Leik lokið!
Stjörnumenn sækja þrjá punkta
0-2 niðurstaðan í bragðdaufum leik, verður að segjast. Viðtöl og skýrsla væntanleg.
90. mín
+6
Kristinn Steindórsson
Tekur Jóhann Árna ansi hressilega niður á miðjum vellinum.90. mín
+4
Ólafur Ingi Skúlason
Óli fékk ekki gult en einhver á bekknum, sá ekkert hver.90. mín
+4
Gustav Kjeldsen
90. mín
+4
Hlynur Freyr Karlsson
90. mín
+3
Blikar vilja víti og það sýður allt upp úr hérna!! Menn að hrinda hvorum öðrum og allir í hnapp, erfitt að sjá hverjir eiga í hlut.
90. mín
+1
Höskuldur í afbragðs færi inn á teignum en Árni slær skallan frá og Blikar fá horn.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbót
90. mín
Gult spjald
Damil Serena Dankerlui
Jónatan er kominn fram hjá honum, Damil dettu, ogrífur hann niður með sér.89. mín
Þorleifur fær háan bolta inn fyrir varnarlínuna og hendir í hjólhestaspyrnu sem lendir á milli lappa Árna Snæs sem er fljótur niður og grípur boltann.
87. mín
Jónatan með fyrirgjöf inn á teiginn sem endar óvænt á hausnum á Arnari Breka en hann er seinn að átta sig og nær ekki að stýra boltanum á markið.
86. mín
Höskuldur tekur hornið út í teiginn en Stjörnumenn skalla frá.
86. mín
Gabríel Snær í færi inn á d-boganum en varnarmenn Stjörnunnar hoppa fyrir skotið og Blikar eiga horn.
85. mín
Óli Valur með fyrirgjöf sem enginn af liðsfélögum hans ræðst á og hún fer í gegnum allan teiginn.
84. mín
InnAri Leifsson
ÚtBenedikt V. Warén
83. mín
Þorleifur fær fyrirgjöf rétt fyrir utan markteiginn en skallinn hans er fram hjá.
81. mín
InnArnar Bjarki Gunnleifsson
ÚtViktor Karl Einarsson
81. mín
InnKristinn Steindórsson
ÚtÁsgeir Helgi Orrason
79. mín
Fyrirgjöf inn á teig Stjörnunnar sem að Árni Snær gerir feykilega vel í að koma út í fyrirgjöfina og grípur hana.
76. mín
Benedikt Warén með fína rispu og nær skoti á markið en það er beint á Anton.
74. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtEmil Atlason
74. mín
InnIbrahim Turay
ÚtAlex Þór Hauksson
70. mín
Óli Valur með fína takta úti hægra megin og virðist ætla að reyna fyrirgjöf en hún endar sem skot sem er beint á Árna í markinu.
66. mín
Hlynur Freyr með ágætis bolta fyrir markið sem Gummi Kristjáns hreinsar í innkast.
65. mín
InnGabríel Snær Hallsson
ÚtAnton Logi Lúðvíksson
65. mín
InnJónatan Guðni Arnarsson
ÚtKristófer Ingi Kristinsson
65. mín
InnViktor Örn Margeirsson
ÚtÍvar Örn Árnason
61. mín
Benedikt Warén tekur spyrnuna sjálfur en hún er yfir markið.
60. mín
Viktor Karl straujar Warén rétt fyrir utan teiginn og Stjarnan fær aukaspyrnu á fínasta stað.
59. mín
Kristófer Ingi í færi á nærstönginni en vinkillinn er mjög erfiður og hann rétt nær boltanum á markið en Árni Snær er í litlum vandræðum með það.
58. mín
InnJóhann Árni Gunnarsson
ÚtÖrvar Eggertsson
Alex Þór á fyrst að koma út af en Örvar Eggertsson sest og leikmenn Stjörnunnar þurfa að benda þriggja manna þjálfarateyminu á það að það væri mögulega sniðugt að taka hann út af í staðinn.
57. mín
Óli Valur kominn inn á teiginn og fær fyrirgjöf frá Davíð Ingvars en skallinn er laus og beint á Árna Snæ.
54. mín
Óli Valur með fínan bolta fyrir markið á Kristófer sem nær ekki skoti á markið en Blikar halda þó í boltann og fá horn á endanum sem verður að stórhættu en inn vill boltinn ekki.
51. mín
Elías Ingi vaknaði í morgun og ákvað að flauta ekki nema að hann þyrfti þess. Bjarki Hauks tekur Óla Val niður en ekkert á það.
49. mín
Hvað gengur Emil Atlasyni til þarna?
Emil Atlason
Fellir Viktor Karl með því að stíga fyrir hann eftir að hann losar boltann, klárt gult spjald.48. mín
Davíð Ingvars fær sendingu frá Antoni Loga og á góðan bolta fyrir markið sem Þorleifur nær ekki til en fyrir aftan hann er Höskuldur sem á skot á markið en Bjarki Hauksson gerir frábærlega og stekkur fyrir skotið og Blikar eiga horn sem þeir ná svo ekki að nýta.
47. mín
Örvar Eggerts í dauðafæri eftir fyrirgjöf frá Birni Snæ en skotið er yfir.
46. mín
Stjörnumenn vinna strax boltann og komast í sókn en skotið frá Birni Snæ er slakt.
46. mín
Blikar byrja með boltann í þeim seinni
46. mín
InnDamil Serena Dankerlui
ÚtÖrvar Logi Örvarsson
Örvar Logi fór meiddur út af í lok hálfleiksins og virtist nokkuð þjáður, getur ekki haldið leik áfram.
45. mín
Hálfleikstölfræði

45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða með tveimur í hálfleik
Blikarnir gert lítið í þessum fyrri hálfleik og líklega verðskulduð forysta Stjörnumanna. Í síðasta leik tóku Blikar sig saman í andlitinu í seinni hálfleik, verður áhugavert að sjá hvernig þeir koma út í seinni.
45. mín
+1
Ein mínúta í uppbót og í sömu andrá þarf Örvar Logi aðhlynningu.
45. mín
Þorleifur fær boltann frá Davíð og kemur honum á markið en skotið er beint á Árna Snæ í markinu.
44. mín
Stjarnan fær horn sem Warén tekur en Blikar skalla frá. Stjarnan heldur áfram sókninni og á endanum fær Emil Atlason færi inn á markteignum en hann setur boltann rétt fram hjá.
40. mín
Ekki skánar það hjá Blikunum
Birnir Snær Ingason (stoðsending: Örvar Eggertsson)
Benedikt Warén finnur Örvar Eggertsson úti hægra megin. Örvar setur undir sig hausinn, keyrir af stað ram hjá Ívari og skilur hann eftir í rykinu, finnur Birni Snæ inn á teignum sem hefur tíma til að taka snertingu og ná skoti óáreittur og skilar boltanum í netið. Anton Ari leit ekkert allt of vel út en ég sá ekki betur en að hann verji boltann inn.35. mín
Birnir Snær með góðan sprett og finnur Emil Atla út í teiginn, hann á hörkuskot sesm Anton ver út í teiginn, beint fyrir Bjarka Hauks sem ætlar að setja hann í fjær en snúningurinn á boltanum er of mikill og skotið fer fram hjá.
33. mín
Aftur tekur Warén fína spyrnu, nú á Emil Atlason, en skallinn hans er yfir.
33. mín
Alex Þór reynir fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og aftur fyrir.
29. mín
Gestirnir leiða
Guðmundur Kristjánsson (stoðsending: Benedikt V. Warén)
Frábært 'outswing' horn frá Warén beint á pönnuna á Gumma Kristjáns sem stangar hann í netið.28. mín
Fínasti bolti frá Warén inn á markteiginn þar sem Blikar skalla aftur fyrir hinum megin.
27. mín
Alex Þór með frábæran sprett upp völlinn en Blikar ná stóru tánni í boltann og Stjarnan fær horn.
25. mín
Blikar sækja upp vinstra megin þaðan sem boltinn kemur fyrir og Kristófer í færi en hann hittir boltann illa og hann fer hátt yfir markið.
24. mín
Benedikt Warén með fínt skot en Anton Ari er vandanum vaxinn og ver það.
23. mín
Birnir Snær í dauðafæri inn á markteignum en hann hittir ekki markið með mjög lausum skalla.
18. mín
Emil Atlason með fína takta fyrir utan teiginn og nær svo skoti en það er laust og fram hjá.
13. mín
Þetta er endanna á milli þessa stundina og Stjarnan sækir upp hinum megin. Birnir Snær nær skotinu en það er hátt yfir markið.
12. mín
Stjarnan fá horn sem er tekið á nær þar sem Örvar Eggertsson er í baráttunni. Boltinn endar á því að detta fyrir lappirnar á Gustav Kjeldsen sem er í dauðafæri en allt of lengi að athafna sig og varnarmenn Blika komast fyrir skotið. Blikar í nauðvörn áður en þeir koma boltanum loksins frá.
Þeir sækja þá hratt og ná skoti á markið hinum megin en það hittir ekki markið.
Þeir sækja þá hratt og ná skoti á markið hinum megin en það hittir ekki markið.
11. mín
Emil Atlason leggst niður og virðist þurfa aðhlynningu en stendur upp um leið og Elías Ingi hótar því að stoppa leikinn fyrir hann.
7. mín
Guðmundur Baldvin fær ansi krefjandi sendingu úr hjarta varnarinnar og reynir að koma boltanum á Guðmund Kristjánsson en Blikar komast inn í þá sendingu en ná ekki að skapa sér færi upp úr því og það er á endanum Guðmundur Baldvin sjálfur sem kemur boltanum frá.
5. mín
Örvar Eggertsson þarf aðhlynningu, virðist hafa fengið högg á andlitið og tekur sér mínútu fyrir utan völlinn.
4. mín
Kraftur í Stjörnumönnum hér í upphafi en nú þarf Anton Ari að hafa sig allan við í baráttu við Emil Atlason en nær að slá boltann í burtu.
3. mín
Stjörnuliðið komið í fína stöðu inn á teig Blika en sendingin frá Benedikt Warén til hliðar er laus og ratar ekki á samherja.
2. mín
Axel Þór í fínu færi utarlega í teignum en skotið er beint á Anton í markinu.
1. mín
Stjarnan vilja víti eftir tíu sekúndur en Elías Ingi hlær bara að Emil Atlasyni og hans tilburðum.
1. mín
Gestirnir byrja með boltann og sækja í átt að Smáranum.
Fyrir leik
Leikmenn ganga inn á völlinn í sínum uppáhalds treyjum eins og félög hafa gert í umferðum helgarinnar. Ansi margar góðar en Ásgeir Helgi Orrason tekur vinninginn fyrir mína parta í svakalegri Liverpool treyju af eldgamla skólanum.
Fyrir leik
Blikar skora alltaf 2 mörk eða meira á þetta Stjörnulið sem er ekki sérstakt varnarlega. Breiðablik yfir 2 mörk er 1.95 á Epic.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) August 31, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Ólafur Ingi Skúlason gerir fjórar breytingar á sínu liði frá síðasta leik gegn fram en Blikar voru 1-4 undir í hálfleik í þeim leik. Ívar Örn Árnason snýr aftur úr leikbanni en hann mun leika í hjarta varnarinnar ásamt Ásgeiri Orra Helgasyni sem kemur einnig inn í liðið. Viktor Karl Einarsson kemur líka inn í byrjunarliðið ásamt Antoni Loga Lúðvíkssyni sem byrjar sinn fyrsta leik frá því að Breiðablik spilaði síðast við Stjörnuna í júní en hann er að koma til baka eftir meiðsli.
Mennirnir sem fá sér sæti á bekknum á kostnað þeirra eru þeir Viktor Örn Margeirsson, Kristinn Jónsson, Gabríel Snær Hallsson og Jónatan Guðni Arnarsson.
Stjörnumenn gera enga breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn Þór í Miðgarði og freysta því að vinna sinn annan leik í röð með því að breyta ekki sigurliði.
Mennirnir sem fá sér sæti á bekknum á kostnað þeirra eru þeir Viktor Örn Margeirsson, Kristinn Jónsson, Gabríel Snær Hallsson og Jónatan Guðni Arnarsson.
Stjörnumenn gera enga breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn Þór í Miðgarði og freysta því að vinna sinn annan leik í röð með því að breyta ekki sigurliði.
Fyrir leik
Sjáðu mörkin úr leikjum umferðarinnar til þessa
Fyrir leik
Markaveisla í fyrri umferðinni
Þessi lið mættust í Garðabænum um miðjan júní í miklum markaleik þar sem Emil Atlason fór á kostum og skoraði þrennu.
Öll mörkin úr fyrri leiknum

Öll mörkin úr fyrri leiknum

Fyrir leik
Stefán Pálsson spáir í spilin
Sagnfræðingurinn og Framarinn Stefán Pálsson er spámaður umferðarinnar og hann spáir útisigri.
Breiðablik 0 - 2 Stjarnan
Nýja þjálfarateymið í Garðabænum bjargar starfinu sínu amk næstu tíu daganna með öruggum sigri á Blikum sem munu undirbúa óhjákvæmlegan ósigur sinn í bikarúrslitunum með glæstri taphrinu í deildinni. Pattaralegir framherjar Stjörnunnar munu skipta mörkunum á milli sín.

Breiðablik 0 - 2 Stjarnan
Nýja þjálfarateymið í Garðabænum bjargar starfinu sínu amk næstu tíu daganna með öruggum sigri á Blikum sem munu undirbúa óhjákvæmlegan ósigur sinn í bikarúrslitunum með glæstri taphrinu í deildinni. Pattaralegir framherjar Stjörnunnar munu skipta mörkunum á milli sín.

Fyrir leik
Tríóið
Elías Ingi Árnason er umferðarstjórinn í dag en með honum verða þeir Kristján Már Ólafs og Eðvarð Þór Eðvarðsson með sitthvort flaggið. Arnar Ingi Ingvarsson er fjórði dómari.

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnumenn hafa heldur betur stolið fyrirsögnunum síðustu vikur fyrir allt nema það sem gerist inná vellinum. Þjálfaramálin hafa verið til umræðu en eins og staðan er í dag virðast þeir vera með þrjá þjálfara. Þeir hafa sigrað þrjá af síðustu fimm og tapað tveimur. Í síðustu umferð fengu þeir Þór í heimsókn í Miðgarð í leik sem endaði 4-2 fyrir Stjörnunni. 

Fyrir leik
Breiðablik
Heimamenn í Breiðabliki eru á ansi vondu skriði í deildinni og hafa ekki unnið í síðustu fjórum leikjum, þrjú töp og eitt jafntefli. Í síðustu umferð fengu þeir Fram í heimsókn í leik sem endaði 3-4 eftir að Blikar höfðu endað 1-4 undir. 

Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur
Veriði hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu frá leik Breiðabliks og Stjörnunnar. Leikurinn er hluti af 21. umferð Bestu deildar karla og er flautað til leiks á Eikarvelli í Kópavoginum klukkan 19:15.





