Emmanuel Agbadou í Wolves (Staðfest)
Wolves hefur keypt varnarmanninn Emmanuel Agbadou frá Reims í Frakklandi. Kaupverðið er um 20 milljónir evra. Félagið tilkynnti nýja leikmanninn í morgunsárið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25129 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Wolves hefur keypt varnarmanninn Emmanuel Agbadou frá Reims í Frakklandi. Kaupverðið er um 20 milljónir evra. Félagið tilkynnti nýja leikmanninn í morgunsárið.
Napoli hefur fengið sóknarmiðjumanninn Luis Hasa frá Lecce. Eins og hefð er fyrir hjá Napoli þá tilkynnti forseti félagsins, Aurelio De Laurentiss, fyrstur frá kaupunum og skrifaði á samfélagsmiðla: 'Velkominn Luis!' Hasa kom til Lecce síðasta sumar á frjálsri sölu frá Juventus en Juve fær 30% af söluverðinu núna samkvæmt samkomulagi. Hasa hefur leikið fyrir öll yngri landslið Ítalíu og var ein af stjörnunum í U19 liðinu sem varð Evrópumeistari 2023. Hann er annar leikmaðurinn sem Antonio Conte og félagar í Napoli fá í glugganum en markvörðurinn Simone Scuffet kom í vikunni frá Cagliari. Napoli trónir á toppi ítölsku A-deildarinnar en stöðuna má sjá hér að neðan.
Hinn 49 ára gamli Graham Potter hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning sem stjóri West Ham. Hann tekur við af Julen Lopetegui sem var rekinn í gær, eftir sex mánuði við stjórnvölinn. Potter, sem var síðast hjá Chelsea áður en hann var rekinn í apríl 2023, tekur við West Ham í 14. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Liðið er bara með sex sigra og er sjö stigum frá fallsvæðinu.
<p>Keflavík hefur gert samning við varnarmann frá Króatíu en hann skrifar undir samning út tímabilið 2027.</p>
<p>Sævar Þór Fylkisson er genginn til liðs við Dalvík/Reyni frá KF. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.</p>
<p>Davið Örvar Ólafsson hefeur verið ráðinn aðstoðarþjálfari ÍR. Hann gerir tveggja ára samning við félagið.</p>
Birna Karen Kjartansdóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við Þrótt og verður hjá félaginu út árið 2027. Birna, sem er öflugur varnarmaður, er fædd árið 2007. Hún er uppalinn í Breiðabliki en hefur leikið fyrir Augnablik í neðri deildum undanfarin ár.
<i>„Fyrri helmingur tímabilsins 2024-25 hefur ekki verið í samræmi við metnað félagsins og félagið hefur því gripið til aðgerða,“</i> segir í yfirlýsingu West Ham en félagið er búið að reka Julen Lopetegui. Graham Potter verður að öllum líkindum ráðinn í hans stað en félagið hefur samþykkt kröfur hans um að bjóða honum tveggja og hálfs árs samning. Potter verður við stjórnvölinn á föstudag þegar West Ham leikur bikarleik gegn Aston Villa. Lopetegui er 58 ára Spánverji sem var ráðinn í maí eftir að David Moyes yfirgaf West Ham. Hann tók formlega við stjórnartaumunum þann 1. júlí en Hamrarnir unnu bara sex úrvalsdeildarleiki undir hans stjórn. 4-1 tapið gegn Manchester City á laugardaginn var níunda tap hans í 20 deildarleikjum á þessu tímabili en liðið er í 14. sæti, sjö stigum fyrir ofan fallsvæðið.
Bakvörðurinn Aron Kristófer Lárusson hefur skipt yfir Í HK. Kópavogsliðið féll úr Bestu deildinni í fyrra en Hermann Hreiðarsson tók við þjálfun þess að tímabilinu loknu.
Hinn nítján ára gamli Bjarki Steinsen Arnarsson er kominn aftur í uppeldisfélag sitt Fylki. Bjarki er snöggur kantmaður sem hefur spilað með 2. flokki FH síðustu tvö ár án þess að fá tækifæri með aðalliðinu í mótsleik. Bjarki hefur verið í æfingahópum hjá yngri landsliðum og lék með Fylki í Lengjubikarnum 2022.
<p>Robby Wakaka stoppaði ekki lengi á Íslandi en hann hefur yfirgefið FH og er farinn aftur heim til Belgíu.</p>
Þær Ásdís Þóra Böðvarsdóttir og Bergljót Júlíana Kristinsdóttir hafa gengið til liðs við Fylki og skrifuðu undir tveggja ára samning.
Íslenski varnarmaðurinn Hjörtur Hermannsson er genginn til liðs við gríska liðsins Volos frá ítalska liðinu Caarrarese.
Gísli Gottskálk Þórðarson hefur yfirgefið Víking og samið við pólska félagið Lech Poznan. Hann gerir fjögurra og hálfs árs samning.
Bournemouth hefur tryggt sér vinstri bakvörðinn Julio Soler sem er 19 ára argentínskur unglingalandsliðsmaður. Hann kemur frá Atlético Lanus í heimalandinu og er annar leikmaðurinn sem Bournemouth fær í janúarglugganum, eftir varnarmanninum Matai Akinmboni. Soler byrjaði alla leiki Argentínu á Ólympíuleikunum í París og var valinn í aðalliðshóp Argentínu í október 2024.
Englandsmeistarar Manchester City eru búnir að senda Issa Kaboré til Bremen á lánssamningi.
James Rodriguez er búinn að rifta samningi sínum við spænska félagið Rayo Vallecano. Það var ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano sem greindi frá því fyrst í morgun að viðræður væru í gangi á milli James og félagsins.
Robbie Keane hefur verið ráðinn þjálfari Ferencvaros í Ungverjalandi. Hann mætti til Búdapest í gær og skrifaði undir samning hjá félaginu á þessum ágæta mánudegi. Keane, sem er 44 ára, stýrði síðast Maccabi Tel Aviv í Ísrael en hætti þar á síðasta ári eftir að hafa unnið bæði deildina og bikarinn.
Stjarnan hefur náð samkomulagi við Hrafn Guðmundsson og hefur hann skrifað undir þriggja ára samning við félagið.
Ipswich hefur staðfest komu Ben Godfrey til liðsins en hann er á láni frá Atalanta út tímabilið.