Leik lokið!
Ég þakka fyrir mig í dag. Viðtöl og skýrsla koma inn á eftir.
92. mín
Gult spjald
Santa Sanija Vuskane
Sama ástæða fyrir gulu spjaldi og hjá Mist.92. mín
Gult spjald
Mist Funadóttir
Mist að fá gult spjald eftir ríg á milli hennar og Söntu.91. mín
Þórkatla María að standa sig fáránlega vel á sjúkraþjálfara vaktinni


91. mín
InnHekla Dögg Ingvarsdóttir
ÚtBjörg Gunnlaugsdóttir
Björg liggur í grasinu.
90. mín
A.m.k 3 mínútur í uppbótartíma hjá okkur í dag.
89. mín
Ekkert sem kemur úr þessu horni.
89. mín
Þróttarar fá annað horn
86. mín
Gult spjald
Elísa Birta Káradóttir
Björg liggur í grasinu eftir samstuð.85. mín
InnBjörgey Njála Andreudóttir
ÚtKayla Marie Rollins
83. mín
Klaufaskapur
Þetta var furðulegt Björg rennur og dettur án áreitis. Missir boltann í kjölfarið
81. mín
Rósey gerir vel en boltinn frá henni var erfiður og átti Sigríður erfitt með að stýra boltanum í netið.
80. mín
InnJúlía Ruth Thasaphong
ÚtTinna Hrönn Einarsdóttir
Tinna fer út af og virtist fara meidd af vellinum.
79. mín
Björg að gera vel og rennir boltanum út í teig en Unnur ekki með nógu gott skot.
76. mín
Þær liggja þrjár niðri eftir hornið.
76. mín
Þróttur að fá annað horn.
75. mín
Þróttarar ná ekki að skora en halda í boltann.
75. mín
Þróttur að fá horn.
74. mín
Emersen að koma sér í skemmtilega stöðu og skilur Mollee eftir en flaggið fór á loft.
71. mín
Gult spjald
Mollee Swift
Fór ekki í boltann og tók Sophie með sér niður.71. mín
Mark úr víti!
Hannah McLaughlin
Klárar þetta af miklu öryggi.70. mín
VÍTI
Tinna Hrönn með góðan bolta inn fyrir á Sophiu en Mollee tók hana með sér og Gri/Nja fær víti í kjölfarið.
69. mín
InnSigríður Theód. Guðmundsdóttir
ÚtSierra Marie Lelii
Þróttur gerir tvöfalda breytingu á sínu liði. Sierra er búin að vera mjög öflug í þessum leik og getur gengið sátt frá borði.
67. mín
Eitthvað klafs inn í teig og þær liggja tvær eftir. Gri/Nja fær aukaspyrnu.
66. mín
Þróttur fær annað horn.
65. mín
Tinna Hrönn með góðan bolta en Þróttarar skalla hann útaf í horn.
64. mín
Gri/Nja fær aukspyrnu á hættulegum stað.
63. mín
Gult spjald
Emersen Jennings
63. mín
Björg hættir ekki með fyrirgjafirnar en Taylor gerir vel og stekkur upp í boltann.
62. mín
Sophia með skot beint á Mollee
59. mín
MAAAARK!
Bríet Fjóla Bjarnadóttir (stoðsending: Björg Gunnlaugsdóttir)
Bríet skilur Taylor eftir í grasinu og skýtur úr frekar þröngu færi. Mikilvægt fyrir Þrótt eftir sjálfsmarkið.58. mín
Björg komin í ein á móti markmanni en hún missir boltann aðeins of langt frá sér og boltinn endar hjá Taylor.
57. mín
Tinna með skot sem endar í fanginu á Mollee.
56. mín
Sæunn tók aukaspyrnu hratt og Kayla var komin ein í gegn en skýtur boltanum framhjá.
55. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtKatrín Lilja Ármannsdóttir
54. mín
MAAAARK!
Jelena Tinna Kujundzic (sjm)
Mjög klaufalega gert hjá Jelenu sem potar boltanum inn.50. mín
SIERRA MEÐ TVENNU
Sierra Marie Lelii (stoðsending: Sæunn Björnsdóttir)
Sæunn með frábæran bolta sem Sierra skallar inn af miklu öryggi. Hún bara hættir ekki!49. mín
Þróttarar að fá annað horn.
49. mín
Emerson gerir vel og stelur boltanum af Þrótturum en stelpurnar í Gri/Nja eru ekki nógu snöggar að fylgja með.
48. mín
Unnur Dóra með skot rétt framhjá. Allt að gerast hjá Þrótti.
47. mín
Gult spjald
Birta Birgisdóttir
47. mín
MAAAARK!
Sierra Marie Lelii (stoðsending: Björg Gunnlaugsdóttir)
Kærkomið mark hjá Þrótti!45. mín
Þróttur sparkar þessum seinni hálfleik af stað.
45. mín
InnÁlfhildur Rósa Kjartansdóttir
ÚtKatherine Amanda Cousins
Álfhildur Rósa að koma inn á fyrir Katie.
45. mín
Hálfleikur
Þróttarar hafa verið meira með boltann í fyrri hálfleik og eiginlega ótrúlegt að þær séu ekki búnar að skora. Gri/Nja hafa þó átt sín moment.
45. mín
A.m.k 3 mínútur í uppbót
44. mín
Gri/Nja fær aukaspyrnu sem Þróttarar eru ekki sáttir með.
41. mín
InnBirta Birgisdóttir
ÚtSigríður Emma F. Jónsdóttir
Gri/Nja að taka fyrirliðann útaf. Inn á kemur Birta Birgis fyrrum Þróttari.
40. mín
Hayden brýtur á Katie.
39. mín
Sierra á skot framhjá.
35. mín
Gri/Nja með aukaspyrnu sem Þróttur skallar auðveldlega í burtu.
34. mín
Ekkert sem kom úr þessu horni.
34. mín
Þróttur fær ekki nóg af hornspyrnum. Annað horn.
32. mín
Sæunn skýtur beint útaf.
32. mín
Þróttur að fá enn eitt hornið.
31. mín
Sæunn með góðann bolta sem endar í markspyrnu.
30. mín
Þróttur að fá annað horn.
30. mín
Taylor tekur áhættu og stígur út á móti Björgu og hreinsar hann út í innkast.
29. mín
Gult spjald
Tinna Hrönn Einarsdóttir
Tinna fær gult spjald eftir þetta samstuð.28. mín
Þær eru báðar staðnar upp.
26. mín
Mollee stígur út úr markinu og hreinsar boltann en tekur Tinnu Hrönn með sér. Þær liggja báðar eftir í grasinu og þurfa báðar aðhlynningu.
25. mín
Sæunn tekur aðeins of fastann bolta og endar boltinn hjá Gri/Nja.
24. mín
Santa gerir vel og stoppar Björgu á sprettinum. Boltinn endar hinsvegar í horni.
22. mín
Færi!
Emersen með frábæran undirbúning og sendir hann í gegn á Tinnu sem skýtur boltanum rétt framhjá, þetta hefði verið gott fyrir Gri/Nja.
20. mín
Gri/Nja skalla boltann frá.
20. mín
Færi
Unnur Dóra með gott skot en Taylor gerir vel og slær hann yfir. Þróttur fær horn.
18. mín
Sláin
Björg með skot í slá.
17. mín
Sierra stelur boltanum af Gri/Nja og gefur hann á Bríeti sem á skot á markið en það endar í höndunum á Taylor.
14. mín
Færi!
Bríet fjóla með frábæran undirbúning og gefur hann svo út í teig á Kristrúnu sem hittir boltann ekki alveg nógu vel
12. mín
Kayla með frábæra fyrirgjöf á Sierru en hún er flöggun rangstæð. Taylor gerði virkilega vel.
7. mín
Boltinn endar hjá Mollee eftir smá klafs inn í teig.
6. mín
Gri/Nja að fá aukaspyrnu á góðum stað.
6. mín
Gri/Nja að komast inn í teig Þróttara en boltinn endar hjá Mollee.
3. mín
Þróttarar með góða sókn! Björg kom með fyrirgjöfina inn á teig, beint á hausinn á Kaylu en skallinn var ekki alveg nógu góður.
1. mín
Þróttarar byrja strax að ógna og fá horn.
1. mín
Leikur hafinn
Tinna Hrönn sparkar þessu af stað
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Þróttur gerir tvöfalda breytingu á liði sínu úr leiknum á móti FH. Bríet Fjóla og Mist Funa eru komnar inn á, á meðan Sigríður Theódóra og Rósey taka sér sæti á bekknum.
Gri/Nja gera eina breytingu á liðinu sínu eftir leik þeirra á móti ÍBV. Santa Faith kemur inn á og Júlía Ruth fær sér sæti á bekkinn.
Gri/Nja gera eina breytingu á liðinu sínu eftir leik þeirra á móti ÍBV. Santa Faith kemur inn á og Júlía Ruth fær sér sæti á bekkinn.
Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík eru nýliðar í deild þeirra bestu og mætti segja að þær hafi komið skemmtilega á óvart í sumar. Liðið hefur ekki bara haldið sér í efri hluta deildarinnar heldur komust þær einnig í úrslit mjólkurbikarsins.
Grindavík/Njarðvík stelpur nældu sér í þrjú stig í nýliðaslagnum á móti ÍBV þar sem þær unnu 2-1.

Grindavík/Njarðvík stelpur nældu sér í þrjú stig í nýliðaslagnum á móti ÍBV þar sem þær unnu 2-1.

Fyrir leik
Þróttur
Þróttara stelpur hafa átt skemmtilegt tímabil . Þær hafa verið tæpar á köflum en virðast alltaf rífa sig í gang þegar þörf er á. Ekki skemmir það svo fyrir Þrótturum að hafa unnið Mjólkurbikarinn eftir hörku bikarkeppni.
Þróttarar koma beint úr Kaplakrika með þrjú stig í pokanum eftir áhugaverðan leik þar sem FH stelpur kysstu Íslandsmeistaratitilinn bless með 4-0 tapi.

Þróttarar koma beint úr Kaplakrika með þrjú stig í pokanum eftir áhugaverðan leik þar sem FH stelpur kysstu Íslandsmeistaratitilinn bless með 4-0 tapi.

Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
Liðin hafa nú mæst þrisvar í sumar og seinasti slagur liðanna var æsispennandi úrslitaleikur mjólkurbikarsins sem endaði 2-1 fyrir Þrótti. Lið Grindavíkur/Njarðvíkur hefur hins vegar haft betur í viðureignum liðanna í deildinni í sumar þar sem þær sigruðu báða leikina sína gegn Þrótti, 4-2 á heimavelli og 2-1 hér í Laugardalnum.
Liðin eru nú jöfn á stigum en markatala Þróttara gerir það að verkum að Þróttur situr í 4.sæti og Grindavík/Njarðvík í 5.sæti.

Liðin eru nú jöfn á stigum en markatala Þróttara gerir það að verkum að Þróttur situr í 4.sæti og Grindavík/Njarðvík í 5.sæti.

Fyrir leik
Hreinn Magnússon er á flautunni
Hreinn Magnússon verður aðaldómari leiksins í dag og honum til aðstoðar verða þau Óliver Thanh Tung Vú og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem. Fjórði dómari í dag er Hallgrímur Viðar Arnarson og Eftirlitsmaður KSÍ er Bergur Þór Steingrímsson.


Fyrir leik
Pepsi völlurinn býður góðan dag
Kæru lesendur verið velkomin í beina textalýsingu frá Pepsi-vellinum. Í dag fer loka umferð bestu deildarinnar af stað og við munum sjá lið Þróttar og Grindavík/Njarðvík takast á í þessum loka leik.





