Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna - Efri hluti
Samsungvöllurinn
Stjarnan
Stjarnan
0 - 1
Breiðablik
Breiðablik
0 - 123' Líf Joostdóttir van Bemmel
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson
Áhorfendur: 321
Leik lokið!
Blikar eru Íslandsmeistarar í 21. skipti og í þriðja skipti í röð. Þær voru miklu betri í dag og eiga þetta skilið.

Takk fyrir mig, viðtöl og skýrsla á leiðinni.
92. mín
Blikur komnar í hornið og eru að verja boltann.
91. mín
Líf var að fara sleppa í gegn en Jakobína stoppar sóknina.
90. mín
+3 í uppbótartíma.
87. mín
Áhugavert
Stjarnan fær horn og Skiba er kominn í teiginn. Jahérna.

Sendingin er að fara á Skiba í teignum, en Blikar ná að skalla burt.
Breiðablik
86. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
Stjarnan
83. mín
InnErika Ýr Björnsdóttir
ÚtIngibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
Stjarnan
83. mín
InnViktoría Skarphéðinsdóttir
ÚtHulda Hrund Arnarsdóttir
82. mín
Dauðafæri
Hulda á kantinum og kemur með flotta sendingu inn í teig á Tiernan. Tiernan er fyrir framan markið og hún hittir boltann skrýtið og boltinn skoppar upp í loftið og Herdís grípur hann. Þetta á að vera 1-1.
78. mín
Agla fær boltann rétt fyrir utan teiginn, tekur skotið sem er rétt framhjá.
Breiðablik
76. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Breiðablik
76. mín
InnÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
76. mín
Agla á vinstri kantinum með fyrirgjöf, Parker skallar boltann burt og hann dettur á Edith inn í teignum, en áður hún nær skotinu nær Parker að tækla af henni boltann.
75. mín
Karítas er á vinstri kantinum og kemur með sendingu fram fyrir markið á Líf sem flickar boltanum á Þórdísi en Skiba er fljótari en hún í boltann.
72. mín
Áhorfendatölur
321 manns.
Stjarnan
71. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtSnædís María Jörundsdóttir
70. mín
Stjarnan í skyndisókn en þær missa boltann frá sér og sóknin fer ekki neitt.
68. mín
Blikar með hættulega aukaspyrnu, sending inn í teig sem fer ekki neitt.
Stjarnan
68. mín
Gult spjald

Hulda Hrund Arnarsdóttir

63. mín
Blikar í skyndisókn, Edith sendir Líf í gegn en Skiba er fljót út úr markinu og nær í boltann.
63. mín
Stjarnan kemst í gott færi, Hulda er á boltanum en sendingin fram er léleg og Stjarnan missir boltann frá sér.
61. mín
Stjörnukonur fá hættulega auakspyrnu en gestirnir ná að koma boltanum burt.
Breiðablik
60. mín
Gult spjald

Katelyn Duong

Stjarnan
58. mín
InnNanna Sif Guðmundsdóttir
ÚtVigdís Edda Friðriksdóttir
Stjarnan
58. mín
InnMurielle Tiernan
ÚtHrefna Jónsdóttir
56. mín
Líf fær boltann inn í teignum en skýtur yfir markið.
54. mín
Hætta
Stjarnan að komast í mjög góða sókn. Snædís á hægri kantinum kemur með fyrirgjöf inn í teiginn. Boltinn dettur á Ingibjörgu sem missir hann frá sér en boltinn dettur á Hrefnu sem skýtur í varnamann.

Líklega besta færi Stjörnunnar í kvöld.
51. mín
Edith sleppur í gegn en Wirtz nær að tækla hana og stoppar sóknina.
48. mín
Líf tekur skotið fyrir utan teiginn. Boltinn fer í varnarmann og leitar upp í loftið. Boltinn dettur á Hrafnhildi sem skallar framhjá.
46. mín
Seinni hálfleikur
Blikar byrja.
45. mín
Hálfleikur
Myndir: Blikar fagna marki Lífar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Blikar að leiða og þær eru að fara verða Íslandsmeistarar ef þetta fer svona. Stjarnan hefur gert mjög lítið í fyrri hálfleik. Óskar Smári þarf að breyta eitthverju ef þær vilja ná stigi eða jafnvel vinna. Vil minna á það að Blikar þurfa einungis stig til þess að taka þetta.
45. mín
+1
Ingibjörg með skot fyrir utan teiginn, beint á Herdísi, æfingabolti.
45. mín
Agla með háan bolta fram á Karítas en hún nær ekki boltanum og hann dettur á Skiba í markinu.
Breiðablik
42. mín
Gult spjald

Þórdís Elva Ágústsdóttir

40. mín
Boltinn dettur á Elínu Helenu sem skýtur í hliðarnetið.
39. mín
Stjarnan í góðu færi en það nær engin aldrei að skjóta. Snædís fær boltann á sig en skotið var ekki gott og boltinn skoppaði upp í loftið og dettur á Vigdísi sem skallar beint á Herdísi.
36. mín
Hætta
Hár bolti á Hrefnu inn í teiginn en hún skallar beint á Herdísi í markinu.
35. mín
Snædís María með skot fyrir utan teiginn en skotið er beint á Herdísi í markinu.
34. mín
Stjarnan fá horn, loksins fá þær tækifæri en þær skalla burt.
32. mín
Harfnhildur Ása ætlar að setja Líf í gegn en Wirtz stoppar sóknina.
27. mín
Stjarnan stundar ekki varnarleik
Það er allt galopið hjá heimaliðinu. Andrea Mist tæklar boltann og hann fer á Öglu sem er fyrir framann Skiba í markinu. Agla nær að snúa sér en skýtur framhjá.
25. mín
Hætta
Líf van Bemmel fær aftur mjög gott færi en dettur inn í teignum, þetta átti að vera 2-0.
Breiðablik
23. mín
MAAAARK!

Líf Joostdóttir van Bemmel (stoðsending: Þórdís Elva Ágústsdóttir)

Agla María með sturlaða sendingu framhjá vörn Stjörnunnar á Þórdísi Elvu sem er alveg sloppin í gegn, en hún sendir fram fyrir markið á Líf sem skorar í opið markið. Blikar eru að taka titilinn as we speak.
22. mín
Líf van Bemmel með hættulega sendingu fram fyrir markið en Skiba tekur boltann upp.
Stjarnan
20. mín
Gult spjald

Sydney Anne Parker

Blikar í skyndisókn en Sydney stoppar hana, harður dómur að mínu mati.
19. mín
Hulda Hrund kemst í gott færi fyrir utan teiginn en skotið er mjög mjög lélegt.
17. mín
Hætta
Líf van Bemmel sleppur í gegn og kemst framhjá Wirtz og svo Skiba í markinu. Skiba fer í Líf en hún lætur sig ekki detta og heldur áfram en missir svo boltann frá sér. Ef Líf hefði látið sig detta myndi Gunnar pottþétt benda á punktinn.
14. mín
Önnur hættuleg aukaspyrna fyrir Blika sem fer beint á Skiba í markinu.
Stjarnan
13. mín
Gult spjald

Jakobína Hjörvarsdóttir

Brýtur á Edith þegar hún var að fara sleppa í gegn.
12. mín
Líf van Bemmel sleppur í gegn á hægri kantinum og kemur með fyrirgjöf en Sandra sparkar boltanum burt.

Þær fá horn en þær skalla framhjá markinu.
10. mín
Andrea Mist brýtur af sér á hættulegum stað.

Agla tekur aukaspyrnuna sem fer langt framhjá markinu, líklega sending.
6. mín
Snædís María kemst í gott færi en skýtur yfir.
5. mín
Horn fyrir Blika. Van Bemmel tekur hornið og tekur það stutt á Öglu sem kemur með flotta fyrirgjöf á fjær en Stjörnukonur skalla burt.
4. mín
Rafmagnið var að slá út. Smá media blackout en ég er komin til baka.
3. mín
Hár bolti fram á Hrafnhildi Ásu en sendingin er aðeins of föst.
1. mín
Leikur hafinn
Stjarnan byrja þessa veislu.
Fyrir leik
Átta ára liðsstjóri Stjörnunnar
Steinunn Ólafía Steinarsdóttir verður á skýrslu hjá Stjörnunni í dag sem liðsstjóri. Það er gert í samstarfi við Gleðjum Saman.

Steinunn Ólafía er átta ára og lenti í erfiðu slysi í fyrra sem hún hefur verið að vinna sig til baka úr. Hún fékk einnig að mæta á æfingu hja meistaraflokki í vikunni.

Vel gert hjá Stjörnunni!
Mynd: Gleðjum Saman
Fyrir leik
Dómarakvartett
Gunnar Freyr Róbertsson verður með flautuna. Kári Mímisson og Óliver Thanh Tung Vú með flöggin. Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson verður með skiltið góða.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Blikar eiga erfitt með Stjörnuna
Stjarnan hefur unnið báða leiki sína gegn Breiðabliki í sumar. Stjarnan hefur skorað fimm mörk gegn Blikum og aðeins fengið á sig eitt mark.

Fyrri leikurinn fór fram á heimavelli Breiðabliks, þar sem Stjarnan vann 1–3 sigur. Ingibjörg Lúcía skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna og núverandi leikmaður Breiðabliks, Úlfa Dís, skoraði það þriðja.

Seinni leikurinn fór fram í Miðgarði en var heimaleikur Stjörnunnar, þar vann Stjarnan 2–0. Stjarnan skoraði bæði mörkin undir lok leiksins, á 79. og 82. mínútu. Vigdís Edda og Snædís María skoruðu mörkin.

Sagan segir að Stjarnan getur strítt Blikum, þetta verður að minnsta kosti mjög spennandi leikur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Blikar geta orðið meistarar
Breiðablik þarf aðeins jafntefli í dag til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í ár, eftir að FH missteig sig gegn Þrótti á heimavelli og tapaði 0-4.

Breiðablik hefur gengið vel eftir skiptingu og unnið alla þrjá leiki sína. Þær unnu síðasta leik gegn Þrótti á heimavelli, 5–4. Þróttur fór inn í hálfleik með 1–4 forystu, en Breiðablik náði að snúa leiknum við og unnu þegar Hrafnhildur Ása skoraði sigurmarkið á 90. mínútu.

Guðni Eiríks, þjálfari FH, sagði í viðtali við Fotbolta.net eftir að FH tapaði 0-4 gegn Þrótti að Breiðablik séu orðnir meistarar en sjáum til hvað gerist í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Fyrir leik
Besta Deildin heilsar
Verið velkomin, kæru lesendur, í beina lýsingu á leik Stjörnunnar og Breiðabliks sem byrjar kl 17:00. Liðin mætast á Samsungvellinum, heimavelli Stjörnunnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.