Sigurpáll Melberg snýr heim í Aftureldingu (Staðfest)
Sigurpáll Melberg Pálsson hefur gert tveggja ára samning við Aftureldingu og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25165 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Sigurpáll Melberg Pálsson hefur gert tveggja ára samning við Aftureldingu og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Knattspyrnudeild Fylkis var að krækja sér í öflugan varnarmann fyrir komandi tímabil þar sem Kayla Bruster er búin að skrifa undir eins árs samning.
Miðvörðurinn Presnel Kimpembe er búinn að framlengja samning sinn við franska stórveldið Paris Saint-Germain um tvö ár, eða til sumarsins 2026.
Hull City er búið að staðfesta félagsskipti Billy Sharp til félagsins eftir að hann rann út á samningi hjá Los Angeles Galaxy í bandarísku MLS deildinni.
Skoska úrvalsdeildarfélagið St. Mirren er búið að krækja í Elvis Bwomono á frjálsri sölu eftir að samningur hans við ÍBV rann út.
Magni Fannberg er hættur sem yfirmaður fótboltamála hjá Start í Noregi en þetta var tilkynnt fyrr í dag.
Troy Deeney var í dag ráðinn sem spilandi þjálfari hjá Forest Green Rovers. Hann tekur við starfinu af David Horseman sem yfirgaf félagið í dag.
Víkingur Ólafsvík hafnaði í fimmta sæti 2. deildarinnar síðasta sumar og félagið er að setja saman leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil. Félagið hefur fengið til sín spænsk marokkóskan sóknarleikmann, Ibrahim Boulahya El Miri. <i>„Ibrahim er 26 ára gamall og getur spilað sem framherji og úti á kanti. Hann er teknískur leikmaður með gott markanef. Við bjóðum Ibrahim velkominn til Ólafsvíkur og væntum mikils af honum næsta sumar,"</i> segir í tilkynningu félagsins.
Landsliðskonan Sædís Rún Heiðarsdóttir hefur skrifað undir samning til 2026 við norska félagið Vålerenga. Hún kemur þangað eftir að hafa slegið í gegn með Stjörnunni.
Ásdís Karen Halldórsdóttir er gengin í raðir norska félagsins Lilleström. Ásdís, sem er 24 ára gömul í dag, skrifar undir samning við Lilleström sem gildir út 2025.
Nottingham Forest hefur ráðið Nuno Espirito Santo sem nýjan stjóra, hann tekur við af Steve Cooper sem var reknn í gær. Nuno er 49 ára og gerði tveggja og hálfs árs samning. Þessi fyrrum stjóri Wolves og Tottenham var rekinn frá Sádi-arabíska félaginu Al-Ittihad í síðasta mánuði. Hans fyrsti leikur með stjórnartaumana hjá Forest verður heimaleikur gegn Bournemouth á laugardag.
Arnar Sigþórsson og Pétur Hrafn Friðriksson hafa hafið störf sem þjálfarar ÍH í 3. deild karla. Þeir eru fæddir árin 2001 og 1999 og eru því meðal yngstu þjálfara Íslandsmótsins. Þjálfarateymi Álafoss er það yngsta á landinu.
Hamar er búinn að krækja sér í markvörð sem hefur spilað fyrir CD Tortosa í spænsku utandeildinni undanfarin ár.
Fram er búið að krækja sér í nýjan markvörð sem mun leika með kvennaliðinu í Lengjudeildinni næsta sumar.
Stoke City er búið að ráða besta þjálfara síðasta tímabils úr ensku C-deildinni (League One) til að taka við keflinu hjá sér eftir brottrekstur Alex Neil.
Þjálfarinn efnilegi Ole Martin Nesselquist tilkynnti í lok nóvember að hann væri hættur sem aðstoðarþjálfari KR til að taka við sem aðalþjálfari hjá ónefndu félagi í heimalandi sínu, Noregi.
Haukar eru búnir að staðfesta mikilvægar viðbætur við þjálfarateymi meistaraflokks karla, þar sem Dusan Ivkovic og Stefán Logi Magnússon munu starfa undir leiðsögn Ian Jeffs.
Davíð Snær Jóhannsson hefur yfirgefið FH og gengið í raðir Álasunds í Noregi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH sem var gefin út rétt í þessu.
Hinn mjög svo efnilegi Tómas Johannessen hefur gengið til liðs við hollenska úrvalsdeildarfélagið AZ Alkmaar og gerir við það þriggja ára samning.
KFA hefur fengið Abdelhadi Khalok El Bouzarrar, sem oftast er kallaður Khalok, til félagsins. Khalok kemur til félagsins eftir að hafa skorað níu mörk í 18 leikjum fyrir Víking Ólafsvík í sumar.