Fotbolti.net
08.09.26 - 10:20
Kári Snorrason

Spennandi leikmenn til að fylgjast með í umspilinu í Lengjudeildinni

Aron Snær Ingason í baráttunni við Ólaf Örn, markvörð HK.

Aron Snær Ingason í baráttunni við Ólaf Örn, markvörð HK.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Umspil Lengjudeildarinnar hefst á morgun þegar HK tekur á móti Fylki og Njarðvík fær Þrótt í heimsókn. Síðari undanúrslitaleikirnir fara fram næstkomandi sunnudag.

Sigurvegarar undanúrslitanna mætast síðan í hreinum úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni á Laugardalsvelli laugardaginn 19. september.

Af því tilefni hefur dómnefnd Fótbolta.net valið fjóra spennandi leikmenn, einn úr hverju liði, sem vert er að fylgjast sérstaklega með í umspilinu.
Aron Snær Ingason - Þróttur R.
Það hefur farið mikið fyrir Aroni á tímabilinu og er hann markahæsti leikmaður Þróttar. Aron, sem er fæddur árið 2001, er stæðilegur kantmaður sem hefur skorað ellefu mörk í sumar.

Samningur hans við Þrótt rennur út eftir tímabil og er hann sterklega orðaður við Val. Hlíðarendafélagið reyndi við Aron í sumarglugganum en Þróttur hafnaði tilboði Vals.

Fleiri leikmenn úr Þrótti til að fylgjast með; Örn Bragi Hinriksson (2007), Hlynur Þórhallsson (2005), Brynjar Gautur Harðarson (2004)

Guðmundur Tyrfingsson - Fylkir
Annar leikmaður sem verður samningslaus í vetur og mörg augu eru á. Guðmundur er oft kallaður rútubílstjórinn og hefur hann farið mikinn í sumar, skorað alls 13 mörk í Lengjudeildinni.

Hann verður samningslaus eftir tímabil og var hann, ásamt Aroni Snæ, á lista Fótbolta.net yfir samningslausa leikmenn sem verða eftirsóttir í vetur.

Guðmundur hefur áður spilað í Bestu deildinni með Fylki og ÍA en hefur þó ekki náð að sýna sitt besta í þeirri deild.

Fleiri leikmenn úr Fylki til að fylgjast með; Theódór Ingi Óskarsson (2006) , Tumi Fannar Gunnarsson (2005), Bjarki Steinsen Arnarsson (2005)

Karl Ágúst Karlsson - HK
Karl Ágúst er kantmaður sem er fæddur árið 2007. Hann hefur verið lykilmaður í liði HK á tímabilinu og skorað sex mörk.

Þrátt fyrir ungan aldur er Karl að nálgast 100 meistaraflokksleiki. Hann byrjaði að spila fyrir meistaraflokk HK árið 2022, þá aðeins fimmtán ára gamall.

Hann hefur verið orðaður við félög í Bestu deildinni og eru Skagamenn með augastað á þessum nítján ára leikmanni.

Fleiri leikmenn úr HK til að fylgjast með; Þorvaldur Smári Jónsson (2008), Ólafur Örn Ásgeirsson (m) (2003), Tumi Þorvarsson (2005), Atli Þór Gunnarsson (2006)

Viktor Nói Vidarsson - Njarðvík
Viktor er nítján ára gamall miðjumaður sem var lánaður til Njarðvíkur frá FH í sumarglugganum. Hann kom við sögu í tíu leikjum í Bestu deildinni með Fimleikafélaginu á tímabilinu og hefur komið sterkur inn í lið Njarðvíkinga.

Hann skoraði í lokaumferðinni gegn Lengjudeildarmeisturum Aftureldingar.

Viktor er sonur Arnars Þórs Viðarssonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara, og á hann að baki átta leiki fyrir íslenska U19 landsliðið en þar áður hafði hann leikið með unglingalandsliðum Belgíu.

Fleiri leikmenn úr Njarðvík til að fylgjast með; Stefán Gísli Stefánsson (2006) , Freysteinn Ingi Guðnason (2007), Hrafn Guðmundsson (2006)

miðvikudagur 9. september
Lengjudeild karla - Umspil
17:00 Njarðvík-Þróttur R. (JBÓ völlurinn)
19:15 HK-Fylkir (Kórinn)

sunnudagur 13. september
Lengjudeild karla - Umspil
14:00 Fylkir-HK (tekk VÖLLURINN)
16:15 Þróttur R.-Njarðvík (PEPSI völlurinn)
Örn Bragi Hinriksson er spennandi leikmaður.

Örn Bragi Hinriksson er spennandi leikmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oft kallaður rútubílstjórinn.

Oft kallaður rútubílstjórinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Theódór Ingi hefur verið í stóru hlutverki hjá Fylki.

Theódór Ingi hefur verið í stóru hlutverki hjá Fylki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Með mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur.

Með mikla reynslu þrátt fyrir ungan aldur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Nói er í Njarðvík á láni frá FH.

Viktor Nói er í Njarðvík á láni frá FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.