SKÝRSLAN: FH tapaði í gríðarlega mikilvægum leik
Hvað réði úrslitum?
Þróttarar byrjuðu leikinn af miklum krafti og komust yfir eftir tæpar 20 mínútur. Þær bættu við öðru marki eftir rúmlega 35 mínútur. FH-ingar fengu fullt af góðum færum í fyrri hálfleik en nýttu þau ekki vel.
Bestu leikmenn
1. Björg Gunnlaugsdóttir (Þróttur R.)
Björg var frábær í dag. Lagði upp seinna markið og skapaði mikinn usla á hægri kantinum.
2. Mollee Swift (Þróttur R.)
Mollee var virkilega góð í dag, Hélt auðvitað hreinu og hún sýndi mikið öryggi í öllum sínum aðgerðum.
Atvikið
Aðalbjörn Heiðar dæmdi vítaspyrnu eftir tæpar 20 mínútur. Mjög vafasamur dómur sem breytti gangi leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að FH er í 2. sæti með 43 stig. Breiðablik á leik gegn Stjörnunni á morgun og Blikar geta tryggt sér titilinn með jafntefli. Þróttur fer upp í 4. sæti efri hlutans.
Vondur dagur
Það var engin ein sem átti áberandi vondan dag. Vörn FH réð illa við framlínu Þróttar, sérstaklega í fyrri hálfleik. Því set ég vondan dag á vörn FH í heild sinni.
Dómarinn - 4
Aðalbjörn dæmdi ekki vel í dag. Vítaspyrnudómurinn var að öllum líkindum rangur. Þá féllu einnig nokkrir undarlegir dómar í leiknum.




