SKÝRSLAN: Stórtap á Eikarvellinum
Hvað réði úrslitum?
Pólska liðið nýtti sín færi einfaldlega mun betur. Þegar þær komust í góðar stöður virkuðu þær einhvern veginn alltaf líklegar til þess að ná skoti á markið. Blikar komust í fullt af ákjósanlegum stöðum en vantaði oft aðeins upp á þegar komið var á síðasta þriðjung.
Bestu leikmenn
1. Klaudia Milek (Czarni)
Skoraði fjögur mörk í dag og var sífellt ógnandi. Varnarmenn Breiðabliks réðu ekkert við hana.
2. Karlina Miksone (Czarni)
Var stórkostleg á miðjunni hjá Czarni og áttu leikmenn Breiðabliks í stökustu vandræðum með hana. Skoraði eitt mark og lagði upp allavega eitt annað. Frábær leikur hjá henni.
Atvikið
Markið sem Milek skoraði á 50. mínútu.
Blikar höfðu byrjað seinni hálfleikinn vel en fengu þetta mark svo í andlitið og staðan orðin 1-5.
Eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda.
Blikar höfðu byrjað seinni hálfleikinn vel en fengu þetta mark svo í andlitið og staðan orðin 1-5.
Eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik fer með 2-6 tap á bakinu til Póllands. Mjög erfið staða.
Vondur dagur
Set það á varnarlínu Blika. Þær voru í bullandi veseni með að spila út frá marki og gáfu gestunum mark með hræðilegri spyrnu frá Taylor Kane.
Dómarinn - 5
Mér fannst línan oft á tíðum mjög skrýtin og var flautað á mikið af óþarfa brotum.
Einnig fékk Líf rautt spjald sem mér fannst mjög soft.
Einnig fékk Líf rautt spjald sem mér fannst mjög soft.


