Fotbolti.net
Snæbjört Pálsdóttir
Evrópubikar kvenna
Stadion Municipal Miercurea Ciuc
Csikszereda
Csikszereda
0 - 1
Breiðablik
Breiðablik
Samtals 1 - 9
0 - 155' Katelyn Duong
Dómari: Franziska Wildfeuer (GER)

SKÝRSLAN: Engin flugeldasýning en Blikarnir kláruðu dæmið

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik stjórnaði leiknum mest megnis frá a-ö, skapaði sér betri færi og hélt heimakonum lengst af frá marki sínu. Ekki hægt að segja að þetta hafi verið nein flugeldasýning þó þar sem Blikarnir fundu ekki sama sóknarflæði og í fyrri leiknum. Þær gerðu þó það sem þurfti til að klára leikinn, héldu hreinu og mark Katelyn Duong eftir hornspyrnu dugði til að tryggja sigurinn í Rúmeníu. Auðvelt og þægilegt bara fyrir Blikana í dag.

Bestu leikmenn

1. Katelyn Duong

Var flott í dag, skoraði eina mark leiksins sem tryggði Blikum sigurinn í seinni viðureigninni. Átti góða spilakafla og er síðan alltaf dugleg að djöflast inn á miðsvæðinu bæði varnar og sóknarlega.

2. Elín Helena Karlsdóttir

Fór fyrir sínum konum í dag með fyrirliðabandið í fjarveru Öglu Maríu. Stóð vörnina vel og átti sinn þátt í að tryggja hreint lak í dag. Kristín Dís, Herdís Halla og Þórdís Elva fá einnig shoutout

Atvikið

Það var nú frekar lítið að frétta í þessum leik svo eina atvikið sem stendur uppúr er hreinlega eina mark leiksins og sigurmarkið sem kom á 55. mínútu. Sunna Rún tók þá hornspyrnu, Kristín Dís truflaði tvo varnarmenn og boltinn féll fyrir Katelyn Duong sem setti hann eiginlega í gegnum Olgu og í hægra hornið.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða það einfaldlega að Breiðablik vinnur einvígið samanlagt 9-1 og er komið áfram í aðra umferð Evrópubikarsins. Næsti mótherji Blika kemur í ljós þegar dregið verður á föstudaginn. Heimakonur í Csikszereda hins vegar sitja eftir með sárt ennið!

Vondur dagur

Sóknarleikur Csíkszereda var bitlaus. Heimakonur komust stöku sinnum í álitlegar stöður en reyndu lítið á Herdísi Höllu og náðu aldrei að setja Blikana undir alvöru pressu.

Dómarinn - 7

Franziska Wildfeuerog dómarateymið átti bara fínasta leik. Hún hafði fín tök á viðureigninni, dæmdi af festu og engin umdeild atvik settu mark sitt á leikinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.