SKÝRSLAN: Fram áfram í deild þeirra bestu á næsta ári
Hvað réði úrslitum?
Fram byrjaði þennan leik af miklum krafti og náðu inn tveimur mörkum og dugði það þeim í dag.
Bestu leikmenn
1. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
Virkilega góð í dag, ef eitthvað gerðist sóknarlega hjá Fram þá var hún partur af því. Hún skoraði fyrsta markið og átti stóran þátt í seinna markinu.
2. Brookelynn Paige Entz
Brookelynn var mjög öflug í dag og lét Þór/KA hafa mikið fyrir sér. Hún lagði upp fyrsta markið.
Atvikið
2-0 markið hjá Fram reyndist mjög mikilvægt og það var bara alvöru baráttu mark og tryggði þeim sæti í Bestu deildinni á næsta ári.
Hvað þýða úrslitin?
Fram heldur sæti sínu í deildinni á meðan Þór/KA eru að fara í leik í næstu umferð sem er virkilega mikilvægur.
Vondur dagur
Það átti enginn eitthvað slæman dag í dag en ef ég þyrfti að setja það á einhvern þá myndi ég gefa Alessandra Dorothy Augur það, mér fannst hún geta gert betur í allavega seinna markinu en hún klárar leikinn á einum fæti sýndist mér og það sýndi karakter hjá henni.
Dómarinn - 9
Var mjög flottur í dag, dæmdi víti sem var hárrétt og stjórnaði leiknum mjög vel.



