SKÝRSLAN: Jafntefli í fallslagnum
Hvað réði úrslitum?
Vilji beggja liða til að fá eitthvað útúr þessum leik. Tap hefði verið skelfing fyrir bæði lið og það sást að hvorugt liðið vildi tapa. Bæði lið vörðust vel, sérstaklega í seinni hálfleik og sáu til þess að mörkin urðu ekki fleiri.
Bestu leikmenn
1. Telma Ívarsdóttir (Víkingur)
Stóð sig frábærlega í rammanum í dag. Skotin dundu á henni en hún stóðst pressuna og varði einu sinni frábærlega í slánna. Það var lítið sem hún gat gert í markinu sem Víkingar fengu á sig.
2. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir (Valur)
Hrikalega öflug á miðsvæðinu í dag. Átti fjölmargar baneitraðar sendingar inn fyrir og var erfið viðureignar fyrir Víkinga.
Atvikið
Mér fannst upphafsflautið hreinlega vera atvikið af því að leikurinn byrjaði strax af krafti. Hann var hraður og opinn með nóg af færum báðum meginn. Skemmtilegur fyrir augað.
Ég get svo eiginlega ekki litið framhjá gripinu hjá Einari á 63. mínútu eftir hnitmiðaða sendingu Þórðs dómara.
Ég get svo eiginlega ekki litið framhjá gripinu hjá Einari á 63. mínútu eftir hnitmiðaða sendingu Þórðs dómara.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur er á leiðinni í hreinan úrslitaleik við Þór/KA um öruggt sæti í deildinni á meðan Valur þarf að treysta á jafntefli í þeim leik og vinna Fram, sem tryggðu áframhaldandi veru sína í Bestu deildinni nú í kvöld.
Vondur dagur
Sóknarmenn beggja liða hefðu mátt vera hugmyndaríkari á síðasta þriðjung. Það gekk lítið að koma sér í dauðafæri, sérstaklega í síðari hálfleik.
Dómarinn - 8
Ekkert út á Þórð að setja. Hann negldi þær ákvarðanir sem þurfti að taka og hafði stjórn á leiknum.



