Besta kvenna - Efri hluti
Breiðablik
LL 5
4
Þróttur R.
Besta kvenna - Efri hluti
FH
LL 5
0
ÍBV
FH
5
0
ÍBV
Nia Raisa Christopher '5 1-0
Nia Raisa Christopher '7 2-0
Helena Maree Errington '47 3-0
Nia Raisa Christopher '59 4-0
Jón Ólafur Daníelsson '71
Nia Raisa Christopher '92 5-0
04.10.2026  -  14:00
Kaplakrikavöllur
Besta kvenna - Efri hluti
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Maður leiksins: Nia Raisa Christopher
Byrjunarlið:
1. Aldís Guðlaugsdóttir (m)
2. Birna Kristín Björnsdóttir
5. Mackenzie Elyze Smith ('35)
7. Nia Raisa Christopher
8. Helena Maree Errington
11. Thelma Lóa Hermannsdóttir ('60)
13. Deja Jaylyn Sandoval
15. Hrönn Haraldsdóttir ('60)
29. Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir (f) ('77)
37. Jónína Linnet
41. Ingibjörg Magnúsdóttir ('77)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Steinunn Erna Birkisdóttir (m)
3. Anna Heiða Óskarsdóttir ('35)
19. Hildur Katrín Snorradóttir ('60)
22. Freyja Rún Pálmadóttir
23. Elín Björg Norðfjörð Símonardóttir ('77)
33. Ragnheiður Th. Skúladóttir
36. Unnur Thorarensen Skúladóttir ('77)
39. Eva Marín Sæþórsdóttir
42. Hafrún Birna Helgadóttir ('60)
- Meðalaldur 17 ár

Liðsstjórn:
Hlynur Svan Eiríksson (Þ)
Guðni Eiríksson (Þ)
Harpa Finnsdóttir (Sjúkraþj.)
Valur Elli Valsson (Liðsstj.)
Arnar Sigþórsson (Leikgr.)
Dagur Óli Davíðsson (MÞ)
Brynjar Sigþórsson (AÞ)
Hjörtur Hinriksson (Styrktarþj.)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Skýrslan
@SEinarsson Sverrir Örn Einarsson
Skýrslan: Ferna og fjör í Firðinum
Hvað réði úrslitum?
Heimakonur voru einfaldlega miklu skarpari í öllum sínum aðgerðum. Lið ÍBV virkaði á löngum köflum hálf andlaust og leikmenn eins og þær gætu ekki beðið eftir því að klára þetta mót. Það nýttu heimakonur sér til hins ítrasta og hreinlega keyrðu yfir lið ÍBV.
Bestu leikmenn
1. Nia Raisa Christopher
Fjögur mörk og gjörsamlega frábær! Mætt á réttum tíma á rétta staði og uppskar eftir því. Hefði alveg getað bætt við einu marki til þegar hún átti frábært skot í slánna.
2. Helena Maree Errington
Fjórar stoðsendingar og eitt mark. Það kallar maður að skila góðu dagsverki. Frábær dagur hjá henni og hún gerir sterkt tilkall í að vera besti leikmaður leiksins líkt og Nia. Það var í það minnsta ekki auðvelt verk að velja á milli þeirra.
Atvikið
Það eru svo sem engin stór atvik sem sitja í minninu eftir þennan leik. Nema ef vera skyldi blóðug barátta í fyrri hálfleik þegar Avery Mae Vanderven og Mackenzie Elyze Smith skullu saman í baráttu um boltann og fengu báðar vænan skurð.
Hvað þýða úrslitin?
FH eltir Breiðablik á toppi deildarinnar og situr í 2.sætinu þremur stigum á eftir Breiðablik. ÍBV áfram í 3.sætinu og siglir þar lygnan sjó.
Vondur dagur
Varnarleikur ÍBV var á köflum ansi brothættur í dag og því fór sem fór. Vondan dag hlýtur því Jón Ólafur Daníelsson þjálfari liðsins. Ekki nóg með það að það sé hrikalegt að horfa á liðið sitt tapa 5-0 heldur fékk hann sömuleiðis að líta rauða spjaldið. En hann lét þá einhver orð falla sem dómurum leiksins fannst nóg um þegar hann kvartaði yfir því að FH hefði verið of lengi að taka hornspyrnu.
Dómarinn - 6
ÍBV átti að öllum líkindum að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar boltinn fór i hönd Mackenzie í teig FH. Að öðru leyti rekur mig ekki minni í að Twana hafa klikkað.
Byrjunarlið:
30. Guðný Geirsdóttir (m)
5. Avery Mae Vanderven (f) ('35)
6. Jessica Jean Hinton
10. Kristín Klara Óskarsdóttir ('65)
11. Helena Hekla Hlynsdóttir
13. Sandra Voitane
14. Olga Sevcova
15. Magdalena Jónasdóttir ('65)
19. Erla Hrönn Unnarsdóttir ('65)
20. Allison Patricia Clark
25. Ágústa María Valtýsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Ísey María Örvarsdóttir (m)
3. Hrafnhildur K. Kristleifsdóttir
7. Edda Dögg Sindradóttir
8. Ísafold Dögun Örvarsdóttir
9. Milena Mihaela Patru
17. Viktorija Zaicikova ('65)
18. Eydís María Waagfjörð ('65)
27. Fridrikka Marie Clementsen ('35)
35. Allison Grace Lowrey ('65)
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Jón Ólafur Daníelsson (Þ)
Júlíana Sveinsdóttir (Liðsstj.)
Filipe Andre Alexandre Machado (MÞ)
Sigríður Lára Garðarsdóttir (Styrktarþj.)
Guðrún Marín Viðarsdóttir (Sjúkraþj.)
Richard Matthew Goffe (AÞ)
Óskar Jósúason (Forráðam.)

Gul spjöld:
Sandra Voitane ('77)

Rauð spjöld:
Jón Ólafur Daníelsson ('71)