Fotbolti.net
Besta deildin
Sverrir Örn Einarsson
Besta karla - Neðri hluti
VÍS völlurinn
Skaplegar en nokkur vindur
Þór
Þór
3 - 1
Stjarnan
Stjarnan
0 - 13' Örvar EggertssonÁsbjörn Líndal Arnarsson 11'1 - 1Sverrir Páll Ingason 19'2 - 1Þorri Ingólfsson 58'3 - 1
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
Stórkostlegur sigur Þórs 3-1 staðreynd. Og það sem meira er þeir eru komnir upp úr fallsæti fyrir lokaumferð deildarinnar.
96. mín
Birnir Snær með frábært skot af um 18 - 20 metrum. Aron Birkir vel á verði og slær boltann í horn.
96. mín
Mínúta til stefnu.
95. mín
Skot eftir skot eftir skot frá liði Stjörnunar enda í varnarmanni Þórs.

Varnarleikur Þórs verið virkilega góður.
Stjarnan
93. mín
Gult spjald

Arnar Breki Björnsson

Stöðvar skyndisókn og uppsker eftir því.
90. mín
Við fáum sex mínútur í uppbótartíma að lágmarki.
89. mín
Andri Rúnar liggur eftir eftir viðskipti við Kevin Vazquez sem sveiflar hendinni beint í andlitið á honum.

Ég skal ekki segja hversu sniðugt það er beint fyrir framan nefið á ÞÞÞ og á gulu spjaldi.

Kevin Vazquez klárlega mjög heppinn að vera enn inn á vellinum.
Þór
88. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtEinar Freyr Halldórsson
86. mín
Andri Rúnar í dauðafæri!

Fær dauðafæri í teignum á silfurfati eftir vondan skalla úr varnarlínu Þórs, Einn gegn Aroni setur hann boltann fram hjá markinu.
83. mín
Andri Rúnar með skalla úr teignum eftir snögga sókn Stjörnunar.

Boltinn vel yfir markið.
81. mín
Christian Bjarmi í hörku skallafæri eftir hornið en setur boltann ekki á markið.

Vantaði sannfæringu þarna.
81. mín
Heimamenn í basli eftir hornið og koma boltanum ekki frá. Kastast á milli manna og er á leið í netið þegar Aron Birkir slær hann yfir í annað horn.
Þór
79. mín
InnRagnar Óli Ragnarsson
ÚtBjarni Guðjón Brynjólfsson
77. mín
Andri Rúnar með skalla að marki eftir langt innkast. Boltinn beint í hendur Arons.
Stjarnan
77. mín
InnArnar Breki Björnsson
ÚtAri Leifsson
Stjarnan
77. mín
InnBjarki Friðjón Sæmundsson
ÚtJóhann Árni Gunnarsson
75. mín

Örvar við það að sleppa í gegn en nær ekki valdi á boltanum svo vel sé. Endar sóknina með skottilraun sem er óþarfi að eyða mörgum orðum í. Hún var léleg.
74. mín
Leikurinn fer algjörlega fram eftir forsendum Þórsara. Þeim er að takast að hægja á leiknum og halda gestunum frá marki sínu.

Stjarnan ekki sýnt að þeir séu líklegir til að breyta því.
73. mín
Lífsmark með Stjörnunni sem uppskera horn.

Mikið kraðak í teignum eftir hornið en ÞÞÞ blæs í flautu sína og dæmir brot á gestina.
Stjarnan
72. mín
Gult spjald

Ari Leifsson

Pirringsbrot úti við hliðarlínu
67. mín
Örvar Eggerts með brot og aukaspyrna þar með dæmd. Eru orðin ansi mörg hjá honum í dag heilt yfir.
Stjarnan
64. mín
InnÁrni Vilhjálmsson
ÚtEmil Atlason
63. mín
Kristófer í allskonar brasi í vörn Þórs. Tapar boltanum til Örvars sem keyrir í átt að marki. Hann lætur vaða við vítateigslínu en skotið beint á Aron sem slær boltann í horn.
Stjarnan
62. mín
InnAndri Rúnar Bjarnason
ÚtBjarki Hauksson
Sóknarsinnuð breyting hjá Stjörnunni.
Stjarnan
62. mín
InnChristian Bjarmi Alexandersson
ÚtGustav Kjeldsen
Þór
58. mín
MARK!

Þorri Ingólfsson (stoðsending: Einar Freyr Halldórsson)


Frábær skyndisókn endar með marki!

Þórsarar vinna boltann á miðjunni og keyra upp völlinn. Einar Freyr með vigtar sendinguna inn fyrir á Þorra fullkomnlega sem klárar snyrtilega framhjá Árna sem mætir vel út á móti.
55. mín
Leikurinn öllu hægari hér framan af síðari hálfleik en í fyrri hálfleik. Það hentar liði Þórs ágætlega eins og málin standa.
Stjarnan
50. mín
Gult spjald

Gustav Kjeldsen

Fellir Þorra til að koma í veg fyrir að missa hann framhjá sér í skyndisókn.
48. mín
Gestirnir að hefja þetta með fótinn á bensíngjöfinni.

Vinna hér hornspyrnu.
46. mín
Síðari hálfleikur hafinn

Gestirnir sparka okkur af stað á ný. Með vindinn í bakið núna, ná þeir að nýta það?
45. mín
Hálfleikur
Eftir erfiða byrjun tóku heimamenn öll völd á vellinum og uppskáru tvö góð mörk.

Munu leika gegn vindi í síðari hálfleik og spurning hvaða áhrif það mun hafa.

En þeir halda eigin örlögum í sínum eigin höndum núna. Nokkuð sem var ekki staðan fyrir 45 mínútum síðan.

Tökum okkur hlé og mætum aftur með síðari hálfleikinn eftir korter eða svo,
45. mín
Fáum tvær mínútur í uppbótartíma að mér sýnist.
42. mín
Heimamenn bjarga á línu!

Örvar nær skotinu að marki úr teignum sem er á leiðinni inn, Alex Þór rennir sér í boltann til að reyna að tryggja það en Kristófer nær að skófla boltanum af línunni á allra allra síðustu stundu.
37. mín
Verður áhugavert að sjá hvernig þetta mun þróast með tilliti til veðursins. Þór ráðið öllu á vellinum undan vindinum en mun það snúast í síðari hálfleik?
Þór
33. mín
Gult spjald

Kevin Vazquez Comesaña

Fer með hendur á undan sér í skallaeinvíg i og uppsker gult spjald.
30. mín
Þór vinnur horn.

Gestunum gengið afar illa að hemja boltann í vindinum.
25. mín
Greko í frábæru skallafæri eftir aukaspyrnu. Fyrstur á boltann við markteiginn en skallar bolta í varnarmann og afturfyrir.

Þór með öll völd á vellinum.
21. mín
Kannski vert að taka fram að bæði Ásbjörn og Sverrir voru að skora sitt fyrsta mark í sumar í dag.

Ágæt tímasetning það.
20. mín
Birnir Snær með skot úr teignum en hittir ekki markið.
Þór
19. mín
Mark!

Sverrir Páll Ingason


Sverrir Páll leikur inn völlinn frá hægri, Kemur sér inn á teiginn og leggur boltann fyrir vinstri fótinn á sér og sneiðir hann glæsilega í hornið fjær.

Eftir erfiða byrjun eru Þórsarar komnir úr fallsæti eins og sakir standa.
18. mín
Heimenn með sterkan vind í bakið og stýrir leiknum þessa stundina.

Valur komið í 3-1 gegn KA
17. mín
Einar Freyr í góðri skotstöðu, nær að hleypa af en skotið laust og beint á Árna.
15. mín
Færi Þór

Góður samleikur Einars Freys og Krístófers við vinstra vitateigshorn Stjörnunar endar með skoti frá þeim síðarnefnda. Fín staða en skotið laust og auðvelt fyrir Árna í markinu.
12. mín
Stjörnumenn klaufar!

Guðmundur Baldvin og Bjarki Hauks fá sitthvort færið í sömu sókninni en hitta ekki boltann.

Báðir í góðri stöðu en fæturnir eitthvað að flækjast fyrir þeim.
Þór
11. mín
Litla neglan!

Ásbjörn Líndal Arnarsson

Neglir boltanum fast úr spyrnunni í markmannshornið. Mjög fast skot en ég verð að setja spurningamerki við Árna þarna.

Frábært svar hjá Þór
Stjarnan
10. mín
Gult spjald

Sigurður Gunnar Jónsson

Þorri með frábæran sprett upp völlinn og er að nálgast teiginn. Sigurður Gunnar rífur hann niður og fær fyrsta spjald leiksins.

Aukaspyrna á hættulegum stað.
8. mín
Þórsarar slegnir eftir markið , jákvæðar fréttir berast þó norður. Valur hefur tekið forystuna gegn KA.
Stjarnan
3. mín
MARK!

Örvar Eggertsson

Hræðileg byrjun fyrir Þór!

Gott spil Stjörnunar við vítateig Þórs endar með dauðafæri frá Emil inn á markteig. Hann með skot af stuttu færi sem Aron Birkir ver til hliðar. Emil nær frákastinu sjálfur en kemur boltanum ekki á markið. nær þó að skýla boltanum fyrir Örvar sem mætir á vettvang og mokar honum yfir línuna úr mjög þröngu færi.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað á Akureyri. Það eru heimamenn sem sparka okkur af stað hér.
Fyrir leik
Hálfleikur á Hlíðarenda

Valur og KA eru jöfn 1-1 á Hlíðarenda þar sem nú hefur verið flautað til hálfleiks. Fari svo í lokin og vinni Þór verða Þór og KA jöfn að stigum. Tapi Þór hins vegar er fallið nánast staðreynd þó fræðilega væri mögulegt fyrir þá að bjarga sér. En KA á 23 mörk á Þór í markatölu svo það er eingöngu fræðilegur möguleiki.
Fyrir leik
Byrjunarliðin mætt í hús.
Hjá Þór er Sigurður Heiðar Höskuldsson ekki að breyta sigurliði og teflir fram sama byrjunarliði og bar 1-0 sigurorð af ÍBV í síðustu umferð.

Stjarnan gerir fjórar breytingar á sínu liði frá tapinu gegn KA á dögunum. Sindri Þór Ingimarsson, Ibrahim Turay og Christian Bjarmi Alexandersson fá sér sæti á bekknum auk þess að Benedikt Warén tekur út leikbann. Inn í liðið í þeirra stað koma þeir Ari Leifsson, Jóhann Árni Gunnarsson, Sigurður Gunnar Jónsson og Alex Þór Hauksson.
Fyrir leik
Sápan sér um spádóma
Íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson tók að sér að spá í leikina þessa helgina.

Þór 1 - 1 Stjarnan
Þórsarar verða með yfirhöndina í leiknum, enda mun meira undir hjá þeim. En Stjarnan nær í ódýrt jöfnunarmark undir lokin og heimamenn missa risa 2 stig.


Mynd: Dagrún Ása

Fyrir leik
Dómarinn

Þórður Þorsteinn Þórðarson er með flautuna hér í dag. Honum til aðstoðar eru Guðmundur Ingi Bjarnason og Kristofer Bergmann. Arnar Ingi Ingvarsson sér um hlutverk fjórða dómara og eftirlitsmaður KSÍ er Magnús Sigurður Sigurólason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Þór

Líkt og síðustu vikur er allt undir hjá liði Þórs. Þeir þurfa að vinna og helst að treysta á að grannar þeirra í KA tapi stigum en þannig kemst Þór úr botnsæti deildarinnar.

Fari það svo að Þór vinni ekki hér í dag á meðan að KA vinnur sinn leik að Hlíðarenda eru Þórsarar fallnir. Þar sem leikur Vals og KA hefst klukkustund á undan leiknum hér má því reikna með að þjálfarateymi Þórs verði meðvitað um stöðuna þar en hvort það sé kostur eða galli skal ósagt látið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Stjarnan

Margir í Garðabæ geta eflaust vart beðið eftir því að þetta tímabil taki enda. Vonbrigði á vonbrigði ofan hafa verið þema tímabilsins og mikil ólga hefur verið innan félagsins. Margt hefur verið sagt og skrifað um liðið og hefur sú umræða oftar en ekki verið á heldur neikvæðum nótum.

Fréttir bárust þó úr Garðabæ í vikunni sem margir binda miklar vonir við að verði til þess að lægja öldurnar en tilkynnt var að Rúnar Páll Sigmundsson væri að snúa aftur til Stjörnunar og verður hann þjálfari liðsins á næsta tímabili.



Hvað leik dagsins varðar hafa gestirnir að fáu öðru en stolti að keppa. Liðið kemur þó á bakinu með 3-0 tap á bakinu gegn liði KA í Garðabæ um liðna helgi og þurfa að sýna mun betri leik í dag en þar ætli þeir sér að hirða stigin þrjú suður yfir heiðar.
Fyrir leik
Ögurstund á Akureyri?

Heil og sæl kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa beinu textalýsingu Fótbolta.net frá leik Þórs og Stjörnunar sem fram fer á VÍS vellinum á Akureyri. Flautað verður til leiks klukkan 14:00
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.