Fotbolti.net
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Evrópubikar kvenna
Kaplakrikavöllur
FH
FH
0 - 1
Apollon Ladies
Apollon Ladies
Samtals 2 - 1
0 - 110' Krystyna Freda90' Angelos Tsolakis
Dómari: Rasa Grigoné (LTU)
Apollon Ladies
90. mín
Rautt spjald

Angelos Tsolakis

Arkar að teyminu og tekur þær á teppið. Fær sitt annað gula og þar með rautt.
Leik lokið!
Frábær árangur hjá FH
FH halda sig upp í vinstra horninu og leiktíminn rennur út. Klára þett einvígi með herkjum en það tekst! Viðtöl og skýrsla væntanleg!
FH
90. mín
+2

Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir

Fær sýnist mér gult fyrir töf.
Apollon Ladies
90. mín
+1

Angelos Tsolakis

Þjálfarateymi Apollon tekur tryllingin yfir stuttum uppbótartíma og einhver á bekknum uppsker gult.
90. mín
Tvær mínútur í uppbót
90. mín
FH sækir hratt og Ingibjörg er komin inn á teiginn, lætur vaða á markið en skotið er blokkað og FH eiga horn.
Apollon Ladies
86. mín
Inn Lainey Higgins
ÚtFilippa Savva
83. mín
Jónína misreiknar boltann og missir hann inn fyrir. Freda er komin á ferðina en Jónína, eins og eimreið, eltir hana uppi og nær stórkostlegri tælklingu og gestirnir eiga horn. Það er svo Jónína sem skallar hornið frá áður en Apollon eiga skot hátt yfir markið.
81. mín
Frábær aukaspyrna frá Andreu við varamannaskýlin sem endar á fjær þar sem FH ná að skalla boltann aftur fyrir en þar ná þær ekki að koma honum á markið.
78. mín
Hildur Katrín með fínasta skot við vítateigshornið vinstra megin en það er yfir.
77. mín
Góð pressa Christopher á Hara í markinu er svo nálægt því að skila marki en boltinn fer upp í loftið og lendir aftur hjá Hara.
76. mín
Andrea með fína aukaspyrnu inn fyrir og FH ná skalla en flaggið á loft.
Apollon Ladies
73. mín
Gult spjald

Filippa Savva

Togar í höndina á Christopher sem er sloppin fram á henni.
72. mín
Maria Ficzay með góðan bolta yfir allt og Freda er sloppin ein í gegn en sendingin reyndist aðein of föst og Aldís skýlir boltanum aftur fyrir.
71. mín
Aftur eru FH-ingar að gera vel og henda sér fyrir skot eftir ansi góða og hraða sókn gestanna.
68. mín
Freda gerir vel og virðist vera að koma sér í dauðafæri en Jónína Linnet gerir frábærlega og hendir sér fyrir það.
66. mín
Síðustu mínútur hafa einkennst af því að bæði lið hitta ekki á samherja. Engar alvöru sóknir og mjög mikið af innköstum.
Apollon Ladies
62. mín
InnEleni Giannou
ÚtMackenzie Jordan Geigle
FH
62. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtHafrún Birna Helgadóttir
FH
62. mín
InnAnna Heiða Óskarsdóttir
ÚtHrönn Haraldsdóttir
60. mín
Nú er það Pearse sem á lélegt skot en það er hátt yfir markið.
59. mín
Geigle með slakt skot fyrir utan teig sem er beint á Aldísi.
59. mín
Apollon sækir hratt og kemur boltanum inn á teig FH en samviskusöm Ingibjörg Magnúsdóttir er mætt alla leið til baka og hreinsar frá.
58. mín
Andrea Rán gerir mjög vel og finnur Ingibjörgu í gegn. Fyrirgjöfin hennar fer af varnarmanni en berst aftur til FH. Ingibjörg fær annan séns og setur boltann þá á markið, Hara ver frá henni áður en varnarmenn Apollon koma boltanum í horn. Andrea Rán tekur hornið svo á fjær en gestirnir hreinsa.
Apollon Ladies
54. mín
InnMarilena Georgiou
ÚtKorina Adamou
53. mín
Hildur Katrín virðist vera að sleppa í gegn en er flögguð rangstæð, ákvörðun sem ég er alls ekki tilbúin að kvitta fyrir.
50. mín
Boltinn kemur inn á teiginn þar sem Hudson skallar frá. Boltinn berst aftur út og Andrea reynir annan bolta inn fyrir á Ingibjörgu en þá fer flaggið á loft.
49. mín
Adamou brotleg og FH fá aukaspyrnu á mjög fínum stað.
48. mín
Góð pressa FH setur Hara í vandræði í markinu sem þarf að hafa sig alla við svo FH fái ekki horn.
46. mín
Ingibjörg gerir frábærlega úti hægra megin og leikur á varnarmanninn sinn áður en hún finnur Hrönn á nær sem er í afbragðs færi en hittir ekki rammann.
46. mín
Við erum farin af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
HÁLFLEIKSTÖLFRÆÐI FRÁ UEFA
Marktilraunir: 4-2
Skot á mark: 1-1
Hornspynur: 1-1
Rangstöður: 1-1
Gul spjöld: 1-3
45. mín
Hálfleikur
Fínasti hálfleikur frá FH úti á velli en gæðin í kring um teiginn og inní honum kannski ekki upp á marga fiska. Pirrandi mark sem þær fá á sig en eru þó enn í bílstjórasætinu í einvíginu og þurfa að sigla þessu heim í seinni.
45. mín
Ein mínúta í uppbót.
45. mín
Andrea tekur hornið innarlega, inn á markteiginn, þar sem Jónína nær skalla sem fer yfir markið.
45. mín
Hildur Katrín gerir vel inn á teignum og nær góðum snúningi en er aðeins of lengi að hlaða í skot og varnarmenn komast fyrir það en FH uppsker horn.
42. mín
Fínn bolti inn á teig FH frá hægri sem Hudson nær að skalla og virðist skalla í Jónínu í leiðinni og þær liggja báðar eftir. Skallinn sjálfur var ekki góður og Aldís sækir boltann alla leið út í horn teigsins þar sem hann er á leiðinni aftur fyrir. Hudson og Jónína standa svo báðar upp og þurfa enga aðhlynningu.
39. mín
Hrönn Haralds í frábæru færi inn á teignum en Savva kemst fyrir skotið hennar á síðustu stundu.
FH
36. mín
Gult spjald

Ingibjörg Magnúsdóttir

Fer of seint í Adamou sem er búin að losa booltann. Ingibjörg fer greinilega með hendurnar í bringuna/hálsinn á Adamou sem grípur um andlitið og liggur eftir eins og hún hafi fengið einn allrækilegan á kjamman. Stendur fljótlega upp og, ótrúlegt en satt, er ekkert að henni.
35. mín
Ingibjörg sínir góða takta og kemst inn á teiginn. Hún á fínan bolta í gegnum teiginn á Errington en það er eins og hún búist ekki alveg við honum og boltinn fer fram hjá henni.
34. mín
Hildur Katrín komin í fína stöðu til að skjóta við vítateigslínuna en hikar aðeins og varnarmenn Apollon ná af henni boltanum.
Apollon Ladies
33. mín
Gult spjald

Natasha Hudson

Dæmd b rotleg og svoleiðis lætur Rasa Grigoné heyra það. Ég spái rauðu spjaldi á blóðheita gestina hér í dag.
32. mín
Hrönn Haralds með fínasta bolta inn fyrir á Errington en flaggið á loft.
31. mín
Freda með fínan bolta út í teiginn en þar er bara engin blá treyja til að binda enda á sóknina með skoti.
30. mín
Maria Ficzay á lélega sendingu beint út af og Angelos Tsolakis, þjálfari liðsins tekur tryllinginn á hana. Hún ákveður að taka tryllinginn til baka og þau garga á hvort annað í dágóða stund á meðan leikurinn er í gangi á milli þeirra. Mjög sérstakt allt saman.
Apollon Ladies
29. mín
Gult spjald

Jelena Prvulovic

Brotið á henni og hún tekur boltann upp og fleygir honum í jörðina og lætur einhver orð falla.
28. mín
Andrea Rán með góða spyrnu inn á markteiginn en Apollon dömur koma þessu frá.
Apollon Ladies
27. mín
Gult spjald

Korina Adamou

Straujar Ingibjörgu sem er að komast fram hjá henni á vítateigshorninu hægra megin. Fínasti staður fyrir aukaspyrnu.
27. mín
Fyrirgjöf frá vinstri sem er mjög innarlega en Aldís er vandanum vaxin og grípur hana.
26. mín
Það hefur aðeins skort gæði á síðasta þriðjung hjá bæði liðum. Eru að komast í fínar stöður en ákvarðanataka og úrslitasendingar eru að klikka.
25. mín
Andrea Rán með fína aukaspyrnu utan af velli inn fyrir línuna en boltinn er aðeins of fastur og endar á því að fara aftur fyrir án þess að nein hvít treyja nái til hans.
22. mín
Hornið er tekið stutt og verður fljótt að engu.
22. mín
Geigle í fyrirgjafarstöðu en boltinn fer af Hildi Katrínu og aftur fyrir.
21. mín
Pressan hjá FH, sem hefur verið að virka vel, nálægt því að skila þeim marktækifæri en boltinn dettur ekki alveg nógu vel fyrir Hafrúnu.
19. mín
Jelena Prvulovic rífur ansi duglega í Hildi Katrínu og fær orð í eyra frá dómara leiksins.
15. mín
FH hafa verið betra liðið á vellinum fyrstu 15. Mjög svekkjandi að hafa gefið þetta mark!
11. mín
Aldís að leika sér að eldinum í útspilinu og er ansi nálægt því að vera of lengi að losa sig við boltann en sleppur með skrekkinn.
Apollon Ladies
10. mín
MAAAARK!

Krystyna Freda

Gestirnir halda boltanum eftir skallann frá Ingibjörgu og ná fyrirgjöf. Freda skallar hann upp í loftið og þar finnst mér Aldís bara að eiga að vera harðari í sínu úthlaupi og grípa boltann. Það er lítil sannfæring hins vegar í hennar aðgerðum og Freda, í baráttu við Jónínu, Aldísi og Smith nær tánni í boltann og hann lekur yfir línuna.
9. mín
Boltinn kemur inn á teiginn en stoppar á fremsta varnarmanni sem er Ingibjörg og skallar frá.
9. mín
Gestirnir fá aukaspyrnu á fínasta stað úti vinstra megin.
6. mín
Filippa Savva tekur aukaspyrnu fyrir gestina lengst utan af velli inn á teiginn en heimakonur skalla frá.
4. mín
Hildur Katrín fær boltann rétt fyrir utan teiginn eftir fínt spil FH en skotið hennar er beint á Hara í markinu.
3. mín
Ingibjörg Magnúsdóttir komin inn á teiginn og reynir fyrirgjöf sem kemst ekki fram hjá varnarmanni Apollon
1. mín
Gestirnir byrja með boltann
Fyrir leik
Glæný Evróputreyja
FH, sem hafa verið öflug í að gera alls kyns treyjur síðustu ár, hafa gefið út nýja Evróputreyju í tilefni af fyrsta heimaleik kvennaliðsins í Evrópukeppni í sögunni.

Sjáðu Nýja Evróputreyju FH - Fyrsti heimaleikur


Fyrir leik
Frítt á völlinn
Auður býður frítt á Kaplakrikavöll í dag og því er engin afsökun fyrir fólk að mæta ekki á völlinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Litáenskt dómarateymi.
Rasa Grigoné stjórnar umferðinni í dag, með henni eru Ieva Ramanauskiene og Guosté Jonikaité með flagg á mann. Ugne Šmitaite er svo á skiltinu.
Fyrir leik
Apollon Ladies
Apollon Ladies var stofnað árið 2007 en hefur síðan þá orðið langöflugasta kvennalið Kýpur. Félagið varð kýpverskur meistari í 16. sinn á síðasta tímabili og hefur unnið meistaratitilinn sex ár í röð.

Á meðan FH er að leika sinn fyrsta Evrópuleik er Apollon Ladies enginn nýgræðingur á þessu sviði. Kýpverska félagið hefur reglulega tekið þátt í Evrópukeppni og komst fjögur tímabil í röð í 32-liða úrslit Meistaradeildarinnar á árunum 2010 til 2014.

Apollon hóf Evrópuævintýrið í forkeppni Meistaradeildarinnar fyrr í mánuðinum. Liðið gerði þar 3-3 jafntefli við pólska liðið Czarni Sosnowiec eftir framlengingu en tapaði í vítaspyrnukeppni. Apollon vann síðan Vllaznia frá Albaníu 2-1 eftir framlengingu og tryggði sér þannig sæti í Evrópubikarnum.

Apollon teflir fram afar alþjóðlegum leikmannahópi. Í hópnum eru meðal annars leikmenn frá Bandaríkjunum, Englandi, Svíþjóð, Írlandi, Rúmeníu, Austurríki og Gana auk kýpverskra landsliðskvenna. Þjálfari liðsins er hinn kýpverski Angelos Tsolakis.



Fyrir leik
Geta haldið áfram að skrifa söguna.
Fyrri leikurinn gegn Apollon var fyrsti Evrópuleikur kvennaliðs FH í sögunni. Þær eru því í frábærri stöðu til þess að sigra sitt fyrsta Evrópueinvígi í sögunni.



Fyrir leik
FH
FH, sem hefur spilað vel í sumar, er í örlítilli niðursveiflu þessa dagana ef horft er til deildarinnar hér heima. Þær hafa ekki sigrað í síðustu þremur leikjum en kláruðu þó fyrri leikinn gegn Apollo í síðustu viku og koma inn í þennan leik með 2-0 stöðu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Góðan daginn kæru lesendur!
Verið velkomin í þessa beinu textalýsingu frá Kaplakrikavelli þar sem FH tekur á móti Appolon Ladies frá Kýpur í fyrstu umferð forkeppni Evrópubikarsins.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.