Kristófer Reyes til Tælands (Staðfest)
Varnarmaðurinn Kristófer Reyes hefur samið við Krabi FC í Tælandi. Samningurinn gildir þangað til í vor.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25165 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Varnarmaðurinn Kristófer Reyes hefur samið við Krabi FC í Tælandi. Samningurinn gildir þangað til í vor.
Íslandsmeistarar Vals halda áfram að þétta raðirnar fyrir komandi tímabil í Bestu deildinni. Liðið er að styrkja sig enn frekar og nú með bandarískum leikmanni. Hailey Allende Whitaker er hægri bakvörður frá Birmingham í Alabama. Hún lék fyrir Auburn háskólann þar sem hún er næst leikjahæsti leikmaður liðsins frá upphafi með 94 leiki. Þaðan útskrifaðist hún árið 2022 og kemur til Vals frá Åland United í Finnlandi. Hún lék fjórtán leiki með Åland United á síðasta tímabili og endaði liðið í þriðja sæti finnsku deildarinnar.
Jólafríið var ekki langt hjá Ágústi Orra Þorsteinssyni. Hann er leikmaður Genoa og leikur þar með vara- og unglingaliði félagsins. Fimm daga fékk hann á Íslandi áður en hann þurfti að snúa aftur til Genoa. Fótbolti.net ræddi við hann á dögunum um fyrstu mánuðina á Ítalíu.
Freyr Alexandersson er hættur þjálfun Lyngby en þetta kom fyrst fram hjá BT. Bold segir að Freyr sé að taka við Kortrijk í belgísku úrvalsdeildinni. Freyr hefur vakið mikla athygli fyrir árangur sinn hjá Lyngby, hann kom liðinu upp í efstu deild og náði að halda því þar með ótrúlegum hætti á síðasta tímabili eftir að staðan var svört. Liðið siglir nú lygnan sjó í deildinni. Önnur félög í Danmörku höfðu sýnt Frey áhuga og hann verið orðaður við Viborg og OB. Samkvæmt dönskum fjölmiðlum er hann að taka við Kortrijk sem situr í neðsta sæti belgísku deildarinnar með tíu stig eftir tuttugu umferðir. Forráðamenn félagsins vonast væntanlega til þess að hann framkvæmi aðra eins björgun og hann gerði með Lyngby.
Ipswich hefur fengið vængmanninn Jeremy Sarmiento lánaðan frá Brighton út tímabilið. Ipswich situr í 2. sæti Championship-deildarinnar. Ekvadorski landsliðsmaðurinn lék á láni hjá West Brom fyrri hluta tímabilsins og skoraði tvisvar í 21 leik. Brighton kallaði hann aftur til baka þann 1. janúar og hefur nú lánað hann til Ipswich.
Ólafur Karl Finsen hefur lagt skóna á hilluna en hann tilkynnti þetta á samfélagsmiðlum í dag.
Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin í raðir Vals en hún kemur til félagsins eftir að hafa síðast spilað með Breiðabliki. Hún skrifar undir tveggja ára samning við Íslandsmeistarana en samkvæmt heimildum Fótbolta.net sýndu nýliðar Víking henni einnig áhuga.

Borja Lopez Laguna hefur framlengt samning sinn við Dalvík/Reyni og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.

Borja er 29 ára gamall og hefur leikið með Dalvík/Reyni frá árinu 2019. Hann hefur leikið 115 leiki fyrir félagið og skorað 57 mörk.

Pape Matar Sarr hefur skrifað undir nýjan samning við Tottenham sem gildir til ársins 2030.

Jamaíkumennirnir Richard King og Dwayne Atkinson hafa yfirgefið herbúðir ÍBV. Samningar þeirra við félagið eru á enda og samkvæmt vefsíðu KSÍ hafa þeir fengið félagaskipti heim til Jamaíku.
Markvörðurinn Birta Guðlaugsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Víkings.
Janúarglugginn er opinn og fyrstu leikmannakaupin hafa átt sér stað á Ítalíu. Atalanta hefur tilkynnt um kaup á sænska miðverðinum Isak Hien frá Verona. Hien er 24 ára og lék við hlið Alexander Isak, núverandi framherja Newcastle, í yngri liðum AIK á sínum tíma. Hann hefur leikið sem miðvörður síðan 2017. Hann vakti athygli með Djurgarden í heimalandinu áður en hann gekk í raðir Verona í ágúst 2022.
Valur tilkynnti í dag að félagið hefði náð samkomulagi við Stefán Þór Ágústsson um að ganga í raðir félagsins. Stefán er markvörður sem fæddur er árið 2001 en hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 129 leiki fyrir meistaraflokk Selfoss.
Stuttri stjóratíð Wayne Rooney hjá Birmingham er lokið. Enskir fjölmiðlar segja að búið sé að reka þennan fyrrum leikmann Manchester United og Englands. Stuðningsmenn Birmingham snérust gegn Rooney eftir 3-0 tap gegn Leeds í gær en liðið hefur aðeins unnið tvo af fimmtán leikjum síðan hann tók við af John Eustace í byrjun október.

Danski varnarmaðurinn Kristian Riis hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna aðeins 26 ára að aldri vegna meiðsla.

Þröstur Mikael Jónasson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Dalvík/Reyni.

Skoska félagið Dundee tilkynnti í dag að Liverpool hafi kallað Owen Beck til baka úr láni.
Donny van De Beek, leikmaður Manchester United, er genginn í raðir Eintracht Frankfurt á láni út tímabilið. Þýska félagið fær svo að velja hvort það nýti sér kauprétt á honum upp á 11 milljónir punda auk 3 milljóna til viðbótar ef skilyrðum er mætt.

Oliver Stefánsson er mættur aftur í uppeldisfélag sitt, ÍA, en þetta staðfesti félagið rétt í þessu.

Fóboltaárinu 2023 er að ljúka og því er kominn tími á að renna yfir mest lesnu fréttir ársins á Fótbolta.net. Topp 100 listinn er fjölbreyttur en þar má finna fréttir úr hinum ýmsu áttum fótboltans, innanlands sem utan. Fótbolti.net þakkar fyrir árið sem er að líða!