SKÝRSLAN: KR getur unnið á grasi
Hvað réði úrslitum?
KR byrjaði leikinn mun betur og voru sannfærandi yfir í hálfleik. Keflavík mætti mun öflugra út í seinni hálfleikinn og náði að jafna snemma. Bæði lið fengu tækifæri til þess að klára þetta en á endanum var það KR sem tókst það og vinna loksins á grasi í sumar.
Bestu leikmenn
1. Galdur Guðmundsson (KR)
Gef Galdri þetta í dag en hann skoraði og lagði upp í fyrri hálfleik. Keflavík átti enginn svör við honum í fyrri hálfleiknum þó svo að hann hafi svolítið fjarað undan í þeim síðari.
2. Eiður Orri Ragnarsson (Keflavík)
Frábær innkoma í seinni hálfleikinn og stimplaði sig strax inn með tveimur stoðsendingum til að jafna leikinn fyrir Keflavík. Fékk stöður til þess að mögulega stela þessu fyrir Keflavík en það gekk ekki.
Atvikið
Ekkert atvik sem stendur uppúr í fljótu bragði. Hægt að nefna innkomu Eiðs Orra sem ákveðið atvik, búin að leggja upp 2 mörk á fyrstu 6 mínútum seinni hálfleiks.
Hvað þýða úrslitin?
KR tryggði sér 2. sætið í Bestu deild karla og Keflavík eru staðfestir í 6. sætinu.
Vondur dagur
Oft séð meira af Alpha Conteh en við sáum í dag. Var kippt af velli í hálfleik og leikur Keflavík snarbatnaði við það. Ætla ekki að setja samasemmerki þarna endilega en maðurinn sem kom inn fyrir hann átti frábæra innkomu.
Dómarinn - 6
Krefjandi aðstæður og alls ekki gallalaust en dómarinn hafði þó ekki úrslitaáhrif í dag svo þeir sleppa með ágætt stimpilinn í dag.




