SKÝRSLAN: Markaregn í Eyjum
Hvað réði úrslitum?
ÍBV var frekar beittari í sínum aðgerðum sérstaklega þegar leið á leikinn. Svöruðu svo marki Þróttar með þremur mörkum. Þróttur vann sig svo aftur inn í leikinn og voru nálægt því að jafna áður en ÍBV skoraði fjórða markið. Þróttur skoruðu svo sárabótamark í lokin en það dugði ekki til.
Bestu leikmenn
1. Fridrikka Marie Clementsen
Var hrikalega öflug inn á miðsvæðinu hjá ÍBV í dag. Átti frábæra sendingu á Olgu í markinu sem kom ÍBV í 2-1 og kláraði svo mjög vel í þriðja marki liðsins.
2. Olga Sevcova
Frábær í dag. Skoraði eitt mark í kvöld og leggur upp eitt og er algjör lykilkona í sóknarleik ÍBV. Ágústa María Valtýsdóttir átti einnig góðan leik, jafnaði leikinn fyrir ÍBV upp á eigin spýtur og átti svo þátt í þriðja markinu.
Atvikið
Skotið hjá Bríeti Fjólu Bjarnadóttur sem hafnaði í stönginni á 77. mínútu leiksins sem hefði jafnað leikinn fyrir Þrótt. ÍBV skora svo fjórða markið sitt aðeins þremur mínútum síðar.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV er í góðri stöðu í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig en nokkuð langt frá toppliðunum Breiðabliki og FH. Þróttur er í fimmta sæti með 23 stig.
Vondur dagur
María Eva Eyjólfsdóttir átti ekkert sérstakan dag hjá Þrótti. Missti boltann klaufalega þegar Ágústa María Valtýsdóttir skoraði jöfnunarmark ÍBV og var svo tekin útaf í hálfleik. Guðný Geirsdóttir gerði sig reyndar líka seka um slæm mistök í öðru marki Þróttar þegar hún hitti ekki boltann en það koma ekki að sök í lok leiks.
Dómarinn - 7
Fínasta frammistaða hjá Ásmundi. Lítið um vafaatriði og hef ekkert út hann að setja.



