Evrópubikar kvenna
Csikszereda
LL 0
1
Breiðablik
Evrópubikar kvenna
FH
LL 0
1
Apollon Ladies
FH
0
1
Apollon Ladies
Samtals
2
:
1
0-1 Krystyna Freda '10
Angelos Tsolakis '90
02.09.2026  -  16:00
Kaplakrikavöllur
Evrópubikar kvenna
Dómari: Rasa Grigoné (LTU)
Maður leiksins: Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (FH)
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
5. Mackenzie Elyze Smith
8. Helena Maree Errington
13. Deja Jaylyn Sandoval
15. Hrönn Haraldsdóttir ('62)
19. Hildur Katrín Snorradóttir
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (f)
37. Jónína Linnet
41. Ingibjörg Magnúsdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir ('62)
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
12. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
26. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
3. Anna Heiða Óskarsdóttir ('62)
7. Nia Raisa Christopher ('62)
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir
33. Ragnheiður Th. Skúladóttir
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir
39. Eva Marín Sæþórsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Guðni Eiríksson (Þ)

Gul spjöld:
Ingibjörg Magnúsdóttir ('36)
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir ('90)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@fotboltinet Elíza Gígja Ómarsdóttir
Skýrslan: Skemmtilegt var það ekki, en það hafðist
Hvað réði úrslitum?
Gæðalítill leikur þar sem hvorugt liðið skapaði sér eitthvað af viti og hefði undir venjulegum kringumstæðum endað 0-0. Gestirnir ná inn einu skítamarki sem virðist mögulega hafa verið rangstaða og þetta mark kjarnaði þennan leik ágætlega, gæðalítið og tilviljanakennt. FH létu þetta ekki hafa áhrif á sig og gerðu mjög vel í að sigla þessu heim. Þrátt fyrir lítið af fallegum fótbolta mættu þær gestunum í baráttunni og á því vinnst einvígið að lokum.
Bestu leikmenn
1. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (FH)
Andrea var langbesti leikmaður FH í þessum leik að mínu mati. Í liði þar sem margir reynslulitlir leikmenn létu stressið hafa áhrif á sig var Andrea einhver sem þær gátu alltaf leitað til í þeim tilgangi að róa aðeins leikinn, halda í boltann og velja réttu sendinguna. Varðist oft vel og fór fyrir FH liðinu í dag í því að sigla þessu heim.
2. Jónína Linnet (FH)
Grjóthörð í vörninni og var að gera vel þegar gestirnir gerðu áhlaup. Bjargaði vel inn í á síðustu stundu oft á tíðum og það er tækling í lokin sem endanlega kom henni í þennan dálk þar sem hún elti uppi sóknarmann Apollon og átti frábæra tæklingu.
Atvikið
Í leik þar sem afar lítið gerðist ætla ég að leita í stúkuna í þessum dálki. Partur af teymi gestanna sat uppí stúku og það vakti athygli þegar eldri maður sem var greinilega partur af því byrjaði að láta FH börn í stúkunni heyra það. Ansi blóðheitir gestirnir bæði innan sem utan vallar en það er alltaf gaman af.
Hvað þýða úrslitin?
FH vinnur fyrsta Evrópueinvígi í sögu kvennaliðsins og verður í pottinum á föstudaginn þegar dregið verður í næstu umferð.
Vondur dagur
Sóknarleikur FH var ekki upp á marga fiska í dag. Þær reyndu lítið sem ekkert á Isabella Hara sem stóð á milli stanganna og greinilegt að stærð leiksins hafði áhrif. Úrslitasendingar sem voru oft á tíðum arfa slakar og einfaldari sendingar sem hittu einfaldlega ekki samherja. Það hafði þó ekki áhrif og sóknarmenn FH geta sýnt hvað í þeim býr í næstu umferð
Dómarinn - 4
Dómari leiksins fór óstjórnlega í taugarnar á mér í þessum leik, sú var mætt til að nota flautuna. Flautaði á allt og ekkert sem varð til þess að leikurinn, sem var ekki frábær fyrir, varð ennþá hægari og leiðinlegri fyrir vikið. Einhver orðrómur um að markið sem skorað var hafi ekki átt að standa og svo voru margar aðrar skýtnar ákvarðanir, bæði hjá henni og félögum hennar á flagginu. Gerði gestina svo alveg bandbrjálaða í lokinn með því að bæta aðeins við tveimur mínútum sem var líklega aðeins of lítið.
Byrjunarlið:
31. Isabella Hara (m)
2. Mallory Mooney
3. Mackenzie Jordan Geigle ('62)
6. Steffi Hardy
8. Filippa Savva ('86)
11. Natasha Hudson
15. Olivia Pearse
21. Krystyna Freda
30. Korina Adamou ('54)
33. Maria Ficzay
77. Jelena Prvulovic

Varamenn:
1. Laura Miranda Duran (m)
4. Maya Matesa
7. Eleni Giannou ('62)
9. Antriana Tsoukka
10. Lainey Higgins ('86)
17. Marilena Georgiou ('54)
18. Mariam Yunus
23. Rylee Howard

Liðsstjórn:
Angelos Tsolakis (Þ)

Gul spjöld:
Korina Adamou ('27)
Jelena Prvulovic ('29)
Natasha Hudson ('33)
Filippa Savva ('73)
Angelos Tsolakis ('90)

Rauð spjöld:
Angelos Tsolakis ('90)