Ármann Ingi snýr aftur í Grindavík (Staðfest)
Ármann Ingi Finnbogason mun leika aftur með Grindavík í ár eftir að félagið tryggði sér leikmanninn á lánssamningi frá ÍA.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25128 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Ármann Ingi Finnbogason mun leika aftur með Grindavík í ár eftir að félagið tryggði sér leikmanninn á lánssamningi frá ÍA.
Diego Jóhannesson Pando hefur lagt skóna á hilluna aðeins 31 árs að aldri en hann tilkynnti þetta í dag.
David Moyes hefur verið kynntur sem stjóri Everton. Þessi 61 árs Skoti hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning á Goodison Park eftir að Sean Dyche var rekinn á fimmtudag. Everton er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, stigi frá fallsæti. <i>„Ég átti ellefu yndisleg og vel heppnuð ár hjá Everton og hikaði ekki þegar tækifæri bauðst til að snúa aftur í þetta frábæra félag. Það er frábært að vera kominn til baka. Nú þurfum við öll að standa saman svo við getum séð til þess að við tökum á móti nýjum og mögnuðum leikvangi sem úrvalsdeildarfélag,“</i> segir Moyes. Moyes stýrði Everton 2002-2013 áður en hann tók vi ðManchester United. Hann hefur síðan stýrt Real Sociedad, Sunderland og í tvígang West Ham. Hann hefur verið án starfs síðan hann yfirgaf West Ham eftir síðasta tímabils. Hjá Hömrunum vann hann Sambandsdeildina 2023.
Southampton er búið að ganga frá öðrum kaupum sínum í janúarglugganum eftir komu Welington í byrjun mánaðar.
Sunderland er búið að krækja sér í franska miðjumanninn Enzo Le Fée á lánssamningi frá AS Roma sem gildir út tímabilið.
Plymouth Argyle, botnlið ensku Championship deildarinnar, er búið að ráða Miron Muslic sem nýjan þjálfara eftir brottrekstur Wayne Rooney.
Miðjumaðurinn Júlíus Magnússon er genginn í raðir Elfsborg frá Fredrikstad í Noregi. Hann hefur skrifað undir samning út 2029. Kaupverðið er um 1 milljón evra og gæti síðar meir hækkað upp í 1,5 milljónir evra. Allt í allt gætu þetta orðið um 225 milljónir íslenskra króna. Samkvæmt Transfermarkt hefur einungis einn kostað meira en það er Anders Svensson sem Elfsborg keypti frá Southampton fyrir tæpum 20 árum.
Unglingalandsliðsmaðurinn Galdur Guðmundsson hefur verið seldur frá FC Kaupmannahöfn til Horsens. FCK staðfestir þetta með fréttatilkynningu í dag en Fótbolti.net sagði fyrst frá skiptunum síðasta þriðjudag. Galdur skrifar undir þriggja ára samning við þá gulu.
KA hefur staðfest það að Viðar Örn Kjartansson verði með félaginu næsta sumar. Sagt var frá því á Fótbolta.net í gær að allt útlit væri fyrir að Viðar myndi leika áfram með Akureyrarfélaginu og nú er búið að staðfesta það. <i>„Eru þetta ákaflega góðar fréttir en Viðar er einhver allra mesti markaskorari í sögu Íslands og sýndi hann gæði sín með KA á síðustu leiktíð,"</I> segir í tilkynningu frá KA um að Viðar hafi gert nýjan samning.
KR hefur loksins staðfest komu Hjalta Sigurðssonar til félagsins. Fótbolti.net sagði fyrst frá því í ágúst síðastliðnum að hann væri á leið heim í Vesturbæinn. Hjalti skrifar undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið sitt.
Sóknarmaðurinn Hilmir Rafn Mikaelsson er genginn í raðir Viking í Stafangri. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið en hann gekkst undir læknisskoðun fyrr í dag. <i>„Það er mjög fínt að vera kominn hingað. Það hafa allir hjá félaginu tekið vel á móti mér,"</I> segir Hilmir.
Bandaríska fótboltakonan Allison Lowrey hefur samið við ÍBV um að leika með liðinu á komandi tímabili.
Selfyssingar hafa styrkt sig fyrir komandi átök á tímabilinu en Frosti Brynjólfsson er genginn í raðir félagsins frá Haukum.
Brasilíski leikmaðurinn Marquinhos er mættur aftur til heimalandsins og hefur gert lánssamning við Cruzeiro en hann kemur frá enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal.
Framherjinn Sebastien Haller er genginn til liðs við hollenska félagið Utrecht á láni frá Borussia Dortmund en þetta kemur fram í tilkynningu frá Utrecht í dag.
Fílabeinsstrendingurinn Amad Diallo hefur framlengt samning sinn við Manchester United til 2030.
Everton er búið að reka Sean Dyche en liðið er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið. Hann var tæp tvö ár í starfi. Hann var látinn fara nokkrum tímum fyrir bikarleik gegn Peterborough sem fram fer í kvöld.
Luton Town er búið að reka Rob Edwards eftir fjóra tapleiki í röð í Championship-deildinni. Þessi 42 ára stjóri tók við Luton í nóvember 2022 og stýrði liðinu upp í ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í yfir 30 ár 2023.
Miðjumaðurinn Alex Þór Hauksson er genginn í raðir Stjörnunnar að nýju. Félagið greindi frá þessu á samfélagsmiðlum sínum áðan. Alex var sterklega orðaður við ÍA en er nú kominn aftur í Garðabæinn.
Wolves hefur keypt varnarmanninn Emmanuel Agbadou frá Reims í Frakklandi. Kaupverðið er um 20 milljónir evra. Félagið tilkynnti nýja leikmanninn í morgunsárið.