SKÝRSLAN: ÍBV tryggði sér þriðja sætið
Hvað réði úrslitum?
ÍBV voru einfaldlega betra liðið í þessum leik og hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk. Stjarnan átti hins vegar mjög erfitt uppdráttar allan leikinn og náði ekki að skapa sér neitt að ráði.
Bestu leikmenn
1. Allison Patricia Clark
Skorar gott mark og á fullt af góðum fyrirgjöfum sem hefðu í raun átt að heita stoðsendingar.
2. Fridrikka Marie Clementsen
Mjög öflug á miðjunni hjá ÍBV og örugg á boltann. Var út um allan völl og dugleg að koma sér inn í teig. Var hinsvegar óheppin í færum sínum með eitt skot í stöng og svo varði Bridgette glæsilega í marki Stjörnunnar.
Atvikið
Lítið um atvik fyrir utan kannski glæsilega vörslu Bridgette í færi Fridrikku í seinni hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV tryggir sér þriðja sætið með 33 stig, og öruggum sigri. Verður að teljast afar vel gert hjá nýliðum. Stjarnan endar í sjötta sæti með 28 stig.
Vondur dagur
Í raun engin sem átti vondan dag en hægt að segja að Murielle hjá Stjörnunni hafi átt betri daga.
Dómarinn - 8
Góður leikur hjá Ásmundi Þór Sveinssyni. Í raun engin vafaatriði og leikurinn flaut vel.



