Vermeeren til Atlético (Staðfest)
Atlético Madrid er búið að staðfesta félagsskipti á belgíska undrabarninu Arthur Vermeeren til félagsins.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25162 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Atlético Madrid er búið að staðfesta félagsskipti á belgíska undrabarninu Arthur Vermeeren til félagsins.
Sheffield United hefur keypt króatíska markvörðinn Ivo Grbic frá Atletico Madrid en kaupverðið er ekki gefið upp. Þessi 28 ára leikmaður var varamarkvörður hjá Atletico en skrifar undir samning til 2027 á Bramall Lane. Hann gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir félagið á morgun þegar það mætir Brighton.
Miðjumaðurinn Leander Dendoncker er genginn í raðir Napoli á láni frá Aston Villa út tímabilið. Dendoncker kom við sögu í átta leikjum með Villa í úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Einungis einu sinni var hann í byrjunarliðinu.
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Hákon Rafn Valdimarsson hefur skrifað undir samning við enska félagið Brentford sem gildir fram á sumarið 2028. Brentford tilkynnti um komu hans í dag og beðið er eftir leikheimild. Félagið getur framlengt samninginn um tvö ár til viðbótar. Hann er keyptur frá sænska félaginu Elfsborg þar sem hann hefur varið mark liðsins undanfarið eitt og hálft tímabil. Hann var valinn besti markvörður sænsku deildarinnar í lok síðasta tímabils. Hann hélt hreinu oftast (13) og af markvörðum deildarinnar varði hann hlutfallslega hæstu prósentuna af skotum sem hann fékk á sig. Hákon er 22 ára og er hann uppalinn hjá Gróttu. Hann var keyptur til Elfsborg sumarið 2021 og lék hann sinn fyrsta leik þremur mánuðum eftir komu sína til Svíþjóðar. Í nóvember lék hann sinn fyrsta keppnisleik fyrir A-landsliðið þegar hann varði mark liðsins gegn Portúgal og fékk hann mikið lof fyrir frammistöðu sína.
Chelsea hefur gengið frá kaupum á kólumbíska sóknarmanninum Mayra Ramirez frá Levante á Spáni.
Jurgen Klopp tilkynnti það í morgun að hann myndi hætta sem stjóri Liverpool eftir tímabilið en nú hefur það einnig verið gefið út að Jörg Schmadtke sé að hætta sem yfirmaður fótboltamála hjá félaginu.
Jurgen Klopp hefur tilkynnt Liverpool að hann ætli að láta af störfum sem stjóri liðsins eftir tímabilið. Liverpool <a href="https://www.liverpoolfc.com/news/jurgen-klopp-announces-decision-step-down-liverpool-manager-end-season" target="_blank">greinir frá þessu</a> í tilkynningu á heimasíðu sinni. Aðstoðarmenn hans munu einnig láta af störfum, þar á meðal Pepjin Lijnders sem ætlar að feta sína eigin braut sem knattspyrnustjóri. Klopp tók við stjóri Liverpool í október 2015 en samnijngur hans átti að renna út 2026. Hann gerði Liverpool að Englandsmeistara 2019-20 eftir 30 ára bið félagsins. Tímabilið á undan vann Liverpool sjálfa Meistaradeildina. Klopp segir á heimasíðu Liverpool að hann hafi tilkynnt stjórn félagsins um ákvörðun sína í nóvember. Hann segir að hann telji nauðsynlegt að tilkynna þetta tímanlega svo félagið fái svigrúm til að vinna í þjálfarabreytingunum. Hann segist elska félagið, borgina og stuðningsmennina en finni að hann hafi ekki orku til að vinna þeta starf mikið lengur. Fótbolti.net mun flytja fjölda frétta í dag með viðbrögðum við þessum stórtíðindum og fleira en hér að neðan má sjá viðtal við Klopp þar sem hann fer yfir þessa ákvörðun.
Miðjumaðurinn Kalvin Phillips er genginn í raðir West Ham á láni frá Englands- og Evrópumeisturum Manchester City.
KFA hefur bætt tveimur öflugum leikmönnum við hóp sinn en þeir Matheus Gotler og Matteo Guarnieri eru komnir til félagsins.
Íslenska landsliðskonan Lára Kristín Pedersen er gengin í raðir hollenska félagsins Fortuna Sittard frá Val.
Markvörðurinn Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur samið við Val út keppnistímabilið, en hún kemur til félagsins frá Þrótti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Val.
Brasilíski táningurinn Gabriel Moscardo skrifaði í dag undir fjögurra ára samning við franska félagið Paris Saint-Germain.
Selfoss tilkynnti í dag um komu Alfredo Ivan til félagsins. Alfredo skrifar undir tveggja ára samning á Selfossi. Alfredo spilaði síðast með yngri flokkum Selfoss sumarið 2016 en síðan þá hefur hann leikið með Fylki, Elliða, Stokkseyri, Árborg og nú síðast Árbæ. Hanns koraði þrjú mörk í nítján leikjum í 3. deildinni í sumar. Alfredo fæddist árið 1999 í Paragvæ en kom til Íslands árið 2012, nánar tiltekið á Selfoss þar sem hann hóf að æfa knattspyrnu með yngri flokkum félagsins
Njarðvík tilkynnti rétt í þessu um komu nýs leikmanns til félagsins. Markvörðurinn Aron Snær Friðriksson hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Áhugi var á Aroni í Noregi og þá var hann einnig orðaður við Þrótt R. en hann ákvað að semja við Njarðvík. Aron mun verja mark Njarðvíkur í sumar og tekur við stöðu Robert Blakala sem varði mark liðsins síðustu þrjú tímabil en samdi við Selfoss á dögunum.
Þróttur hefur fengið tvo leikmenn á láni frá Víkingi. Þeir Ísak Daði Ívarsson og Sigurður Steinar Björnsson hafa fengið tímabundin félagaskipti frá Víkingi í Þrótt. Sigurður Steinar lék með Gróttu í Lengjudeildinni í fyrra og skoraði tvö mörk. Hann er fæddur árið 2004 og á að baki fjóra U19 landsleiki og komu þeir allir árið 2022. Sigurður framlengdi á dögunum samning sinn við Víking og er nú samningsbundinn út 2025.
Danska félagið AB tilkynnti í dag að það væri búið að festa kaup á sóknarsinnaða miðjumanninum Ágústi Hlynssyni. Hann skrifar undir samning sem gildir fram á sumarið 2027. <i>„Ágúst kemur til okkar á mikilvægum tíma á hans ferli og við erum mjög spenntir að hann hafi valið að vinna með okkur og að hann þrói sinn leik áfram hér hjá AB fjölskyldunni,"</I> segir David Roufpanah sem er þjálfari liðsins.
Englands- og Evrópumeistarar Manchester City hafa staðfest að Claudio Echeverri sé genginn í raðir félagsins. Hann skrifar undir samning til 2028 við City en hann verður áfram hjá River Plate í Argentínu til loka þessa árs.
Leikur Íslands og Ísrael í umspili fyrir Evrópumótið mun fara fram í Búdapest í Ungverjalandi.
Bandaríski landsliðsmaðurinn Nicholas Gioacchini hefur samið við ítalska B-deildarliðið Como en hann kemur til félagsins frá St. Louis í Bandaríkjunum.
Í dag var tilkynntur nýr markvörður hjá Þrótti. Mollee Swift kemur til félagsins í febrúar frá Bandaríkjunum og gaf félagið út að hún myndi verja mark liðsins. Íris Dögg Gunnarsdóttir hefur varið mark Þróttar undanfarin þrjú ár og var valin í A-landsliðið nokkrum sinnum á síðustu tveimur árum. Hún fékk fyrst kallið á EM þegar hún var kölluð inn í hópinn vegna meiðsla í markvarðahópnum.