SKÝRSLAN: Reykjavíkurstórliðin fallin en Partý rúta norður
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum hér í kvöld er ekki hægt að segja neitt annað en seiglan í Þórs/KA konum! Þær mættu í leikinn þéttar og fastar fyrir þar sem megin áherslan var á varnarleikinn. Enda náðu Víkingskonur ekki að skapa sér mikið. Þeirra helstu færi voru langskot utan af velli. Þær treystu á að mörkin myndu koma og mark eftir fast leikatriði og annað eftir skyndisókn litu dagsins ljós þegar lítið var eftir að leiknum.
Bestu leikmenn
1. María Dögg Jóhannesdóttir
Ég verð að gefa minni konu þetta í kvöld! Markið hennar létti af gríðarlegri pressu af Þórs/KA liðinu og þær komust á bragðið með því. Þá var hún einnig gríðarlega mikilvæg varnarlega og kom með flotta bolta fram á við!
2. Arna Sif Ásgrímsdóttir
Fyrirliðinn á líka skilið að vera maður leiksins! Er náttúrlega bara eins og herforingi í hjarta varnarinnar þar sem hún stýrir sínu liði og fleygir sér fyrir alla bolta! Það vilja allir hafa eins Örnu Sif í sínu liði!
Atvikið
Ég verð að setja þetta á fyrsta markið! Fyrir það hafði Valur tvöfaldað forystu sína í á Lambhagavellinum og allt leit út fyrir það að bæði Þór/KA og Víkingur væru að falla. María Dögg hins vegar ætlaði ekki að falla niður úr bestu deildinni annað árið í röð og þvílikt baráttumark sem hún skoraði og kom Þór/KA yfir!
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það hreinlega að Þór/KA sigrar þennan leik og tryggir sæti sitt að ári í deild þeirra bestu. Víkingur og Valur hins vegar eru fallin niður í lengjudeildina!
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir alla Víkinga, það er aldrei gott að falla og sjá liðið sitt falla. Annars engin sem átti vondan dag spilalega séð.
Dómarinn - 6
Þetta var bara ágætis dagur hjá dómarateyminu í dag, spurning með hendi inn í teig hjá báðum liðum en það núllaðist út.



