Leik lokið!
+4
94. mín
Viktor fer framhjá nafna sínum og setur boltann í netið.
Alvöru endir á þessum leik!
MAAARKKKK
Viktor Jónsson (stoðsending: Ómar Björn Stefánsson)
Ómar fær boltann úti vinstra megin. Hann keyrir upp kantinn og setur hann í svæðið fyrir Viktor.Viktor fer framhjá nafna sínum og setur boltann í netið.
Alvöru endir á þessum leik!
93. mín
Hann tekur eina snertingu og leggur hann síðan í fjær.
SKAGAMENN KOMAST YFIR!
Rafael Máni Þrastarson (stoðsending: Johannes Björn Vall)
Johannes Vall kemur með fyrirgjöf frá hægri á Rafael.Hann tekur eina snertingu og leggur hann síðan í fjær.
90. mín
Að minnsta kosti þrjár mínútur í uppbót.
89. mín
InnRafael Máni Þrastarson
ÚtSteinar Þorsteinsson
89. mín
Gísli Eyjólfs sker inn á hægri fótinn og tekur skotið en það fer í varnarmann.
87. mín
InnVuk Oskar Dimitrijevic
ÚtMár Ægisson
Már virkilega flottur í kvöld.
87. mín
525 áhorfendur á Lambhagavellinum í kvöld.
84. mín
Kristófer fær boltann inn á teig Skagamenn, snýr og lætur vaða en skotið fer framhjá fjærstönginni.
82. mín
InnÓmar Björn Stefánsson
ÚtMarkús Páll Ellertsson
80. mín
InnSimon Tibbling
ÚtFrederico Bello Saraiva
79. mín
Jakob Byström nær að pota boltanum á markið en Árni Marinó ver í horn.
Boltinn kemur inn á teiginn og Árni Marinó kýlir boltann afturfyrir.
Seinni hornspyrnan kemur inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
Boltinn kemur inn á teiginn og Árni Marinó kýlir boltann afturfyrir.
Seinni hornspyrnan kemur inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
78. mín
Framarar fá horn.
Fred kemur með boltann inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
Fred kemur með boltann inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
74. mín
InnHaraldur Einar Ásgrímsson
ÚtÓliver Elís Hlynsson
74. mín
InnJón Gísli Eyland Gíslason
ÚtGuðmundur Þórarinsson
74. mín
InnJakob Byström
ÚtRóbert Hauksson
74. mín
Gult spjald
Gísli Eyjólfsson
Sparkar Kristófer niður.73. mín
Skalli í stöng!
Johannes Vall kemst upp að endamörkum, hann lyftir boltanum á fjær. Þar er Markús Páll einn og óvaldaður en hann skallar boltann í stöngina og út.
73. mín
Skagamenn fá horn.
Gummi Tóta kemur með boltann inn á teiginn en Viktor Freyr kýlir frá.
Gummi Tóta kemur með boltann inn á teiginn en Viktor Freyr kýlir frá.
71. mín
Baldvin reynir sendingu í gegn en sendingin ratar ekki á samherja og Viktor handsamar knöttinn.
66. mín
Boltinn ratar beint á pönnuna á Kristófer sem er einn á auðum sjó og stangar boltann í fjærhornið. Árni Marinó var í boltanum en það dugði ekki til.
Allt orðið jafnt og spennandi mínútur framundan.
FRAMARAR EKKI LENGI AÐ SVARA!
Kristófer Konráðsson (stoðsending: Þorri Stefán Þorbjörnsson)
Þorri fær boltann úti vinstra megin. Hann fær í rauninni bara að labba upp að endamörkum og kemur síðan með fyrirgjöf inn á teiginn.Boltinn ratar beint á pönnuna á Kristófer sem er einn á auðum sjó og stangar boltann í fjærhornið. Árni Marinó var í boltanum en það dugði ekki til.
Allt orðið jafnt og spennandi mínútur framundan.
65. mín
Ægir Jarl tekur skot fyrir utan teig gestanna sem fer í varnarmann og afturfyrir.
Boltinn kemur inn á teiginn og eftir mikið klafs hrekkur boltinn til Kennie en hans skot fer rétt framhjá nærstönginni.
Boltinn kemur inn á teiginn og eftir mikið klafs hrekkur boltinn til Kennie en hans skot fer rétt framhjá nærstönginni.
59. mín
Viktor Freyr reynir að fara út í boltann en grípur í tómt og Baldvin skallar boltann í autt markið.
Hafsentinn er kominn með tvennu, það er ekki oft sem maður sér það gerast.
HAFSENTINN KOMINN MEÐ TVENNU!
Baldvin Þór Berndsen (stoðsending: Guðmundur Þórarinsson)
Gummi Tóta kemur með hornspyrnuna inn á teiginn.Viktor Freyr reynir að fara út í boltann en grípur í tómt og Baldvin skallar boltann í autt markið.
Hafsentinn er kominn með tvennu, það er ekki oft sem maður sér það gerast.
59. mín
Johannes Vall kemur með fyrirgjöf frá vinstri og Skagamenn fá horn.
55. mín
Gult spjald
Róbert Hauksson
54. mín
Steinar gerir vel, fer á milli tveggja manna og hleypir af en skotið beint á Viktor Frey sem ver örugglega.
53. mín
Már kemst upp að endamörkum og fellur við eftir að Baldvin stakaði aðeins við honum. Framarar vilja víti en afar lítið í þessu.
52. mín
Gult spjald
Kennie Knak Chopart
Kennie vildi aukaspyrnu en ekkert og hann lét Arnar Þór heyra það.50. mín
Fred fær boltann rétt fyrir utan vítateig gestanna og lætur vaða en skotið fer yfir markið.
48. mín
Skagamenn fá fyrstu hornspyrnu seinni hálfleiksins.
Það kemur hár bolti inn á fjær og Erik Tobias nær skalla en engin hætta í skallanum.
Það kemur hár bolti inn á fjær og Erik Tobias nær skalla en engin hætta í skallanum.
46. mín
Við erum farin af stað á ný!
Gestirnir hefja seinni hálfleik.
45. mín
InnJohannes Björn Vall
ÚtGísli Laxdal Unnarsson
45. mín
InnViktor Jónsson
ÚtBöðvar Böðvarsson
45. mín
Hálfleikur
+3
Virkilega skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki!
Bæði lið hafa spilað vel en Framarar hafa skapað betri færi.
Tökum okkur korter.
Bæði lið hafa spilað vel en Framarar hafa skapað betri færi.
Tökum okkur korter.
45. mín
+2
Skagamenn fá horn.
Boltinn kemur inn á teiginn og Markús nær skoti og ÍA fær annað horn.
Boltinn kemur inn á teiginn og Markús nær skoti og ÍA fær annað horn.
45. mín
Dauðafæri!
Fred lyftir boltanum á Má sem keyrir af stað. Már sér hlaup Kennie sem kemur á ferðinni.
Már laumar boltanum á Kennie á gullfallegan hátt en Kennie skýtur framhjá úr úrvals færi.
Spurning hvort Kennie hefði getað tekið eina snertingu þarna, það var enginn nálægt honum.
Már laumar boltanum á Kennie á gullfallegan hátt en Kennie skýtur framhjá úr úrvals færi.
Spurning hvort Kennie hefði getað tekið eina snertingu þarna, það var enginn nálægt honum.
43. mín
Fred gerir vel og vinnur hornspyrnu fyrir Fram.
Fred kemur með boltann inn á teiginn en Baldvin skallar frá. Í kjölfarið tekur Kyle skot rétt fyrir utan teig sem Árni Marinó ver auðveldlega.
Fred kemur með boltann inn á teiginn en Baldvin skallar frá. Í kjölfarið tekur Kyle skot rétt fyrir utan teig sem Árni Marinó ver auðveldlega.
40. mín
Gult spjald
Gísli Laxdal Unnarsson
Már kemst framhjá Gísla og Gísli togar hann niður.37. mín
Gult spjald
Erik Tobias Tangen Sandberg
Rífur Róbert niður.33. mín
Baldvin þrumar boltanum í fyrstu snertingu í slána og inn! Viktor Freyr var í boltanum en lítið sem hann gat gert í þessu.
Allt jafnt á nýjan leik!
ALVÖRU ÞRUMUFLEYGUR!
Baldvin Þór Berndsen
Böðvar kemur með fyrirgjöf inn á teiginn frá vinstri en Már skallar frá og boltinn ratar á Baldvin.Baldvin þrumar boltanum í fyrstu snertingu í slána og inn! Viktor Freyr var í boltanum en lítið sem hann gat gert í þessu.
Allt jafnt á nýjan leik!
31. mín
Már vinnur hornspyrnu fyrir Framara.
Fred kemur með boltann inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
Fred kemur með boltann inn á teiginn en Skagamenn skalla frá.
30. mín
Gummi Tóta kominn í ágætis stöðu inni á teig heimamanna en í stað þess að láta vaða sendir hann boltann til hliðar á Markús Pál og sóknin rennur út í sandinn.
27. mín
Erik Tobias sendir boltann til hliðar á Gísla Laxdal en hann missir boltann í markspyrnu.
23. mín
Sókn Framara endar með því að Ægir Jarl tekur skot úr þröngri stöðu en það fer framhjá.
22. mín
Frekar rólegt yfir þessu eftir rauða spjaldið.
14. mín
Gult spjald
Baldvin Þór Berndsen
Fær einnig gult þegar allt sauð upp úr.14. mín
Gult spjald
Kyle Douglas Mc Lagan
Fær gult þegar allt sauð upp úr.13. mín
Mér sýnist þetta vera hárréttur dómur hjá Arnari og Freyr kvartar lítið.
BEINT RAUTT!
Freyr Sigurðsson
Freyr missir boltann aðeins of langt frá sér og tekur Gumma Tóta niður á gríðarlega groddaralegan hátt. Gummi liggur eftir sárþjáður og það sýður allt upp úr.Mér sýnist þetta vera hárréttur dómur hjá Arnari og Freyr kvartar lítið.
11. mín
Gísli Laxdal keyrir upp hægri kantinn og vinnur hornspyrnu fyrir Skagamenn.
Gummi Tóta kemur með boltann inn á teiginn en Framarar skalla í innkast.
Gummi Tóta kemur með boltann inn á teiginn en Framarar skalla í innkast.
4. mín
Kristófer fer á vinstri fótinn og laumar boltanum á milli fóta Baldvins og í nærhornið, snyrtilega gert.
Fram leiðir og það tók ekki langan tíma!
FRAMARAR TAKA FORYSTUNA!
Kristófer Konráðsson (stoðsending: Róbert Hauksson)
Róbert Hauks setur boltann í svæðið fyrir Kristófer sem stingur Baldvin Þór af en Baldvin nær að komast til baka og Kristófer er einn gegn honum.Kristófer fer á vinstri fótinn og laumar boltanum á milli fóta Baldvins og í nærhornið, snyrtilega gert.
Fram leiðir og það tók ekki langan tíma!
1. mín
Leikur hafinn
Við erum farin af stað!
Heimamenn hefja leik!
Fyrir leik
Ég hef svo sem talað um þetta í nánast allt sumar, Fram eru öflugir sóknarlega en þegar þeir mæta alvöru sóknarmönnum leka þeir helling af mörkum, Markús Páll mætir mjög mótiveraður í kvöld. Yfir 4 mörk á stuðlinum 2.02 á Epic er gott veðmál.
— Kristalkúlan (@kristalkulan) October 19, 2026
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn!
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, gerir aðeins eina breytingu á liði sínu eftir svekkjandi 2-1 tap gegn KR.
Óliver Elís Hlynsson kemur inn í lið Framara. Hann er að byrja sinn fyrsta leik í kvöld.
Haraldur Einar Ásgrímsson fær sér sæti á bekknum.
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, gerir sömuleiðis eina breytingu á líði sínu eftir 2-2 jafntefli gegn Íslandsmeisturunum.
Hinn 17 ára gamli Brynjar Óðinn Atlason kemur inn í lið Skagamanna. Hann er einnig að byrja sinn fyrsta leik í kvöld.
Viktor Jónsson fer á bekkinn.

Hlaðvarpsþátturinn Innkastið dettur inn seint í kvöld, þar verður sérstakur uppgjörsþáttur tímabilsins. Opinberað verður val á liði ársins, efnilegasta leikmanninum, besta leikmanninum, dómaranum og þjálfaranum.
Í Coke hljóðstofunni verða: Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson.

Innkastið kemur inn í kvöld - Uppgjörsþáttur

Hlaðvarpsþátturinn Innkastið dettur inn seint í kvöld, þar verður sérstakur uppgjörsþáttur tímabilsins. Opinberað verður val á liði ársins, efnilegasta leikmanninum, besta leikmanninum, dómaranum og þjálfaranum.
Í Coke hljóðstofunni verða: Elvar Geir, Valur Gunnars og sérstakur gestur er Haukur Páll Sigurðsson.

Fyrir leik
Fyrri viðureignir liðanna
Liðin hafa mæst tvisvar á tímabilinu. Í fyrri leiknum skildu þau jöfn, 3-3, í miklum markaleik á Lambhagavellinum.
Fram hafði síðan betur, 2-0, á Akranesi í lok júní þar sem Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk Framara.
Fram hafði síðan betur, 2-0, á Akranesi í lok júní þar sem Atli Þór Jónasson skoraði bæði mörk Framara.
Fyrir leik
Rúnar í viðtali eftir leikinn gegn KR
„Það er huggur í því að vera betri aðilinn gegn KR og vera meira með boltann og töluverða yfirburði í skotum á markið og allri tölfræði en KR er með hörku gott lið, þeir hittu tvisvar sinnum á markið og í bæði skiptin fór boltinn inn'', sagði Rúnar eftir leikinn gegn KR.
Fyrir leik
Frábærar fréttir fyrir Framara
Fyrir fjórum dögum kom fram að Kennie Chopart hefði framlengt samning sinn við Fram um tvö ár.
Kennie hefur verið besti maður Fram á tímabilinu og eru þetta því frábærar fréttir fyrir félagið.
Kennie hefur verið besti maður Fram á tímabilinu og eru þetta því frábærar fréttir fyrir félagið.
Fyrir leik
Böddi ræddi breytinguna á leikdeginum og annað
„Nei, það hefur engin áhrif myndi ég halda. Maður er búinn að spila á þeim æðislega tíma, mánudegi klukkan 19:15 í allt sumar, þannig ekkert til að kvarta yfir þar. Ég er bara þakklátur að vera ekki í 20 metrunum á sunnudaginn,"segir Böddi um breytinguna.
Fyrir leik
Arnar Þór dæmir leikinn
Arnar Þór Stefánsson er aðaldómari í kvöld. Honum til aðstoðar eru Eysteinn Hrafnkelsson og Eðvarð Þór Eðvarðsson.
Gunnar Oddur Hafliðason er fjórði dómari og Ólafur Ingi Guðmundsson er eftirlitsmaður.

Gunnar Oddur Hafliðason er fjórði dómari og Ólafur Ingi Guðmundsson er eftirlitsmaður.

Fyrir leik
Salatið heilsar!
Heilir og sælir, lesendur góðir, og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá Lambhagavellinum.
Klukkan 19:15 hefst leikur Fram og ÍA í Bestu deild karla.

Klukkan 19:15 hefst leikur Fram og ÍA í Bestu deild karla.

Ég þakka fyrir mig, viðtöl og skýrsla væntanleg.