Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25140 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR30.08.2024, 13:42

Wolves kaupir tvo 18 ára leikmenn (Staðfest)

Wolves hefur gengið frá kaupum á tveimur ungum leikmönnum. Ethan Sunderland kemur frá St. Mirren í Skotlandi og Bastien Meupiyou kemur frá Nantes í Frakklandi. Báðir eru þeir átján ára gamlir. Meupiyou er varnarmaður sem kostar um 5 milljónir punda Vinstri vængmaðurinn Sutherland er talinn kosta um 300 þúsund pund en St. Mirren getur fengið fína summu í árangurstengdum greiðslum og með framtíðarsölu.

FRÉTTIR30.08.2024, 12:51

Guehi áfram hjá Palace (Staðfest) - Eigendurnir fá hrós frá Glasner

Oliver Glasner, stjóri Crystal Palace, greindi frá því á fréttamannafundi í dag að Marc Guehi verði áfram hjá félaginu. Guehi hefur verið sterklega orðaður við Newcastle í þessum glugga en Palace hefur staðið í lappirnar og alltaf beðið um hærri og svo hærri upphæð frá Newcastle. Enskir miðlar hafa sagt frá því að Newcastle hafi boðið 65 milljónir punda og fimm milljónir í árangurstengdum gjöldum í Guehi en Palace hafi sagt nei. Sú upphæð hefði gert Guehi að metkaupum hjá Newcastle.

FRÉTTIR30.08.2024, 11:53

Southampton kaupir Ramsdale (Staðfest) - Verður sá launahæsti

Southampton hefur gengið frá kaupum á Aaron Ramsdale frá Arsenal. Southampton greiðir 18 milljónir punda í staðgreiðslu en kaupverðið getur hækkað um sjö milljónir punda út frá árangurstengdum gjöldum. Southampton telur að félagið hafi náð að ganga frá öllum pappírum í tæka tíð svo Ramsdale geti spilað gegn Brentford á morgun, en það hefur ekki verið staðfest.

FRÉTTIR30.08.2024, 11:44

Leeds kaupir liðsfélaga Ísaks (Staðfest)

Leeds tilkynnti í dag um kaup á Ao Tanaka frá þýska félaginu Fortuna Düsseldorf. Tanaka er japanskur landsliðsmaður sem Leeds greiðir ríflega 4 milljónir evra fyrir. Miðjumaðurinn skrifar unfir fjögurra ára samning við Leeds sem er í ensku Championship deildinni.

FRÉTTIR30.08.2024, 11:30

Aston Villa kaupir Mosquera (Staðfest) - Lánaður til Spánar

Aston Villa tilkynnti í dag um kaup á Yeimar Mosquera sem kemur frá kólumbíska félaginu Orsomarso. Aston Villa kaupir kappann og lánar hann til Real Union sem spilar í spænsku C-deildinni. Aston Villa og Real Union eru í samstarfi.

FRÉTTIR30.08.2024, 11:19

Hólmbert til Preussen Münster (Staðfest) - „Spennandi ævintýri"

Hólmbert Aron Friðjónsson er genginn í raðir þýska félagsins Preussen Münster. Hólmbert er stór og stæðilegur framherji sem kemur til Münster eftir að samningur hans við Holstein Kiel rann út í sumar. Hann var fyrst orðaður við félagið í lok júlí.

FRÉTTIR30.08.2024, 10:00

Í BEINNI - Gluggadagur og dráttur hjá Víkingi

Gluggadagurinn er í dag. Glugganum verður lokað í enska, spænska og ítalska boltanum klukkan 22:00 í kvöld. Þýska glugganum verður lokað klukkan 18 og franska 21. <b>Hér í textalýsingu að neðan fylgjumst við með því sem er í gangi á gluggadeginum fram eftir degi</b> Einnig verður í þessari textalýsingu fylgst með því hvaða liðum Víkingur mun dragast gegn í Sambandsdeildinni en sá dráttur verður klukkan <b>12:30</b>. <b>Það allra helsta á gluggadeginum hingað til:</b> <a href="https://fotbolti.net/news/30-08-2024/southampton-kaupir-ramsdale-stadfest-verdur-sa-launahaesti" target="_blank">Ramsdale til Southampton (Staðfest)</a> <a href="https://fotbolti.net/news/30-08-2024/toney-fer-med-osimhen-til-ah-ahli-a-leid-i-laeknisskodun" target="_blank">Toney og Osimhen á leið til Sádi-Arabíu</a> <a href="https://fotbolti.net/news/30-08-2024/gluggadagssludrid-gerir-arsenal-tilbod-i-sterling" target="_blank">Slúðrið - Fer Sterling til Arsenal?</a>

FRÉTTIR30.08.2024, 09:49

Ungverskur markvörður til Arnórs og félaga (Staðfest)

Ungverski markvörðurinn Balazs Toth er kominn til Blackburn Rovers í Championship-deildinni. Þar verður hann samherji íslenska landsliðsmannsins Arnórs Sigurðssonar. Honum er ætlað að keppa við Aynsley Pears um markvarðarstöðuna hjá Blackburn. Toth er 26 ára, kemur frá Fehervar FC og hefur gert þriggja ára samning við Blackburn. Blackburn er með sjö stig úr þremur fyrstu leikjum sínum í Championship-deildinni þetta tímabilið.

FRÉTTIR30.08.2024, 09:11

Johnstone til Wolves (Staðfest)

Úlfarnir hafa fengið markvörðinn Sam Johnstone frá Crystal Palace en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning í Wolverhampton. Johnstone er 31 árs og hafði beðið um að fá að yfirgefa Palace. Leicester City, Nottingham Forest og Southampton sýndu honum áhuga áður en Wolves krækti í hann.

FRÉTTIR30.08.2024, 09:05

Maupay til Marseille (Staðfest)

Framherjinn Neal Maupay hefur yfirgefið ensku úrvalsdeildina en hann er farinn til Olympique de Marseille í Frakklandi. Marseille fær hann lánaðan út tímabilið en er skyldugt til að kaupa hann að því loknu.

FRÉTTIR29.08.2024, 22:37

El Khannouss til Leicester (Staðfest)

<p>Bilal El Khannouss er genginn til liðs við Leicester en þessi tvítugi Marokkói skrifar undir fjögurra ára samning</p>

FRÉTTIR29.08.2024, 14:31

Wout Weghorst til Ajax (Staðfest)

Ajax hefur gengið frá kaupum á Wout Weghorst frá Burnley. Hollenski framherjinn skrifar undir tveggja ára samning í Amsterdam. Weghorst kom til Burnley í janúar 2022 en kom einungis við sögu í 22 leikjum fyrir félagið. Hann var lánaður til Besiktas og Manchester United á þarsíðasta tímabili og á síðasta tímabili lék hann með Hoffenheim.

FRÉTTIR29.08.2024, 14:18

Romelu Lukaku keyptur til Napoli (Staðfest)

Napoli hefur gengið frá kaupum á belgíska framherjanum Romelu Lukaku frá Chelsea. Lukaku var ekki í plönum Chelsea og hefur svo sem ekki verið það síðustu ár. Hjá Napoli hittir Lukaku fyrir Antonio Conte sem náði því besta út úr Lukaku hjá Inter. Lukaku skoraði þar 47 mörk í 72 deildarleikjum. Lukaku er 31 árs og var keyptur til Chelsea af Inter árið 2021. Chelsea greiddi 97,5 milljónir punda fyrir Lukaku sem er sjöunda hæsta kaupverð sögunnar, en hann náði ekki sömu hæðum og hann náði hjá Inter tímabilin á undan.

FRÉTTIR29.08.2024, 13:16

Chiesa til Liverpool (Staðfest) - Draumur að verða að veruleika

Federico Chiesa er nýr leikmaður Liverpool, félagið tilkynnti félagaskipti hans í dag. Liverpool kaupir hann af Juventus. <i>Sky Sports</I> segir að Liverpool greiði Juventus 10 milljónir punda og verðmiðinn hækki um 2,5 milljónir punda ef Liverpool nær að vinna úrvalsdeildina og Meistaradeildina með Chiesa innanborðs.

FRÉTTIR29.08.2024, 11:35

Trippier leggur landsliðsskóna á hilluna (Staðfest)

Enski bakvörðurinn Kieran Trippier hefur tilkynnt það á Instagram að hann sé hættur að leika fyrir landsliðið. <i>„Ég bjóst aldrei við því sem ungur drengur frá Bury að ég myndi spila fyrir þjóð mína, hvað þá að ég myndi ná 54 landsleikjum. Það hefur verið einn mesti heiður lífs míns að spila fyrir England á fjórum stórmótum,"</i> skrifar Trippier. Hann þakkar starfsliði enska landsliðsins, samherjum sínum og stuðningsmönnum. <i>„Við höfum átt góðar stundir, komist tvisvar í úrslitaleik EM og í undanúrslit á HM. Ég trúi því að í framtíðinni vinni þessi hópur stórmót."</i> Trippier er 33 ára hægri bakvörður sem spilar fyrir Newcastle. Hann hóf að spila fyrir enska landsliðið 2017 og lék alls 54 leiki og skoraði eitt mark. Hann er fyrrum leikmaður Burnley, Tottenham og Atletico Madrid en hann lék í sex leikjum fyrir England á EM í Þýskalandi í sumar.

FRÉTTIR29.08.2024, 10:33

Chelsea lánar Petrovic til Strasbourg (Staðfest)

Markvörðurinn Djordje Petrovic hefur samþykkt að fara til Strasbourg á lánssamningi út tímabilið. Þessi 24 ára Serbi lék 31 sinni undir stjórn Mauricio Pochettino á síðasta tímabili en Robert Sanchez er aðalmarkvörður liðsins. Petrovic færir sig um set eftir að Chelsea keypti markvörðinn Filip Jörgensen frá Villarreal.

FRÉTTIR29.08.2024, 08:22

Kepa til Bournemouth (Staðfest)

Enska úrvalsdeildarfélagið Bournemouth hefur fengið spænska markvörðinn Kepa Arrizabalaga lánaðan frá Chelsea. Kepa er 29 ára og var hjá Real Madrid á lánssamningi á síðasta tímabili. Hinn 35 ára gamli Brasilíumaður Neto hefur spilað í marki Bournemouth í fyrstu þremur leikjum tímabilsins. <i>„Það er mikið gleðiefni að fá leikmann á borð við Kepa til Bournemouth. Við vissum að það væri möguleiki á að fá hann og ákváðum að nýta tækifærið,"</i> segir Neill Blake, framkvæmdastjóri Bournemouth. Kepa er dýrasti markvörður heims eftir að Chelsea keypti hann árið 2018 fyrir 71 milljón punda frá Athletic Bilbao. Hann framlengdi í vikunni samning sinn við Chelsea til 2026.

FRÉTTIR29.08.2024, 08:08

Lyndon Dykes orðinn samherji Willums (Staðfest)

Birmingham City hefur fengið til sín fjórtán leikmenn í félagaskiptaglugganum, þar á meðal íslenska landsliðsmanninn Willum Þór Willumsson. Nýjasti leikmaður liðsins er skoski sóknarmaðurinn Lyndon Dykes sem hefur verið keyptur frá Queens Park Rangers. Hann skoraði 37 mörk í 165 leikjum fyrir QPR en hefur gert þriggja ára samning við Birmingham. Birmingham spilar í League One, C-deildinni, og er með sjö stig úr fyrstu þremur leikjum sínum. Þá má geta þess að Birmingham hefur tilkynnt að framherjinn Juninho Bacuna hafi yfirgefið félagið til að ganga í raðir Al-Wehda í Sádi-Arabíu.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.