Hafnaði Arsenal og gekk til liðs við Man Utd (Staðfest)

Chido Obi-Martin, 16 ára framherji, hefur skrifað undir samning við Man Utd eftir að hafa yfirgefið Arsenal í sumar.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25139 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Chido Obi-Martin, 16 ára framherji, hefur skrifað undir samning við Man Utd eftir að hafa yfirgefið Arsenal í sumar.

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir skrifaði undir nýjan samning við Keflavík sem gildir út árið 2026. Hún mun því þjálfa liðið í Lengjudeildinni næsta sumar.

KR hefur fengið tvo unga leikmenn frá Fjölni, það eru miðvörðurinn Júlíus Mar Júlíusson og markvörðurinn Halldór Snær Georgsson. Báðir eru 2004 módel og hafa skrifað undir samninga til 2027. „Júlíus Mar er kraftmikill og leikinn hafsent sem byrjaði ferilinn sinn í Vænjum Júpiters og hefur verið lykilmaður í liði Fjölnis undanfarin ár. Júlíus hefur spilað 83 leiki fyrir Fjölni og á 3 leiki með U19 landsliði Íslands. Júlíus var valinn í lið ársins í Lengjudeildinni fyrir góða frammistöðu í sumar," segir í tilkynningu KR.
Stjarnan tilkynnti rétt í þessu að Samúel Kári Friðjónsson væri búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið. Hann fær keppnisleyfi með liðinu eftir tímabilið. „Samúel Kári er kraftmikill miðjumaður sem hefur leikið með bæði íslenska landsliðinu og sterkum erlendum félögum. Með reynslu sinni og hæfileikum er Samúel lykilleikmaður á vellinum og verður frábært að sjá hann klæðast bláu treyjunni næstu árin!" segir í tilkynningu Stjörnunnar.
Ólafur Hrannar Kristjánsson skrifaði á dögunum undir samning við Leikni um að halda áfram þjálfun liðsins í Lengjudeildinni á næsta tímabili. Þá verður Nemanja Pjevic áfram aðstoðarmaður hans.
Valur hefur keypt miðjumanninn Birki Heimisson aftur til baka frá Þór. Birkir var keyptur til uppeldisfélagsins Þórs frá Val síðasta vetur og var besti leikmaður liðsins í Lengjudeildinni í sumar, skoraði fimm mörk í 17 deildarleikjum. Hann hafði leikið með Val 2020-2023.
Óliver Dagur Thorlacius er genginn í raðir KR. Félagið greindi frá tíðindinum í dag en Óliver skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Óliver er miðjumaður sem er uppalinn í KR en hefur spilað með Gróttu og svo Fjölni síðustu ár. Hann er fæddur árið 1999 og lék á sínum tíma tíu leiki með yngri landsliðum Íslans.
Pólski markvörðurinn Wojciech Szczesny er formlega genginn í raðir Barcelona. Hann skrifar undir samning sem gildir út yfirstandandi keppnistímabil.
Fjölnir tilkynnti rétt í þessu að félagið hefði náð samkomulagi við Úlf Arnar Jökulsson um að hann verði áfram þjálfari liðsins. Nýr samningur gildir til tveggja ára. Úlfur var á sínu þriðja tímabili með liðið í sumar og endaði Fjölnir í 3. sæti Lengjudeildarinnar eftir að hafa verið spáð talsvert verra gengi. Liðið var lengi vel í efsta sæti deildarinnar en tókst ekki að ná í úrslit í mörgum leikjum í röð þegar leið á tímabilið. Liðið fór í umspil um sæti í Bestu deildinni en féll úr leik í undanúrslitum fyrir Aftureldingu sem fór að lokum upp með ÍBV.
Þorri Stefán Þorbjörnsson er genginn alfarið í raðir Fram frá Lyngby og skrifar hann undir þriggja ára samning í Úlfarsárdal. Hann er því samningsbundinn út tímabilið 2027. Þorri hefur leikið á láni með Fram á tímabilinu og sagði frá því fyrr á þessu ári að hans vilji væri að yfirgefa Lyngby. Þorri er 18 ára, U19 landsliðsmaður, sem samdi við Lyngby síðasta sumar. Hann er uppalinn hjá Fram en hélt í FH fyrir tímabilið 2022 og var þar í eitt og hálft ár áður en hann samdi í Danmörku.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Það er gósentíð í fótboltanum um þessar mundir og nóg af fréttum úr íslenska og enska boltanum á listanum.
Franski framherjinn Antoine Griezmann hefur ákveðið að hætta að spila fyrir franska landsliðið, 33 ára gamall. Þessi leikmaður Atletico Madrid lék 137 landsleiki fyrir Frakkland og hjálpaði liðinu að vinna HM 2018.
Enska félagið Bromley FC er búið að krækja í varnarmanninn leikreynda Carl Jenkinson, sem á 70 keppniseiki að baki fyrir meistaraflokk Arsenal og einn A-landsleik fyrir England.

Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, staðfesti í samtali við Fótbolta.net að Marc Rochester Sörensen væri á förum frá Þór.

Þessi 31 árs gamli danski miðjumaður gekk til liðs við Þór í fyrra og lék 45 leiki og skoraði sjö mörk.

Róbert Hauksson hefur yfirgefið Leikni og er genginn í raðir Fram í Bestu deildinni. Róbert, sem er fæddur árið 2001, hefur leikið með Leikni frá 2022 en í sumar spilaði hann 15 leiki í Lengjudeildinni og skoraði fimm mörk. Hann leikur yfirleitt á kantinum.
Hermann Hreiðarsson er hættur sem þjálfari ÍBV en félagið var að staðfesta þessi tíðindi með fréttatilkynningu.
Bosníski miðjumaðurinn Miralem Pjanic er búinn að semja við CSKA Moskvu í efstu deild rússneska boltans.
Þorleifur Óskarsson er hættur þjálfun kvennaliðs ÍR en þetta staðfestir hann við Fótbolta.net. Hann nýtti sér riftunarákvæði í samningi sínum. Þorleifur hefur þjálfað ÍR frá 2022 og undir hans stjórn fór liðið upp úr 2. deild. Í sumar féll liðið úr Lengjudeildinni.
Franski varnarmaðurinn Raphaël Varane hefur óvænt lagt fótboltaskóna á hilluna eftir enn ein meiðslin sem hann verður fyrir á ferlinum. Hann er 31 árs.
Aron Einar Gunnarsson er genginn í raðir félags í Katar, hann er kominn með leikheimild þar og mun spila þar í vetur. Aron staðfesti tíðindin í samtali við Fótbolta.net. Viðtal við hann verður svo birt seinna í dag. Félagið sem Aron semur við er í Meistaradeildinni í Asíu og þar má tefla fram fleiri erlendum leikmönnum en í deildinni í Katar.