FRÉTTIR22.11.2023, 13:00
Fram tilkynnti í dag að Eyrún Vala Harðardóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Hún kemur frá Stjörnunni en hún lék á láni með HK seinni hluta tímabilsins 2023. Eyrún er uppalin í Breiðabliki og lék sitt fyrsta tímabil í meistaraflokki með Augnabliki sumarið 2019.
FRÉTTIR22.11.2023, 09:28
Kjartan Kári Halldórsson hefur gert þriggja ára samning við FH sem kaupir hann frá norska félaginu Haugesund. Kjartan var á láni hjá þeim allt síðasta tímabil.
Óskar Hrafn Þorvaldsson tók nýlega við þjálfun Haugesund.
Kjartan er tvítugur vængmaður sem lék 24 leiki í deild og bikar með FH á liðnu tímabili. Í þeim skoraði hann þrjú mörk og lagði upp tvö.
Kjartan var keyptur til Haugesund frá Gróttu eftir frábært tímabil 2022.
FRÉTTIR21.11.2023, 18:32
Varnarmaðurinn Magnús Þór Magnússon hefur lagt skóna á hilluna. Frá þessu var greint í hlaðvarpsþættinum <i>Gula Spjaldið</I> á föstudag og staðfesti Magnús tíðindin í samtali við Fótbolta.net í dag.
Magnús er 31 árs og hefur borið fyrirliðabandið undanfarin ár.
FRÉTTIR21.11.2023, 15:30
Höttur/Huginn hefur fengið frá samningi við spænska miðjumanninn Rafa Llop og mun hann spila með liðinu á næsta tímabili.
FRÉTTIR21.11.2023, 11:22
Miðjumaðurinn Unnar Ari Hansson hefur fengið félagaskipti frá KFA til KFK. Unnar var fyrirliði KFA í sumar sem rétt missti af sæti í Lengjudeildinni.
Hann er 25 ára og uppalinn í Fjarðabyggð/Leikni. Hann lék með Þrótti Vogum tímabilin 2021 og 2022.
FRÉTTIR21.11.2023, 06:00
Fanney Inga Birkisdóttir, markvörður Vals, hefur framlengt samning sinn við félagið.
FRÉTTIR20.11.2023, 22:08
Íslenska karlalandsliðið mun taka þátt í umspili um sæti á Evrópumótinu í Þýskalandi, en þetta varð ljóst eftir 3-0 sigur Tékklands á Moldóvu í kvöld.
FRÉTTIR20.11.2023, 16:07
Fram heldur áfram að styrkja liðið sitt fyrir komandi átök í Bestu deildinni. Rétt í þessu var greint frá því að Kennie Chopart væri genginn í raðir félagsins.
Danski hægri bakvörðurinn skrifar undir eins árs samning við félagið en hann kemur frá KR. Hann lék undir stjórn Rúnars Kristinssonar hjá KR og fylgir honum í Fram, en Rúnar tók við stjórnartaumunum þar í haust.
FRÉTTIR20.11.2023, 15:35
Edda Garðarsdótir var í dag tilkynnt sem nýr aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Breiðabliki. Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum Breiðabliks.
Edda er fyrrum landsliðskona sem aðstoðaði Nik Chamberlain síðustu ár hjá Þrótti. Nik söðlaði um og samdi við Breiðablik í haust og Edda fylgir honum yfir í Kópavoginn.
FRÉTTIR20.11.2023, 14:30
Vinstri bakvörðurinn Kristinn Jónsson hló að frétt þar sem fjallað var um ástæðuna fyrir því að hann verður ekki áfram hjá KR.
Kristinn lék í sex tímabil með KR en kvaddi félagið fyrr í þessum mánuði með færslu á samfélagsmiðlum. Gregg Ryder, nýr þjálfari KR, segist hafa rætt við Kidda um mögulegt áframhald en Kiddi hafi ekki getað haldið áfram í KR þar sem æfingatímarnir hentuðu honum ekki.
Gregg vill æfa í hádeginu, það kom fram í hlaðvarpsþættinum <i>Dr. Football</I>.
Kiddi deildi frétt um málið á Facebook síðu sinni og setti tvo hláturkalla við færsluna sem er opin öllum. Það er hægt að lesa ýmislegt út úr því.
Fótbolti.net hafði samband við Kidda í dag en hann vildi ekki tjá sig um færsluna.
FRÉTTIR20.11.2023, 06:00
Katrín Ásta Eyþórsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram, en hún kemur til félagsins frá FH.
FRÉTTIR19.11.2023, 21:03
Aron Jóhannsson er genginn til liðs við Aftureldingu í Lengjudeildinni en hann skrifaði undir tveggja ára samning í dag.
FRÉTTIR19.11.2023, 07:00
Nenad Zivanovic og Arnar Logi Sveinsson eru búnir að skrifa undir tveggja ára samninga við Ægi og munu því þjálfa félagið eftir fall úr Lengjudeildinni.
FRÉTTIR18.11.2023, 23:00
Sádí-arabísku meistararnir í Al-Ittihad eru búnir að tilkynna samkomulag við argentínska þjálfarann Marcelo Gallardo.
FRÉTTIR18.11.2023, 21:20
Tomasz Luba er búinn að framlengja samning sinn við Árborg og mun þjálfa félagið í 4. deildinni á næsta ári.
FRÉTTIR18.11.2023, 13:01
<p>Helgi Sigurðsson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari Fram en hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.</p>
FRÉTTIR18.11.2023, 09:00
D-deildarlið Colchester United, sem er með 20 stig eftir 17 umferðir í neðstu deild enska boltans, hefur ákveðið að ráða Matthew Etherington sem knattspyrnustjóra. Ekki er greint frá lengd samningsins eða öðrum atriðum.
FRÉTTIR17.11.2023, 22:48
HK er búið að staðfesta nýjan samning við lykilleikmann sinn Arnþór Ara Atlason.
FRÉTTIR17.11.2023, 19:58
KFA átti góðu gengi að fagna í 2. deild karla í sumar en rétt missti af sæti í Lengjudeildinni eftir fjörugar lokaumferðir.
FRÉTTIR17.11.2023, 17:30
Fram tilkynnti í dag að Telma Steindórsdóttir væri gengin í raðir félagsins og skrifar hún undir tveggja ára samning í Úlfarsárdal.
Telma verður átján ára í næsta mánuði, hún er miðvörður sem kemur í Fram frá HK. Hún lék með Fram að láni seinni hluta síðasta tímabils.