Fotbolti.net
02.01.24 - 10:39
Elvar Geir Magnússon

Rooney rekinn frá Birmingham - Liðið í frjálsu falli undir hans stjórn

Rooney gekk hörmulega hjá Birmingham.

Rooney gekk hörmulega hjá Birmingham.

Canon

Mynd: Getty Images

Stuttri stjóratíð Wayne Rooney hjá Birmingham er lokið. Enskir fjölmiðlar segja að búið sé að reka þennan fyrrum leikmann Manchester United og Englands.

Stuðningsmenn Birmingham snérust gegn Rooney eftir 3-0 tap gegn Leeds í gær en liðið hefur aðeins unnið tvo af fimmtán leikjum síðan hann tók við af John Eustace í byrjun október.
Stuðningsmenn voru margir hverjir ósáttir við brottrekstur Eustace þar sem liðið var í sjötta sæti Championship-deildarinnar þegar Rooney var ráðinn.

Eigendur félagsins vildu fá stærra nafn við stjórnvölinn en undir stjórn Rooney hefur Birmingham hrapað niður í 20. sæti.

Alls hefur Rooney á stjóraferlinum stýrt í 152 leikjum; unnið 41, gert 38 jafntefli og tapað 73 leikjum.

Lee Carsley þjálfari enska U21 landsliðsins er meðal nafna sem hafa verið orðuð við Birmingham. Þá veltir Mirror því fyrir sér hvort félagið gæti hreinlega reynt að fá Eustace til að taka við aftur en hann er enn að fá laun hjá félaginu.

Uppfært (Staðfest) 11:07: Birmingham hefur staðfest brottrekstur Rooney. Í yfirlýsingu félagsins er sagt að þó hann hafi lagt allt í verkefnið hafi árangurinn verið vonbrigði og stjórnin talið best fyrir hag félagsins að gera stjóraskipti.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Birmingham000
1Coventry46+5295
1Cardiff City5+815
2Blackburn000
2Ipswich Town46+3384
2Ipswich Town5+312
3Leeds5+511
3Bolton000
4Wolves5+310
4Bristol City000
5Burnley000
5Sheffield Utd5+19
6Hull City46+473
6Nott. Forest509
6Cardiff City000
7Preston NE5+18
7Charlton Athletic000
8Hull City5+57
8Derby County000
9Lincoln City000
9Middlesbrough5+17
10Middlesbrough000
10QPR507
11Millwall000
11Reading507
12Norwich000
12Derby County5-27
13Bristol City5+16
13Portsmouth000
14Fulham5+16
14Preston NE000
15QPR000
15Barnsley506
16Sheffield Utd000
16Sheffield Wed506
17Millwall5+25
17Southampton000
18Aston Villa5-25
18Stoke City000
19Swansea000
19Sunderland5-35
20Birmingham5-34
20Watford000
21Burton Albion5-54
21West Brom000
22Norwich5-64
22Oxford United46-1447
22West Ham000
23Brentford5-42
23Leicester City46-1046
23Wolves000
24Bolton5-62
24Sheffield Wed46-600
24Wrexham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.