarlínunni með flöggin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lengjan heilsar
Heil og sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Fylkis og Gróttu í 21. umferð Lengjudeild karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

föstudagur
19:15 Þróttur R.-Ægir
19:15 Fylkir-Grótta

laugardagur
14:00 Grindavík-HK
14:00 Afturelding-Vestri
14:00 Leiknir R.-Njarðvík
16:00 Völsungur-ÍR
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.