Í BEINNI
Besta kvenna
Gri/Nja
LL 1
4
Valur
Gri/Nja
1
4
Valur
Natasha Anasi '9 1-0
1-1 Lillý Rut Hlynsdóttir '16
1-2 Natasha Anasi '35 , sjálfsmark
1-3 Málfríður Anna Eiríksdóttir '47
1-4 Emma Hawkins '51
06.09.2026  -  16:30
JBÓ völlurinn
Besta kvenna
Aðstæður: Sól á lofti en talsverður vindur
Dómari: Bríet Bragadóttir
Maður leiksins: Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur)
Byrjunarlið:
1. Stephanie Bukovec (m)
2. Ellie Coffield ('71)
5. Natasha Anasi ('46)
12. Hannah McLaughlin ('71)
16. Santa Sanija Vuskane
17. Sophia Faith Romine
18. Ása Björg Einarsdóttir
19. Elísa Birta Káradóttir
22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f)
28. Emma Nicole Phillips ('46)
29. Hayden Colson ('46)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
20. Irma Rún Blöndal (m)
3. Brynja Pálmadóttir ('71)
6. Birta Birgisdóttir ('46)
8. Katrín Lilja Ármannsdóttir ('46)
15. Tinna Hrönn Einarsdóttir ('46)
23. Júlía Rán Bjarnadóttir
26. Júlía Ruth Thasaphong ('71)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Gylfi Tryggvason (Þ)
Þorsteinn Magnússon (MÞ)
Lúðvík Már Matthíasson (Sjúkraþj.)
Kamilla Ósk Jensdóttir (Liðsstj.)
Armandas Leskys (AÞ)

Gul spjöld:
Hayden Colson ('15)
Ellie Coffield ('57)
Gylfi Tryggvason ('73)
Ása Björg Einarsdóttir ('82)
Sigríður Emma F. Jónsdóttir ('85)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@gummi_aa Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skýrslan: Hausinn kominn á Laugardalsvöll
Hvað réði úrslitum?
Valsliðið var bara talsvert betra í dag, eiginlega bara frá upphafi til enda. Þær hefðu hæglega getað unnið leikinn stærra. Það hafði klárlega mikil áhrif á leikinn að Grindavík/Njarðvík var búið að tryggja sig inn í efri hluta deildarinnar fyrir leikinn og það er bikarúrslitaleikur framundan eftir nokkra daga. Grindavík/Njarðvík hvíldi lykilmenn eftir því sem leið á leikinn og hausinn var farinn hálfa leiðina á Laugardalsvöll. Það verður þó ekki tekið af Val að þær spiluðu mjög vel í dag, líklega þeirra besti leikur í sumar.
Bestu leikmenn
1. Málfríður Anna Eiríksdóttir (Valur)
Stóð plikt sína gríðarlega vel í vörn Vals, hún og Lillý voru mjög sterkar í hjarta varnarinnar. Reynsla hennar verður mikilvæg í baráttunni sem er framundan.
2. Emma Hawkins (Valur)
Skoraði eitt gott mark og átti síðan mjög stóran þátt í sjálfsmarkinu sem Natasha skoraði. Stöðugt ógnandi fram á við fyrir Valsliðið.
Atvikið
Aukaspyrnumarkið sem Lillý skorar af einhverjum 25-30 metrum breytir leiknum. Valur fær aukna trú við það mark og náðu svo að klára leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Valur fer upp af botninum, upp úr fallsæti og liðið tekur með sér sjálfstraust inn í þá þrjá gríðarlega mikilvægu leiki sem eru framundan í fallbaráttunni. Grindavík/Njarðvík var búið að tryggja sig inn í efri hlutann fyrir leikinn og þessi úrslit hafa ekki áhrif á stöðu liðsins í deildinni.
Vondur dagur
Varnarleikur Grindavík/Njarðvík var á köflum vandræðalegur. Sigríður Emma F. Jónsdóttir hefur verið virkilega góð í sumar, en þetta var ekki alveg hennar dagur. Þá var Stephanie Bukovec mjög ósannfærandi í markinu og hefði getað gert betur í allavega tveimur af þeim mörkum sem Valur skorar.
Dómarinn - 5
Margrét Brynja, leikmaður Vals, átti að fá rautt spjald í seinni hálfleik og hefði það mögulega áhrif á leikinn, og hvað þá framhaldið. Annars þokkalegt, ekki mjög hár erfiðleikastuðull.
Byrjunarlið:
1. Tinna Brá Magnúsdóttir (m)
4. Helga Rut Einarsdóttir
5. Bryndís Eiríksdóttir
6. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir ('83)
7. Ísabella Sara Tryggvadóttir ('76)
8. Arnfríður Auður Arnarsdóttir ('76)
16. Margrét Brynja Kristinsdóttir ('68)
18. Málfríður Anna Eiríksdóttir (f)
21. Lillý Rut Hlynsdóttir
23. Emma Hawkins ('83)
28. Kolbrá Una Kristinsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
12. Esther Júlía Gustavsdóttir (m)
2. Sigrún Ísfold Valsdóttir ('83)
9. Sonja Björg Sigurðardóttir ('83)
13. Nadía Atladóttir ('76)
25. Glódís María Gunnarsdóttir ('68)
26. Ása Kristín Tryggvadóttir ('76)
34. Karítas Barkardóttir
36. Lísa Ingólfsdóttir
37. Freyja Kjartansdóttir
- Meðalaldur 18 ár

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson (Þ)
Hallgrímur Heimisson (AÞ)
Eiríkur Raphael Elvy (AÞ)
Emil Alexander Larsen (MÞ)
María Hjaltalín (Liðsstj.)
Jónas Breki Kristinsson (Leikgr.)
Helgi Freyr Þorsteinsson (Sjúkraþj.)
Kirian Elvira Acosta (Styrktarþj.)

Gul spjöld:
Margrét Brynja Kristinsdóttir ('62)
Bryndís Eiríksdóttir ('83)
Helga Rut Einarsdóttir ('90)

Rauð spjöld: