Fotbolti.net
06.10.26 - 19:52
Brynjar Ingi Erluson

Ekki nógu ánægðir með fyrri hálfleikinn - „Pínu vonbrigði“

Ekki nógu ánægðir með fyrri hálfleikinn - „Pínu vonbrigði“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Kári Árnason og Lárus Orri Sigurðsson ræddu um fyrri hálfleik Eistlands og Íslands í settinu á Sýn í kvöld, en staðan er markalaus.
Lestu um leikinn: Eistland 0 - 0 Ísland
Íslenska liðið hefur ekki alveg verið upp á sitt besta í leiknum og var Lárus Orri fyrir vonbrigðum með frammistöðuna.

„Pínu vonbrigði. Mér finnst við ekki nógu grimmir og vörnin ekki að stíga nógu hátt í pressunni. Hörður, það er ekki nóg stjórnun í honum, skil ekki hvað Guðlaugur Victor er að gera sóknarlega séð. Hann stendur þarna úti og skil ekki hvað hans hlutverk er í rauninni. Boltinn gengur allt of hægt í 'hæga uppspilinu' og bara ekki nógu gott.“

„Það er of langt á milli fremsta og aftasta. Það er eins og maður hafi á tilfinningunni, okkar hafsentar, að stíga upp,“
sagði Lárus, sem vonaðist eftir breytingum en Arnar Gunnlaugsson hélt í sama lið.

„Vonandi gerir hann einhverjar breytingar, vonandi fáum við meiri kraft í sóknarleikinn. Ég myndi vilja fá Mikael Neville hægra megin og Loga úti vinstra megin og Guðlaug Victor út. Ég held að það sé nóg að hafa Stefán Teit og Hörð í hafsentunum og Daníel með þeim. Mér finnst hlutverk hans Guðlaugs Victor sóknarlega séð ekkert, fá spræka stráka á kantinn.“

Kári sagðist liðið vera að gera ágætis hluta í ákveðnum þáttum leiksins, en bað um meira.

„Þegar þeir eru með skipulag á varnarleik hef ég enga trú á við munum skapa okkur færi úr þeirri stöðu. Við erum að beita ágætis löngum boltum og vinnum þá ofarlega. Við erum hættulegir í föstum leikatriðum, óheppnir að skora ekki og höfum fengið færi þar en pressan er lykilatriði. Hún er ekki góð og þeir spila sig í gegnum okkur trekk í trekk,“ sagði Kári.

Þá talaði hann um Stefán Teit, sem var settur í miðvörð fyrir þetta verkefni.

„Þegar við erum að tala um þessa hafsenta þá er þetta í lagi ef þetta er allt fyrir framan þig, en þú 'exposar' sjálfan þig að þú vitir ekki hvað þú ert að gera í svona litlum smáatriðum. Að þú komir of seint, kemur askvaðandi inn þegar á ekki við og lætur spila þig út. Það eru augnablikin er að þú sérð að hann er kannski alveg hafsent þó hann hafi staðið sig vel hingað til.“

Ísland vildi fá hendi og vítaspyrnu snemma leiks, en fengu ekki.

„Ég veit ekki hverjar reglurnar eru í þessum handknattleik en jújú hann fer í hendina á honum, það er 100 prósent, en þetta var fyrir utan teig,“ sagði hann ennfremur.
Kári Árnason

Kári Árnason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lárus Orri er í settinu með Kára

Lárus Orri er í settinu með Kára

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.