Coventry til Charlton (Staðfest)
Charlton Athletic hefur keypt Conor Coventry frá West Ham en kaupverð er ekki gefið upp. Þessi 23 ára miðjumaður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við enska C-deildarliðið.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25163 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Charlton Athletic hefur keypt Conor Coventry frá West Ham en kaupverð er ekki gefið upp. Þessi 23 ára miðjumaður hefur skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við enska C-deildarliðið.
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við þýska úrvalsdeildarfélagið Duisburg sem gildir til næsta sumars. Hún kemur til Duisburg frá Noregsmeisturum Vålerenga. Ingibjörg hafði verið með bestu leikmönnum norsku deildarinnar frá því kom frá Djurgården í Svíþjóð árið 2019.
Breiðablik hefur tilkynnt um það að tveir nýir meðlimir hafi bæst við starfsteymi meistarflokks karla.
Breiðablik hefur tilkynnt komu Arons Bjarnasonar til félagsins.
Wigan Athletic hefur fengið varnarmanninn Luke Chambers lánaðan frá Liverpool út tímabilið. Chambers er nítján ára gamall og hefur komið við sögu í fjórum aðalliðsleikjum fyrir Liverpool á tímabilinu, þar á meðal í tveimur í Evrópudeildum.
Jakob Franz Pálsson hefur skrifað undir samning við Val. Frá þessu greinir félagið rétt í þessu. Jakob sem fæddur er árið 2003 kemur til Valsmanna frá Venezia á Ítalíu en hann lék með KR í Bestu deildinni síðasta sumar. Valur og Venezia komust að samkomulagi um að Jakob yrði leikmaður Vals og er samningurinn til fjögurra ára.
Varnarmaðurinn Ian Maatsen er kominn til Borussia Dortmund í Þýskalandi, þar sem hann verður á láni út tímabilið. Áður en Maatsen undirritaði lánssamninginn þá framlengdi hann samning sinn við Chelsea til 2026. Þessi 21 árs leikmaður hefur komið við sögu í 15 leikjum fyrir Chelsea á tímabilinu en aðeins þrisvar í byrjunarliðinu.

Leonardo Bonucci er genginn til liðs við Fenerbache en hann gerir samning út tímabilið.

Telma Hjaltalín Þrastardóttir er komin aftur heim í Aftureldingu en hún gerir samning út komandi tímabil.

Yunus Emre Konak er genginn til liðs við Brentford frá tyrkneska félaginu Sivasspor. Kaupverðið er talið vera 4 milljónir punda.

Eric Dier er genginn til liðs við Bayern Munchen frá Tottenham.

Radu Dragusin er genginn til liðs við Tottenham frá Genoa.

Djed Spence er genginn til liðs við Genoa frá Tottenham á láni.

Óskar Örn Hauksson er kominn með leikheimild með Víkingi en hann hefur fengið félagaskipti frá Grindavík þar sem hann lék á síðasta tímabili. Óskar var í vetur ráðinn styrktarþjálfari Víkings og í viðtali í kjölfar þeirra tíðinda vildi hann ekki staðfesta að skórnir væru komnir upp í hillu. Óskar hefur æft með Víkingi í vetur og sagði þjálfarinn Arnar Gunnlaugsson í viðtali að Óskar hefði verið bestur á æfingu.
Norðmaðurinn Magne Hoseth hefur verið ráðinn nýr þjálfari Lyngby. Hann tekur við starfinu af Frey Alexanderssyni sem var ráðinn til Kortrijk í Belgíu á dögunum.
Á X-reikningi hlaðvarpsþáttarins Gula Spjaldið er sagt frá því að Aron Bjarnason sé búinn að velja Breiðablik. Þar er sagt að hann velji Breiðablik fram yfir Val og að Valsmenn hefðu verið búnir að undirbúa blaðamannafund þar sem kynna átti Aron sem nýjan leikmann félagsins. Aroni hafi hins vegar snúist hugur á síðustu stundu.
Fram kom í hlaðvarpsþættinum Dr. Football á dögunum að danski framherjinn Anton Söjberg yrði ekki með HK í sumar. Fótbolti.net ræddi við Ómar Inga Guðmundsson sem er þjálfari HK og var hann spurður út í Anton.
Jadon Sancho er aftur orðinn leikmaður Borussia Dortmund í Þýskalandi. Þetta var staðfest núna rétt í þessu.
FC Kaupmannahöfn, stærsta félag Norðurlanda, heldur áfram að sækja unga og efnilega íslenska fótboltamenn til sín.
Miðjumaðurinn Hanna Kallmaier hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH.