19.12.23 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Schumacher nýr aðalþjálfari Stoke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Stoke City er búið að ráða besta þjálfara síðasta tímabils úr ensku C-deildinni (League One) til að taka við keflinu hjá sér eftir brottrekstur Alex Neil.
Í upphafi voru Tony Mowbray og John Eustace taldir líklegastir til að taka við hjá Stoke en stjórnendur félagsins eru yfir sig hrifnir af Steven Schumacher.
Schumacher, sem ólst upp hjá Everton og lék fyrir U16 og U19 landslið Englendinga, gerir þriggja og hálfs árs samning við Stoke sem gildir til sumarsins 2027.
Schumacher kom Plymouth Argyle upp um deild og er liðið fyrir ofan Stoke á stöðutöflunni í Championship deildinni, með 26 stig eftir 22 umferðir. Stoke er aðeins með 23 stig en er talsvert stærra knattspyrnufélag með bjartari framtíðarmöguleika.
Schumacher er 39 ára gamall og stýrði Plymouth í tvö ár, eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins í tvö ár þar á undan. Hann er að taka sitt þriðja skref sem aðalþjálfari í enska fótboltapýramídanum, eftir að hafa verið bráðabirgðastjóri Southport FC um stutta stund fyrir rúmum sex árum síðan.

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |