Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25134 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR15.11.2024, 13:06

Eiður Gauti yfirgefur HK (Staðfest)

HK tilkynnti í dag að Eiður Gauti Sæbjörnsson væri búinn að kveðja félagið. Framherjinn er uppalinn hjá félaginu og sneri aftur í félagið í vor þegar hann var sóttur úr venslafélaginu Ými. Hann hefur skorað 114 mörk í 121 KSÍ leik á ferlinum, langlflest mörkin komu með Ými en hann skoraði þrjú mörk í 13 leikjum í Bestu deildinni í sumar. HK vildi halda honum innan sinna raða en þessi 25 ára leikmaður verður áfram í Bestu deildinni. Hann er sterklega orðaður við KR og hefur einnig verið orðaður við Víking.

FRÉTTIR15.11.2024, 12:33

Damir búinn að rifta samningi sínum (Staðfest)

Samningur Damirs Muminovic við Breiðablik hefur verið rift, það má sjá á heimasíðu KSÍ. Damir framlengdi samninginn sinn í ágúst og átti sá samningur að gilda út næsta tímabil. Sá samningur er nú úr gildi. Damir er á leið til Asíu, til Brúnei þar sem hann mun spila í úrvalsdeildinni í Singapúr. Fjallað var um það í vikunni að Damir myndi skrifa undir samning við DPMM og sá samningur myndi gilda út tímabilið og möguleiki væri á framlengingu.

FRÉTTIR15.11.2024, 12:23

Kristó Sigurgeirs aðstoðar Árna hjá Fylki (Staðfest) - „Gott að sjá að stefnan er sett hátt hér"

Fylkir tilkynnti rétt í þessu að Kristófer Sigurgeirsson hefði verið ráðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla. Hann aðstoðar þar Árna Frey Guðnason. Kristófer mun einnig annast fleiri verkefni m.a. á sviði afreksþjálfunar. Kristófer lék með uppeldisfélaginu Breiðabliki, Fram og Fjölni á sínum ferli. Hann var aðalþjálfari Leiknis og Reynis og var síðast aðstoðarþjálfari kvennaliðs Víkings. Fylkir verður í Lengjudeildinni á komandi tímabili eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni í ár.

FRÉTTIR14.11.2024, 15:31

Óliver Elís í Fram (Staðfest) - Sá þriðji úr Breiðholti

Fram greindi frá því í dag að Óliver Elís Hlynsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið sem gildir til þriggja ára. Fótbolti.net fjallaði um að félagaskiptin væru yfirvofandi í gær. Óliver er tvítugur Breiðhyltingur sem kemur frá uppeldisfélaginu ÍR.

FRÉTTIR14.11.2024, 14:30

Claudio Ranieri tekur við Roma (Staðfest)

Claudio Ranieri hefur tekið þjálfaraflautuna af hillunni og er tekinn við Roma á nýjan leik. Hann gerði samning við félagið sem gildir út tímabilið og eftir það mun hann sinna ráðgjafahlutverki hjá félaginu. Í tilkynningu Roma segir að hann muni koma að leitinni að næsta stjóra liðsins. Þetta er í þriðja sinn sem hann tekur við stjórnartaumunum hjá Roma á löngum þjálfaraferli.

FRÉTTIR14.11.2024, 09:49

Rúnar Páll tekur við Gróttu (Staðfest)

Rúnar Páll Sigmundsson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að taka við Gróttu. Mun hann taka við og stýra liðinu í 2. deild næsta sumar en Grótta féll úr Lengjudeildinni fyrir stuttu.

FRÉTTIR13.11.2024, 22:10

Haukur Darri í Hauka (Staðfest)

Haukur Darri Pálsson er genginn til liðs við Hauka og gerir hann tveggja ára samning við félagið sem gildir út keppnistímabilið 2026.

FRÉTTIR13.11.2024, 17:30

Unnar Jóhanns aftur ráðinn þjálfari Hamars (Staðfest)

Unnar Jóhannsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá Hamri í Hveragerði fyrir komandi tímabil. Unnar þekkir félagið vel en hann var áður yfirþjálfari yngri flokka Hamars og þjálfaði hann meistaraflokk félagsins sumarið 2021.

FRÉTTIR13.11.2024, 17:00

Guðmundur Axel yfirgefur Þrótt (Staðfest)

Guðmundur Axel Hilmarsson hefur yfirgefið herbúðir Þróttara en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. <i>„Knattspyrnudeild Þróttar og Guðmundur Axel Hilmarsson hafa komist að sameinginlegri niðurstöðu um að loka samningi Guðmundar við félagið frá og með þessu hausti,"</I> segir í tilkynningunni.

FRÉTTIR13.11.2024, 15:30

Amelía Rún aftur í Keflavík (Staðfest)

Amelía Rún Fjeldsted er aftur gengin í raðir Keflavíkur, uppeldisfélags síns. <i>&bdquo;Eftir að hafa söðlað um og leikið með Fylki er Amelía komin heim á ný, en hún á að baki um 90 leiki fyrir Keflavík þrátt fyrir að vera aðeins tvítug,"</I> segir í tilkynningu Keflavíkur.

FRÉTTIR13.11.2024, 10:10

Vera Varis í Stjörnuna (Staðfest)

Stjarnan tilkynnti í gærkvöldi að félagið hefði náð samkomulagi við Veru Varis um að hún myndi leika með liðinu á komandi tímabili. Vera er þrítugur finnskur markmaður sem kemur til Stjörnunnar frá Keflavík þar sem hún lék síðustu tvö tímabil og stóð sig vel. Fótbolti.net sagði á dögunum frá áhuga Stjörnunnar á tveimur leikmönnum Keflavíkur og var Vera önnur þeirra. Erin McLeod hefur varið mark Stjörnunnar síðustu tvö tímabil en hún hélt til Kanada í haust. Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving lék þá fimm leiki með Stjörnunni í sumar en hún er samningsbundin félaginu út næsta tímabil. Stjarnan endaði í 7. sæti Bestu deildarinnar í sumar og Jóhannes Karl Sigursteinsson er þjálfari liðsins. <b>Tilkynning Stjörnunnar</b> Samningar hafa náðst við Veru Varis að ganga til liðs við Stjörnuna, en Vera er markmaður sem kemur frá Keflavík þar sem hún hefur spilað seinustu tvö tímabil við góðan orðstír. Við bjóðum Veru innilega velkomna í félagið og hlökkum til að sjá hana í Stjörnubúningnum á komandi tímabili!

FRÉTTIR13.11.2024, 07:30

Patrick van Aanholt til Rotterdam (Staðfest)

Hollenski bakvörðurinn Patrick van Aanholt er búinn að skrifa undir samning við Sparta Rotterdam í heimalandinu, eftir að hafa leikið á láni hjá PSV Eindhoven á síðustu leiktíð.

FRÉTTIR12.11.2024, 15:46

Kristófer Ingi framlengir við Breiðablik (Staðfest) - Valur hafði áhuga

Kristófer Ingi Kristinsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistaralið Breiðabliks út árið 2026. Fyrri samningur hans við félagið runnið út núna um áramótin. Kristófer kom í Breiðablik í ágúst í fyrra eftir að hafa leikið með VVV-Venlo í hollensku B-deildinni tímabilið á undan. Hann er uppalinn hjá Stjörnunni og hafði verið úti í atvinnumennsku hjá Willem II, Grenoble, SönderjyskE og Jong PSV áður en hann hélt heim til Íslands.

FRÉTTIR12.11.2024, 10:14

Dominic Ankers tekinn við kvennaliði Gróttu (Staðfest)

Grótta tilkynnti í dag að Dominic Ankers hefði verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna. Hann tekur við af Matthíasi Guðmundssyni sem keyptur var til Vals fyrr í haust. Dom er 29 ára Englendingur sem hefur verið hjá Gróttu síðan hann kom til félagsins árið 2021. Hann hefur verið aðstoðarþjálfari í báðum meistaraflokkum og einnit þjálfað 2. og 5. flokk karla hjá félaginu.

FRÉTTIR11.11.2024, 17:13

Van Nistelrooy yfirgefur Manchester United (Staðfest)

Manchester United hefur staðfest að Ruud van Nistelrooy verði ekki áfram hjá félaginu. Van Nistelrooy hefur verið í þjálfarateymi United á yfirstandandi tímabili og stýrt liðinu til bráðabirgða eftir að Erik ten Hag var rekinn. Undir hans stjórn vann Man Utd þrjá leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði engum.

FRÉTTIR11.11.2024, 16:22

Valdimar Jóhanns til Njarðvíkur (Staðfest)

Njarðvík tilkynnti í dag að Valdimar Jóhannsson væri búinn að gera tveggja ára samning við félagið. Valdimar er kantmaður sem kemur til Njarðvíkur frá uppeldisfélagi sínu Selfossi. Valdimar er fjölhæfur leikmaður, getur leyst nokkrar stöður framarlega á vellinum.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.