Leik lokið!
0-0 jafntefli niðurstaðan í Tallinn. Annað jafnteflið sem við gerum við þá í þessum glugga sem verður að teljast vonbrigði. Viðtöl frá Tallinn koma inn seinna í kvöld
90. mín
+2
Ísland heldur áfram að sækja og fá tækifæri til að skora en allt kemur fyrir ekki og Eistar fá að lokum markspyrnu.
90. mín
+1
Ísland komið í fína stöðu inn á teig Eistanna, Ísak Bergmann reynir að chippa boltanum fyrir markið en Eistarnir koma boltanum frá.
90. mín
Tvær mínútur í uppbót.
89. mín
Logi tekur spyrnuna inn á teiginn þar sem Andri Lucas nær skallanum en kemur honum ekki á markið og Eistarnir þrusa frá.
88. mín
Hár bolti inn á teiginn sem er ætlaður Orra en Eistar skalla aftur fyrir í horn.
88. mín
Aukaspyrna sem Ísland á vinstra megin á vellinum sem Ísak Bergmann tekur en hún er skölluð frá af fremsta varnarmanni.
87. mín
Logi tekur hornið en það verður ekkert úr því.
86. mín
Hvaða Cryptonite eru Eistar fyrir okkur?
— Hilmar Jökull (@HilmarJokull) October 6, 2026
Við erum eins og Superman með gleraugu hérna í seinni hálfleik.
86. mín
Kraftur, gleði og samvinna eru kjörorð eistneska liðsins
Eistarnir hafa heillað mig.
— Max Koala (@Maggihodd) October 6, 2026
86. mín
Guðlaugur Victor með fyrirgjöf sem fer í varnarmann og aftur fyrir.
84. mín
Gult spjald
Michael Schjønning-Larsen
Lætur aðstoðadómarann heyra það af því hann fékk ekki innkast.83. mín
Logi tekur hornið inn á markteiginn þar sem Eistar skalla frá. Ísland fær boltann aftur og Hákon er kominn í skotstöðu, ætlar að krulla hann í fjær en skotið er laust og Igonen er í litlum vandræðum með það.
82. mín
Ísland nær góðu spili en síðasta sendingin frá Brynjólfi sem ætlar ða finna Orra út í teiginn er ekki góð og varnarmenn Eista komast inn í hana. Ísland heldur sókninni áfram og fær horn.
80. mín
Ísak tekur spyrnuna á nær en hún fer ekki yfir fremsta mann.
79. mín
Ísak Bergmann reynir að þræða Orra í gegn en varnarmenn Eista komast inn í sendinguna og Ísland á horn.
76. mín
Íslenska liðinu er fyrirmunað að hitta liðsfélaga þessa stundina.
75. mín
Aftur er Stefán Teitur að stíga vel inn í, núna eftir vonda sendingu til baka frá Gulla Victori.
72. mín
Robi Saarma keyrir í 1v1 á Stefán Teit en Stefán gerir frábærlega, stígur inn á hárréttum tíma og nær að setja boltann aftur í Saarma og fær markspyrnu.
70. mín
5987 áhorfendur á leiknum
68. mín
InnMaksimilian Skvortsov
ÚtPatrik Kristal
67. mín
Inn Brynjólfur Willumsson
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
67. mín
InnLogi Tómasson
ÚtHörður Björgvin Magnússon
Logi kemur í vinstri bakvörðinn og Daníel Leó í miðvörðinn.
66. mín
Frábær snúningur hjá Mikael inn á teignum en snertingin eftir hann er aðeins of þung sem verður til þess að hann nær ekki skoti og varnarmaður kemst í boltann.
64. mín
Liturinn á Íslandi vekur athygli
Íslenska liðið er eins og aligæsir í þessum búningum
— Stígur Helgason (@Stigurh) October 6, 2026
63. mín
Hákon Rafn Valdmarsson enn og aftur
Eistarnir eru komin í dauðafæri inná teignum en Hákon er eins og köttur og stekkur út á boltann í teignum. Enn og aftur sannar Hákon mikilvægi sitt á milli stanganna.
61. mín
InnMichael Schjønning-Larsen
ÚtMattias Mannilaan
61. mín
InnKarel Mustmaa
ÚtJoseph Saliste
61. mín
InnKristofer Kait
ÚtKevor Palumets
60. mín
Gylfi tekur góða spyrnu inn á teiginn sem Guðlaugur VIctor setur fyrir markið en þar er enginn sem nær til hans.
59. mín
Gott spil a milli Daníels, Mikaels og Andra verður til þess að Ísland fær aukaspyrnu á fínasta stað.
58. mín
Það gengur illa hjá íslenska liðinu að tengja saman sendingar þessa stundina.
54. mín
Hér má sjá hvað sérfræðingarnir sögðu um fyrri hálfleik
53. mín
Ágætis spil Íslands inná teig Eistanna en ekkert verður úr því.
52. mín
Robi Saarma gerir vel að bera boltann inn á teiginn og hleður í skot en það er beint á Hákon Rafn.
50. mín
Ísland á aukaspyrnu úti á hægri kantinu sem Gylfi tekur inn á teiginn. Eistar skalla frá en íslenska liðið heldur boltanums em berst til Gulla Victors vinstra megin fyrir utan teiginn. Hann lætur vaða en skotið í varnarmann og Eistarnir ná að hreinsa burt.
48. mín
Ísland fær aukaspyrnu úti á velli sem Gylfi tekur inn á teiginn en Eistarnir skalla frá.
46. mín
Eistarnir byrja með boltann í seinni.
45. mín
Allt í lagi, ekki gott
Allt i lagi en ekki gott. Svolítið sundurslitnir á köflum, frekar orkulitlir og fyrirséðir. Vonandi braggast þetta í seinni.
— Guðmundur Hilmarsson (@GummiHilmars) October 6, 2026
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikstölfræði:
MEÐ BOLTANN: 40% - 60%
MARKTILRAUNIR: 9-4
SKOT Á MARK: 2-0
HORN: 3-3
SENDINGAR: 201-302
MARKTILRAUNIR: 9-4
SKOT Á MARK: 2-0
HORN: 3-3
SENDINGAR: 201-302
45. mín
Hálfleikur
Þá flautar David Dickinson til hálfleiks í Eistlandi í leik sem Ísland eru heppnir að vera ekki lentir undir í. Eistar hafa fegnið ótal góðar stöður, töluvert fleiri en íslenska liðið. Ísland mikið að reyna langa bolta fram sem hafa ekki verið að ganga. 0-0 í hálfleik og vonandi fáum við að sjá eitthvað meira frá íslenska liðinu í seinni hálfleik.
45. mín
+1
Mattias Mannilaan komin í frábært færi eftir að Eistarnir spila í gegnum okkur eins og prime Barca en Hákon Rafn gerir frábærlega í markinu og stekkur á boltann áður en Mannilaan nær að koma boltanum á markið.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
44. mín
Hákon Arnar og Markus Poom fá tiltal eftir einhver slagsmál úti á velli.
42. mín
Á einhvern ótrúlegan hátt er Rasmus Peetson kominn í fínasta færi en skotið hans er beint á Hákon. Eistar halda í boltann og ná öðru skoti en það er hátt yfir markið.
37. mín
Robi Saarma í góðu skotfæri vinstra megin fyrir utan teiginn og þrumar á markið en skotið er yfir.
35. mín
Spyrnan frá Gylfa kemur á fjær þar sem Hörður Björgvin nær skalla en hann stoppar á varnarmanni. Ísland heldur sókninni áfram án þess að skapa neina alvöru hættu.m
35. mín
Andri með snyrtiega hælsendingu inn fyrir á Hákon sem reynir að koma boltanum fyrir markið en varnarmaður Eista kemst inn í fyrirgjöfina og Ísland á horn.
33. mín
Spyrnan frá Poom kemur á nær þar sem Mannilaan kemur á ferðinni en skallinn hans er yfir markið.
32. mín
Eistarnir halda áfram að sækja og uppskera horn.
31. mín
Eistarnir fá aukaspyrnu úti vinstra megin sem Palumets tekur. Spyrnan er léleg en hreinsunin frá Íslandi er lélegri, Eistarnir halda boltanum og koma honum fyrir markið á Robi Saarma sem á lélegustu tilþrif sóknarinnar og hleypur eiginlega yfir boltann og setur hann afturfyrir.
30. mín
"UEFA mafia" heyrist í stúkunni.
28. mín
Eistarnir brjálaðir að fá ekki neitt fyrir sinn snúð eftir tæklingu frá Ísaki rétt fyrir utan teiginn. Skotinn er fastur á sínu og Eistar fá innkast.
27. mín
Misskilingur á milli Harðar Björgvins og Hákons í markinu sem hefði getað endað með ósköpum en Hörður bjargar því fyrir horn.
26. mín
Gult spjald
Daníel Leó Grétarsson
Neglir Rasmus Peetson hressilega niður.23. mín
Frábær skipting frá Stefáni Teit yfir á Mikael Neville sem gerir vel í að kassa hann niður. Hann ber boltann aðeins inn á teiginn áður en hann reynir að finna Andra Lucas inn fyrir en boltinn er aðeins of hár og fer yfir hann.
22. mín
Orri með góðan bolta fyrir markið en Andra vantar þrjá sentimetra í viðbót til að ná að stanga hann í markið.
20. mín
Markus Poom er kominn inn á teiginn, boltinn skoppar fyrir framan hann og hann lætur bara vaða. Skotið er fram hjá sem betur fer. Allt of margar stöður sem Eistarnir eru að fá í upphafi þessa leiks.
18. mín
Ágætt spil hjá eistneska liðinu úti vinstra megin sem endar með fyrirgjöf en þeir koma ekki boltanum á markið.
16. mín
Spyrnan kemur inn á markteiginn, mjög nálægt markinu, og Hákon kýlir boltann í burtu.
16. mín
Eistar fá kjörið tækifæri að sækja á einn varnarmann Íslands en aftur eru þeir ekkert eðlilega lengi að athafna sig og allt íslenska liðið kemst fyrir aftan boltann. Eistar uppskera þó horn.
14. mín
Aftur er það Gylfi sem tekur spyrnuna og aftur er það Andri Lucas en skallinn hans er ekki nægilega góður og fer í varnarmann.
14. mín
Frábær pressa frá Gulla Victori endar á því að Ísland fær horn.
12. mín
Þeir verja á línu
Gylfi tekur hornið og boltinn er fullkominn inn á markteiginn. Sýnist það vera Andri Lucas sem nær boltanum á markið en Eistarnir verja á línu. Leikmenn Íslands vlija meina að boltinn hafi náð yfir línuna en svo virðist ekki vera.
12. mín
Fyrsta horn Íslands í leiknum.
9. mín
Frábær sending inn fyrir frá Kristal finnur Peetson, hann nær boltanum á markið í fyrsta, í tána á Daníel Leó og boltinn virðist vera á leiðinni í fjær en Hákon ver frábærlega og Eistar eiga horn.
Það munar svo engu að þeir nái að búa til hættu úr horninu en Ísland kemur boltanum frá.
Það munar svo engu að þeir nái að búa til hættu úr horninu en Ísland kemur boltanum frá.
8. mín
Mikael Anderson í fínu skotfæri og lætur vaða en skotið er langt fram hjá.
7. mín
Fínasta fyrirgjöf frá vinstri sem er svo nálægt því að finna ennið á Andra Lucas en er aðeins of aftarlega. Boltinn berst til Orra sem reynir að koma honum aftur fyrir á Hákon en Eistarnir komast inn í sendinguna.
6. mín
Ísland að bjóða hættunni heim hér til að byrja með. Daníel Leó kemst inn í fyrirggjöf á síðustu stundu.
3. mín
Vond þversending verður til þess að Eistarnir geta sótt hratt en þeir eru mjög lengi að athafna sig og Daníel Leó nær góðri tæklingu til að koma hættunni frá.
2. mín
Orri fær háan bolta inn fyrir en Kuusk nær til hans. Orri vill meina að Kuusk hafi tekið boltann niður með höndinni en dómarinn hristir bara hausinn
1. mín
Leikur hafinn
Ísland byrjar með boltann
Fyrir leik
Fimm breytingar og Daníel Leó í bakverði

Fyrir leik
Arnar elskar tölfræði og var spurður út í tölfræðina úr síðasta leik
Fyrir leik
Ekki gert ráð fyrir miklum áhorfendafjölda
Fyrir leik
Mikael Neville kom frábærlega inn í liðið í síðasta leik
Fyrir leik
Ísland er búið að halda hreinu tvö leiki í röð
Fyrir leik
Arnar segir Eistana fulla sjálfstrausts
Fyrir leik
Dómarateymið
Dómarateymið í kvöld er skoskt eins og það leggur sig. David Dickinson er með flautuna og David McGeachie og Jonathan Bell verða honum til halds og trausts. Lloyd Wilson sér um skiltið á meðan Kevin Clancy og Christopher Graham sjá um vídjódómgæslu. 

Fyrir leik
Fjórði leikurinn í glugganum
Ísland hefur þegar spilað þrjá leiki í þessum glugga og hafa sótt sjö stig.
Fyrsti leikurinn fór fram á Laugardalsvelli gegn Eistlandi seint í síðasta mánuði. Leikar enduðu 1-1 en mark Íslands skoraði Andri Lucas Guðjohnsen. Úrslitin voru mikil vonbrigði og tók íslenska þjóðin heldur betur ekki vel í niðurstöðuna enda er eistneska liðið það 127. á heimslistanum á meðan við sitjum í því 74.
Næst var haldið til Lúxemborg þar sem mikil pressa var á liðinu að sína betri frammistöðu og sækja úrslit. Liðið stóðst pressuna og gott betur en það og unnu feikilega öruggan 0-3 sigur. Aftur var Andri Lucas á ferðinni en Orri Steinn Óskarsson og Guðlaugur Victor Pálsson náðu einnig að koma boltanum í netið.
Eftir góða frammistöðu í Lúx hélt liðið aftur heim á klakann þar sem þeir tóku á móti Búlgaríu. Aftur mættu þeir vel til leiks og unnu annan 3-0 sigur, Orri Steinn Óskarsson með tvö og Mikael Egill Ellertsson með eitt.
Þessi úrslit þýða að Ísland situr á toppi riðilsins og sigur gegn Eistum í dag fer ansi langt með það að tryggja sigur í riðlinum sem gefur Íslandi sæti í B-deild Þjóðardeildarinnar.
Fyrsti leikurinn fór fram á Laugardalsvelli gegn Eistlandi seint í síðasta mánuði. Leikar enduðu 1-1 en mark Íslands skoraði Andri Lucas Guðjohnsen. Úrslitin voru mikil vonbrigði og tók íslenska þjóðin heldur betur ekki vel í niðurstöðuna enda er eistneska liðið það 127. á heimslistanum á meðan við sitjum í því 74.
Næst var haldið til Lúxemborg þar sem mikil pressa var á liðinu að sína betri frammistöðu og sækja úrslit. Liðið stóðst pressuna og gott betur en það og unnu feikilega öruggan 0-3 sigur. Aftur var Andri Lucas á ferðinni en Orri Steinn Óskarsson og Guðlaugur Victor Pálsson náðu einnig að koma boltanum í netið.
Eftir góða frammistöðu í Lúx hélt liðið aftur heim á klakann þar sem þeir tóku á móti Búlgaríu. Aftur mættu þeir vel til leiks og unnu annan 3-0 sigur, Orri Steinn Óskarsson með tvö og Mikael Egill Ellertsson með eitt.
Þessi úrslit þýða að Ísland situr á toppi riðilsins og sigur gegn Eistum í dag fer ansi langt með það að tryggja sigur í riðlinum sem gefur Íslandi sæti í B-deild Þjóðardeildarinnar.

Fyrir leik
Góða völdið kæru lesendur
Verið velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu beint frá Tallinn í Eistlandi. Íslenska liðið mætir því eistneska í lokaleik þessa glugga klukkan 18:45









