FRÉTTIR19.07.2024, 10:05
Aston Villa hefur fengið U21 landsliðsmanninn enska Jaden Philogene aftur frá Hull, innan við tólf mánuðum eftir að hafa selt hann.
Philogene hefur skrifað undir fimm ára samning við Villa sem jafnaði 18 milljóna punda tilboð sem Ipswich hafði gert í hann.
FRÉTTIR19.07.2024, 09:30
Danmörk er í leit að nýjum landsliðsþjálfara en Kasper Hjulmand er hættur með liðið eftir fjögurra ára starf.
Hans síðasti leikur við stjórnvölinn var tapið gegn Þýskalandi í 16-liða úrslitum EM.
Hjulmand er 52 ára og er fyrrum stjóri Nordsjælland, Mainz og Lyngby. Hann tók við danska landsliðinu af Age Hareide árið 2020.
FRÉTTIR19.07.2024, 08:30
Georgíumaðurinn Georges Mikautadze er kominn til Lyon frá Metz en hann gerði fjögurra ára samning við franska félagið.
FRÉTTIR19.07.2024, 07:00
Ítalska félagið Juventus hefur fest kaup á kólumbíska varnarmanninum Juan Cabal frá Hellas Verona.
FRÉTTIR19.07.2024, 06:00
Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen gerðu þriðju kaup sín á markaðnum í sumar í gær en franski sóknarmaðurinn Martin Terrier er kominn til félagsins frá Rennes í Frakklandi.
FRÉTTIR19.07.2024, 06:00
Danski landsliðsmarkvörðurinn Kasper Schmeichel er mættur til skoska meistaraliðsins Celtic en hann kemur frá Anderlecht í Belgíu.
FRÉTTIR18.07.2024, 22:27
Dalvík/Reynir í Lengjudeild karla hefur fengið sóknarmanninn Hassan Jalloh á láni frá Grindavík út tímabilið.
FRÉTTIR18.07.2024, 19:02
Manchester United hefur gengið frá kaupum á franska miðverðinum Leny Yoro frá Lille. Þetta kemur fram í tilkynningu enska félagsins í kvöld.
FRÉTTIR18.07.2024, 18:15
Franska félagið Marseille hefur staðfest kaupin á Mason Greenwood frá Manchester United. Hann gerði fimm ára samning og mun klæðast treyju númer 10.
FRÉTTIR18.07.2024, 18:02
Englandsmeistarar Manchester City hafa staðfest kaupin á brasilíska leikmanninum Savinho en hann kemur til félagsins frá Troyes í Frakklandi.
FRÉTTIR18.07.2024, 15:30
Gabonski framherjinn Pierre Emerick Aubameyang er genginn í raðir Al Qadsiah í Sádi-Arabíu, eftir að hafa leikið með Marseille í Frakklandi í eitt tímabil.
Þessi 35 ára leikmaður skoraði 30 mörk í 51 leik fyrir Marseille en hann kom til félagsins eftir að hafa floppað hjá Chelsea þar sem hann skoraði einungis þrjú mörk í 21 leik eftir að hafa komið frá Barcelona.
FRÉTTIR18.07.2024, 13:54
Dortmund tilkynnti rétt í þessu að Serhou Guirassy væri formlega orðinn leikmaður félagsins. Hann er keyptur frá Stuttgart þar sem hann átti frábært tímbil og var eftirsóttur af mörgum félögum.
Guirassy er landsliðsmaður Gíneu, 28 ára framherji, sem skrifar undir fjögurra ára samning.
FRÉTTIR18.07.2024, 12:19
Víkingur hefur lánað hinn 19 ára gamla Kára Vilberg Atlason til Njarðvíkur í Lengjudeildinni. Kári er uppalinn Bliki sem skrifaði undir samning við Víking fyrir síðasta tímabil.
Hann kom við sögu í leikjum með meistaraflokki í vetur og kom inn á í sigrinum gegn Víði í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Hann verður hjá Njarðvík út tímabilið.
Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem fór á reynslu til FC Nordsjælland og var í úrtakshóp U17 landsliðsins á sínum tíma.
FRÉTTIR18.07.2024, 12:18
Enska úrvalsdeildarfélagið Nottingham Forest hefur tilkynnt um komu varnarmannsins Nikola Milenkovic frá Fiorentina.
Þessum 26 ára Serba er ætlað að fylla skarð miðvarðarins Moussa Niakhate sem var seldur til Lyon í Frakklandi.
Milenkovic á 56 landsleiki fyrir Serbíu og lék alla leiki liðsins á nýafstöðnu Evrópumóti. Hann hóf feril sinn hjá Partizan í Belgrad.
Milenkovic spilaði 264 leiki fyrir ítalska félagið, skorað sautján mörk og átt fimm stoðsendingar.
FRÉTTIR18.07.2024, 11:30
Pepe Reina, fyrrum markvörður Napoli og Liverpool, hefur samið við ítalska félagið Como sem er nýliði í ítölsku A-deildinni.
Reina hefur verið hjá Villarreal undanfarin tvö tímabil en samningur hans rann út í júní.
FRÉTTIR18.07.2024, 11:22
Helgi Hafsteinn Jóhannsson er genginn í raðir danska félagins Álaborgar frá uppeldisfélaginu Grindavík. Frá þessu greinir hann sjálfur á Instagram reikningi sínum en félagaskiptin hafa legið í loftinu eins og lesendur Fótbolta.net vita.
FRÉTTIR18.07.2024, 10:08
Natasha Anasi hefur skrifað undir samning við Val og er gengin í raðir félagsins frá Brann í Noregi.
Fótbolti.net sagði frá því í síðustu viku að hún væri að ganga í raðir Íslandsmeistara Vals.
FRÉTTIR17.07.2024, 22:30
<p>ÍR-ingar hafa komið mörgum á óvart í Lengjudeildinni í sumar. Liðið situr í 4. sæti deildarinnar og spila við Keflvíkinga í Mjóddinni á morgun. Með sigri og öðrum hagstæðum úrslitum gætu Breiðhyltingar farið upp í 2. sætið.</p>
FRÉTTIR17.07.2024, 19:00
Ítalska félagið Roma hefur staðfest félagaskipti ástralska markvarðarins Mathew Ryan en hann kemur á frjálsri sölu.
FRÉTTIR17.07.2024, 17:30
Nýliðar Ipswich í ensku úrvalsdeildinni hafa krækt í markvörðinn Arijanet Muric frá Burnley. Muric er landsliðsmarkvörður Kosóvó og lék tíu leiki með Burnley þegar það féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Ipswich borgar 10 milljónir punda fyrir þennan 25 ára markvörð en kaupverðið gæti hækkað um 5 milljónir eftir ákvæðum.
<i>„Ég er spenntur fyrir því að byrja. Ég sá hvernig liðið spilaði síðasta tímabil og ég tel að leikstíllinn henti mér vel,"</i> sagði Muric í viðtali við miðla Ipswich.
Muric hóf aðalliðsferil sinn hjá Manchester City en hann lék 41 leik fyrir Burnley þegar liðið vann Championship-deildina 2022-23 tímabilið.
Ipswich hafnaði í öðru sæti Championship-deildarinnar á síðasta tímabili og komst beint upp. Vaclav Hladky var þá aðalmarkvörður liðsins en ekki náðist samkomulag um nýjan samning við hann og því yfirgaf hann félagið í sumar.