Fotbolti.net
Magnús Atlason
Lengjudeild karla - Umspil
JBÓ völlurinn
Njarðvík
Njarðvík
0 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Fyrir leik
Bestu varnarlið deildarinnar
Ef marka má tölfræðina er ekki hægt að búast við mörgum mörkum í dag. Þróttur hefur fengið á sig fæst mörk í deildinni, 25 talsins, en Njarðvík kemur þar á eftir með 29 mörk. Reykvíkingarnir hafa verið töluvert duglegri að skora, með 50 mörk skoruð gegn 38 hjá Njarðvík.
Fyrir leik
Viðureignir liðanna á tímabilinu
Liðin mættust í fyrstu umferðinni í Laugardalnum þegar heimamenn unnu 2-0 sigur á Njarðvík. Örn Bragi Hinriksson kom Þrótti yfir á 60. mínútu áður en Hlynur Þórhallsson innsyglaði sigurinn á 73. mínútu.



Njarðvíkingar svöruðu síðan fyrir sig í 12. umferðinni með 1-0 sigri á Þrótturum. Baldur Hannes Stefánsson fékk að sjá rautt spjald í fyrri hálfleik og Oumar Diouck skoraði svo sigurmarkið á 73. mínútu.

Fyrir leik
Þróttur
Þróttarar enduðu í öðru sæti deildarinnar með 43 stig, tveimur stigum frá Aftureldingu á toppnum og þremur stigum fyrir ofan Fylki í þriðja sæti. Þróttarar hafa alltaf verið meðal efstu liða í sumar og það var alltaf ljóst að þeir væru að fara að berjast um sæti í Bestu deildinni. Þróttarar enduðu tímabilið með fínum 2-0 útisigri á Vestra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Njarðvík
Njarðvíkingar enduðu í fimmta sæti deildarinnar með 38 stig, jafnir að stigum við HK en með örlítið lakari markatölu. Njarðvíkingar fóru brösuglega af stað, sóttu aðeins 8 stig í fyrstu 7 leikjum sínum en svo fóru úrslitin að falla þeim í hag og umspilssætið var svo gott sem tryggt þegar nokkrar umferðir voru eftir af tímabilinu. Þeir enduðu tímabilið með sterkum 2-1 sigri á deildarmeisturunum á þessum velli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna í dag. Honum til aðstoðar verða Kristján Már Ólafs og Bryngeir Valdimarsson og fjórði dómari leiksins verður Stefán Ragnar Guðlaugsson. Dómaraeftirlitsmaður dagsins verður Einar Örn Daníelsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Umspilið
Þannig að allt sé skýrt:

Liðin sem enduðu í öðru sæti niður í fimmta sæti Lengjudeildarinnar eiga möguleika á að spila í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Annað sætið (Þróttur) keppir á móti fimmta sætinu (Njarðvík) og þriðja sætið (Fylkir) keppir á móti liðinu sem endaði í fjórða sæti (HK).

Liðið sem endaði ofar í deildinni í báðum einvígunum spilar seinni leikinn á heimavelli. Sigurvegarar beggja einvíganna mætast svo í hreinum úrslitaleik á Laugardalsvelli laugardaginn 19. september um sæti í deild þeirra bestu.

9. september
Njarðvík - Þróttur (17:00)
HK - Fylkir (19:15)
13. september
Þróttur - Njarðvík (16:15)
Fylkir - HK (19:15)
19. september
Úrslitaleikur (16:00)
Fyrir leik
Umspilið að hefjast!
Komiði sæl kæru lesendur og verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu beint frá JBÓ vellinum þar sem Njarðvík tekur á móti Þrótti Reykjavík.

Mynd: UMFN

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.