Alda Ólafs í Fram (Staðfest) - Skoraði 34 mörk í sumar
Alda Ólafsdóttir, langmarkahæsti leikmaður 2. deildar í sumar, er gengin í raðir Fram frá Fjölni.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25171 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Alda Ólafsdóttir, langmarkahæsti leikmaður 2. deildar í sumar, er gengin í raðir Fram frá Fjölni.
Ronaldo með gott grín, rifrildi við Nunez, Ísland í umspil og breytingar hjá Manchester United. Það er fjölbreyttur listi þessa vikuna. Arnar Gunnlaugs er að ræða við Norrköping og landsliðið var í eldlínunni svo eitthvað sé nefnt.
Miðvörðurinn Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir hefur skrifað undir samning við sænska úrvalsdeildarfélagið Örebro. Hún kemur til félagsins frá Selfossi en hún skrifar undir samning sem gildir til ársins 2025.
Króatíski þjálfarinn Nenad Bjelica er tekinn við Union Berlín í Þýskalandi.
<p>Dagur Austmann Hilmarsson er genginn til liðs við Fjölni og mun leika með liðinu næstu árin.</p>
Höttur/Huginn hefur samið við annan spænskan leikmann um að leika með liðinu í 2. deild karla næsta sumar. Nýjasti leikmaðurinn heitir Genis Arrastraria en fyrr í vikunni tilkynnti félagið að miðjumaðurinn Rafa Llop væri búinn að semja við félagið. Báðir koma þeir til Hattar/Hugins í gegnum umboðsskrifstofuna <i>Áfram Football</I>.
Fylkir tilkynnti rétt í þessu að Gunnlaugur Fannar Guðmundsson væri genginn í raðir félagsins og hefði skrifað undir tveggja ára samning. Gunnlaugur kemur frá Keflavík þar sem hann lék 22 leiki í deild og tvo í bikarnum á nýliðinni leiktíð. Síðustu þrjú tímabil á undan hafði hann spilað með Kórdrengjum.
Þór tilkynnti í dag að Rafael Victor væri genginn í raðir félagsins og hefði skrifað undir tveggja ára samning. Rafael er 27 ára portúgalskur framherji. Hann kemur frá Njarðvík þar sem hann gerði þrettán mörk á síðustu leiktíð sem gerði hann að þriðja markahæsta leikmanni Lengjudeildarinnar á tímabilinu.
Katla Tryggvadóttir hefur skrifað undir þriggja ára samning við sænska félagið Kristianstad. Katla kemur til félagsins frá Þrótti í Reykjavík þar sem hún hefur leikið frá því í fyrra.
Sænska félagið Öster tilkynnti í dag að Srdjan Tufegdzic - Túfa - yrði ekki áfram sem þjálfari liðsins. Túfa var þjálfari liðsins í tvö tímabil, tók við liðinu fyrir tímabilið 2022 og náði umspilssæti um sæti í efstu deild. Það var mjög góður árangur. Liðið ætlaði sér mjög stóra hluti á þessu tímabili, endaði í fjóra sæti, rétt missti af umspilssæti og voru það vonbrigði.
Varnarmaðurinn Alberto Sánchez er genginn til liðs við Reyni Sandgerði frá Kormáki/Hvöt.
Oumar Niasse, fyrrum leikmaður Everton og Hull, er genginn í raðir Macclesfield FC. Hann á þó eftir að fá leikheimild með félaginu og er beðið eftir því frá sambandinu. Macclesfield FC er í sjöundu efstu deild á Englandi, Northern Premier League.
Arnór Borg Guðjohnsen er genginn í raðir FH frá Víkingi. Þetta tilkynnti FH á samfélagsmiðlum sínum í dag. Sóknarmaðurinn lék á láni með FH seinni hluta tímabilsins á láni frá Víkingi en skiptir nú alfarið yfir. Hann átti ár eftir af samningi sínum við Víking.
Grótta tilkynnti í dag að tveir leikmenn væru að ganga í raðir félagsins. Það eru þeir Valdimar Daði Sævarsson og Eirik Brennhaugen. Valdimar kemur frá Þór og Norðmaðurinn Eirik kemur frá Stjördals-Blink sem var í þriðju efstu deild í Noregi á liðinni leiktíð. Báðir skrifa þeir undir tveggja ára samninga við Gróttu. Valdimar, sem er 21 árs, er kantmaður sem lék með KV áður en hann hélt norður fyrir síðasta sumar. Hann getur einnig leyst fleiri stöður fram á við. Hann á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands og skoraði þrjú mörk í þrettán deildarleikjum fyrir Þór á liðinni leiktíð.
<p>PSG hefur nýtt kaupréttinn á Goncalo Ramos frá Benfica.</p>
Alex Þór Hauksson verður ekki áfram hjá Öster. Þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag. Tímabilinu í Svíþjóð er lokið fyrir utan umspilið um sæti í efstu deild sem Öster missti af í lokaumferðinni. Í Svíþjóð er hins vegar hefð fyrir því að æfa í smá tíma eftir að mótinu lýkur. Alex var í stóru hlutverki seinni hluta tímabilsins 2021, í lykilhlutverki á tímabilinu í fyrra en lék ekki jafnmikið á liðinni leiktíð; byrjaði 14 leiki af 30 og kom níu sinnum inn á sem varamaður.
Gyfli Tryggvason, sem hefur stýrt liði Árbæjar undanfarin ár, er kominn með nýtt starf. Greint var frá því á dögunum að hann yrði ekki áfram með Árbæ og í dag var tilkynnt að hann væri nýr aðstoðarþrjálfari hjá HK. Hann mun aðstoða Guðna Þór Einarsson með þjálfun meistaraflokks kvenna. Gylfi skrifar undir tveggja ára samning við HK.
Guðni Bergsson, fyrrum formaður KSÍ, hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formaður. Nýr formaður verður kjörinn á ársþingi sambandsins í febrúar næstkomandi. Hann var formaður sambandsins á árunum 2017-2021. Hann sagði af sér sem formaður í ágúst 2021 í kjölfar frétta af meintri hylmingu sambandsins yfir kynferðisbrotum landsliðsmanna. Sitjandi formaður, Vanda Sigurgeirsdóttir, hefur tilkynnt að hún ætli ekki að gefa kost á sér áfram.
Fjallað er um það á norska miðlunum <i>adressa.no</I> að Selma Sól Magnúsdóttir sé á förum frá Rosenborg. Samningur hennar við norska félagið er að renna út og verður ekki skrifað undir nýjan samning. Þetta staðfesti hún við Fótbolta.net í dag.
Kristianstad tilkynnti í dag að sex leikmenn yrðu ekki lengur hjá félaginu. Á meðal þeirra er Emelía Óskarsdóttir. Hún skrifaði undir þriggja ára samning við félagið þegar hún gekk í raðir þess en nýtti sér uppsagnarákvæði í samningnum og er því laus allra mála. Hún var með ákvæði í samningi sínum sem fól það í sér að ef Elísabet Gunnarsdóttir myndi yfirgefa félagið þá gæti Emelía sagt upp samningi sínum við félagið. Elísabet yfirgaf félagið á dögunum eftir fimmtán ára veru. Hún gekk í raðir félagsins fyrir tímabilið 2022 og kom við sögu í 24 leikjum í sænsku deildinni á tíma sínum hjá Kristianstad. Fyrri hluta tímabilsins 2023 lék hún á láni með Selfossi.